Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.07.2015, Blaðsíða 27

Fréttatíminn - 17.07.2015, Blaðsíða 27
Ú lfur úlfur er skipuð Skag-firðingunum Arnari Frey og Helga Sæmundi. Þeir hafa vakið verðskuldaða athygli að undanförnu fyrir rímur sínar og tónlist. Platan þeirra, Tvær plánetur kom út í byrjun sumars og greini- lega eru vinsældir sveitarinnar allt- af að aukast. Þeir félagarnir segjast spila mjög mikið opinberlega og segja flóruna af röppurum á Íslandi mjög stóra, en ólíka. „Hljómsveitin okkar Bróðir Svart- úlfs, sem vann músíktilraunir árið 2009, var allt önnur hljómsveit bók- staflega,“ segir Arnar þegar þeir eru spurðir út í bakgrunninn. „Allt aðrar hugmyndir og stefnur sem okkur fannst gaman, en við áttuð- um okkur á því að þetta var ekki það sem okkur langaði raunverulega að gera,“ segir hann. „Við stigum því á bremsuna, sögðum sorrí við strákana og stofnuðum okkar eigið band.“ „Við bjuggum á þessum tíma saman í Reykjavík og höfðum alltaf verið að gera alls konar hluti saman, líka áður en við stofnuðum Bróður Svartúlfs,“ segir Helgi. „Svo þetta var bara rökrétt framhald af því. Okkur fannst bara svo gaman að fikta saman heima að það varð aðal hjá okkur,“ segir Arnar. „Það yfirtók Bróður Svartúlfs í rauninnni. Kannski fórum við líka að beina orkunni í aðra átt því við vorum bara orðnir hugmyndasnauðir í hljóm- sveitinni,“ segir hann. „Við vorum allir með svo ólíkar hugmyndir,“ bætir Helgi við. „Geggjaðir tímar samt og góð reynsla,“ segir Arnar. Nauðsynlegt að vera raunveru- legir Arnar og Helgi fluttu til Reykjavík- ur í kringum tvítugt og báðir hafa þeir menntað sig meðfram tónlistar- sköpun sinni. Helgi er að læra ferða- málafræði og Arnar er að klára við- skiptafræðina, sem er kannski ekki svona það sem fólk giskar fyrst á þegar það hlustar á íslenska rapp- ara. Þeir segja rappara á Íslandi vera ólíka og bakgrunninn misjafn- an. „Rappsenan er í blóma núna,“ segir Arnar. „Hún hvarf á tímabili og um tíma voru þetta bara Blaz Roca og Emmsjé Gauti sem voru að rappa. Það var enginn sena. Í dag er þetta mjög fjölbreytt. Steríótýp- an í dag af íslenskum rappara er gaur sem lítur ekkert endilega út fyrir að vera rappari,“ segir hann. „Rapparar í dag eru bara einhverj- ir venjulegir gaurar, í námi eða að gera einhvern fjandann. Gísli Pálmi er kannski sá eini sem lítur út fyr- ir að vera rappari. Það fer honum líka vel af því að hann er raunveru- legur,“ segir Arnar. „Við gætum ekki verið eins og Gísli Pálmi því við erum ekki þannig. Þú þarft að vera raunverulegur til þess að tekið sé mark á þér og mér finnst flestir af íslenskum röppurum vera raun- verulegir,“ segir hann. „Það eru líka allir vinir í þessari senu og við erum duglegir að mæta á tónleika hver hjá öðrum. Mér finnst líka fjöl- breytnin sem er í gangi svo frábær. Stelpurnar eru líka að koma mjög sterkar inn og það er geggjað að það eru 17 stelpur saman að pæla í rappi, eins og í Reykjavíkurdætrum. Það er líka gott að þetta sé ekki eitt- hvert strákasport,“ segir Arnar. Markhópurinn stór Platan Tvær plánetur er fyrsta stóra plata Úlfs úlfs, en árið 2011 gáfu þeir út stuttskífu í takmörkuðu upplagi sem seldist upp. „Það var í rauninni bara samansafn af lögum og hún var eiginlega bara seld á út- gáfutónleikunum okkar þá, og seld- ist eiginlega upp þá helgina,“ segir Helgi. „Nýja platan er okkar fyrsta plata sem er með eitthvert konsept,“ segir Arnar. Er eitthvert konsept í gangi? „Það er konsept, en það er erfitt að setja fingur á það,“ segir Arnar. „Þetta er bara tímabil í lífi okkar. Platan er samin síðasta sumar og fjallar um það. Ískaldur raunveru- leiki tveggja gaura.