Fréttatíminn - 17.07.2015, Page 27
Ú lfur úlfur er skipuð Skag-firðingunum Arnari Frey og Helga Sæmundi. Þeir
hafa vakið verðskuldaða athygli að
undanförnu fyrir rímur sínar og
tónlist. Platan þeirra, Tvær plánetur
kom út í byrjun sumars og greini-
lega eru vinsældir sveitarinnar allt-
af að aukast. Þeir félagarnir segjast
spila mjög mikið opinberlega og
segja flóruna af röppurum á Íslandi
mjög stóra, en ólíka.
„Hljómsveitin okkar Bróðir Svart-
úlfs, sem vann músíktilraunir árið
2009, var allt önnur hljómsveit bók-
staflega,“ segir Arnar þegar þeir
eru spurðir út í bakgrunninn. „Allt
aðrar hugmyndir og stefnur sem
okkur fannst gaman, en við áttuð-
um okkur á því að þetta var ekki það
sem okkur langaði raunverulega
að gera,“ segir hann. „Við stigum
því á bremsuna, sögðum sorrí við
strákana og stofnuðum okkar eigið
band.“
„Við bjuggum á þessum tíma
saman í Reykjavík og höfðum alltaf
verið að gera alls konar hluti saman,
líka áður en við stofnuðum Bróður
Svartúlfs,“ segir Helgi. „Svo þetta
var bara rökrétt framhald af því.
Okkur fannst bara svo gaman að
fikta saman heima að það varð aðal
hjá okkur,“ segir Arnar. „Það yfirtók
Bróður Svartúlfs í rauninnni.
Kannski fórum við líka að beina
orkunni í aðra átt því við vorum bara
orðnir hugmyndasnauðir í hljóm-
sveitinni,“ segir hann. „Við vorum
allir með svo ólíkar hugmyndir,“
bætir Helgi við. „Geggjaðir tímar
samt og góð reynsla,“ segir Arnar.
Nauðsynlegt að vera raunveru-
legir
Arnar og Helgi fluttu til Reykjavík-
ur í kringum tvítugt og báðir hafa
þeir menntað sig meðfram tónlistar-
sköpun sinni. Helgi er að læra ferða-
málafræði og Arnar er að klára við-
skiptafræðina, sem er kannski ekki
svona það sem fólk giskar fyrst á
þegar það hlustar á íslenska rapp-
ara. Þeir segja rappara á Íslandi
vera ólíka og bakgrunninn misjafn-
an. „Rappsenan er í blóma núna,“
segir Arnar. „Hún hvarf á tímabili
og um tíma voru þetta bara Blaz
Roca og Emmsjé Gauti sem voru að
rappa. Það var enginn sena. Í dag
er þetta mjög fjölbreytt. Steríótýp-
an í dag af íslenskum rappara er
gaur sem lítur ekkert endilega út
fyrir að vera rappari,“ segir hann.
„Rapparar í dag eru bara einhverj-
ir venjulegir gaurar, í námi eða að
gera einhvern fjandann. Gísli Pálmi
er kannski sá eini sem lítur út fyr-
ir að vera rappari. Það fer honum
líka vel af því að hann er raunveru-
legur,“ segir Arnar. „Við gætum
ekki verið eins og Gísli Pálmi því
við erum ekki þannig. Þú þarft að
vera raunverulegur til þess að tekið
sé mark á þér og mér finnst flestir
af íslenskum röppurum vera raun-
verulegir,“ segir hann. „Það eru
líka allir vinir í þessari senu og við
erum duglegir að mæta á tónleika
hver hjá öðrum. Mér finnst líka fjöl-
breytnin sem er í gangi svo frábær.
Stelpurnar eru líka að koma mjög
sterkar inn og það er geggjað að
það eru 17 stelpur saman að pæla í
rappi, eins og í Reykjavíkurdætrum.
Það er líka gott að þetta sé ekki eitt-
hvert strákasport,“ segir Arnar.
Markhópurinn stór
Platan Tvær plánetur er fyrsta
stóra plata Úlfs úlfs, en árið 2011
gáfu þeir út stuttskífu í takmörkuðu
upplagi sem seldist upp. „Það var í
rauninni bara samansafn af lögum
og hún var eiginlega bara seld á út-
gáfutónleikunum okkar þá, og seld-
ist eiginlega upp þá helgina,“ segir
Helgi. „Nýja platan er okkar fyrsta
plata sem er með eitthvert konsept,“
segir Arnar.
Er eitthvert konsept í gangi?
„Það er konsept, en það er erfitt
að setja fingur á það,“ segir Arnar.
„Þetta er bara tímabil í lífi okkar