“ Þið eruð búnir að vera duglegir undanfarin ár, þið spilið mikið er það ekki? Rapparar í dag eru bara einhverjir venjulegir gaurar, í námi eða að gera einhvern fjandann Rappið er ekki strákasport Rappdúettinn Úlfur úlfur hefur vakið mikla athygli að undan- förnu fyrir plötu sína Tvær plánetur sem kom út fyrr í sumar. Þeir Arnar Freyr Frostason og Helgi Sæmundur Guðmundsson eru aldir upp á Sauðárkróki í Skagafirði og stofnuðu ungir hljómsveitina Bróður Svartúlfs sem sigraði í Músíktilraunum Tónabæjar árið 2009. Þeir byrjuðu ungir að rappa og segja rappsenuna á Íslandi vera í miklum blóma í dag. „Jú, við erum búnir að spila nán- ast einu sinni í viku í nærri þrjú ár,“ segir Arnar. „Við erum búnir að vera að búa fólk undir það andlega að það sé plata á leiðinni.“ Hvaða fólk er það sem hlustar á Úlf úlf? „Við náum ekki alveg að staðsetja markhópinn okkar,“ segir Helgi. Hann er miklu stærri en ég þorði að vona, bætir Arnar við. „Við erum að heyra reglulega að foreldrar í dag séu að hlusta á plötuna okkar með börnunum sínum. Setn- ing eins og „Ég fíla nú ekki rapp, en ég fíla ykkur,“ er eitthvað sem ég heyri oft. Ég held að markhópurinn sé bara fólk á okkar aldri, en af því að platan fjallar bara um venjulegt líf þá nái fullorðið fólk líka að tengja,“ seg- ir Arnar. „Við erum að tala um hluti sem fólk er að díla við. Okkar raun- veruleiki er ólíkur veruleika margra annarra rappara og því kannski tengja fleiri við hann, við erum t.d mjög ólíkir Blaz Roca og Gísla Pálma í okkar lífi þó við fílum hver annan.“ Þannig að þið eruð ekki daglega á Prikinu? „Við erum reyndar furðulega oft á Prikinu,“ segir Arnar og þeir skella báðir upp úr. „Vinir okkar eru þarna.“ Hávamál kveiktu áhugann Þeir Arnar og Helgi segjast ekki vita af hveru tveir ungir menn á Sauðárkróki taki upp á því að byrja að rappa. Kannski er það körfu- boltahefðin í bænum, og kannski er það bara eitthvað allt annað. „Ég byrjaði að rappa 12 ára,“ seg- ir Helgi. „Ég var beðinn um að rappa Hávamál fyrir kvenfélagið á Króknum og ég gerði það,“ segir hann og Arnar engist um af hlátri. „Þetta er svo gott,“ segir Arnar. „Ég stal bara einhverjum takti af netinu og það var í fyrsta sinn sem ég kom fram og rappaði,“ segir Helgi. „Svo þróaðist þetta bara. Ég hlustaði alltaf á rapp og Arnar var að því líka og þannig bara byrjaði þetta.“ „Ef það hefði ekki verið fyrir Helga þá hefði ég aldrei byrjað að rappa,“ segir Arnar. „Ég sá bara hann sem var einu ári eldri en ég að rappa sem mér fannst mjög kúl, og ég hugsaði bara. Ég er líka frá Sauðárkróki og ég get gert þetta líka,“ segir hann. Tengist þetta eitthvað körfubolt- anum á Króknum? „Maður spilaði mikið körfu og hlustaði á rapp,“ segir Helgi. „Það var stemning í því og það var ákveðin körfuboltamenning á Króknum og líklega tengist þetta eitthvað.“ Eruð þið með eitthvert plan? Hvað er framundan? „Arnar er alltaf fullur af hug- myndum og hringir í mig daglega með eitthvert plott,“ segir Helgi. “Stundum segi ég já og stundum segi ég kannski,” segir hann. „Við byrjuðum að pæla í því fyrir löngu að okkur langar að gefa út EP-plötu fljótlega,“ segir Arnar. „Við viljum ekki segja nákvæmlega hve- nær en við erum með næsta skref planað,“ segir hann. „Annars erum við bara búnir að spila ótrúlega mikið til þess að kynna plötuna og verðum að áfram,“ segir Helgi. „Við ætlum samt í smá frí í ágúst, en í haust langar okkur að halda stóra tónleika fyrir norðan. Borga smá tilbaka fyrir stuðninginn að norðan,“ segir hann. „Sauðárkrókur hefur alltaf staðið við bakið á okkur og það er alltaf gaman að koma heim,“ segir Arnar. Útgáfutónleikar Úlfs úlfs fara fram fimmtudaginn 24. júlí í Gamla bíói. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is „Við erum reyndar furðulega oft á Prikinu“ Ljósmynd/ Anton Brink tónlist 27 Helgin 17.-19. júlí 2015 PEPSI MAX OG WOW AIR KYNNA KINGS OF LEON NÝJA LAUGARDALSHÖLLIN 13. ÁGÚST #KOLICELAND WWW.SENA.IS/KOL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.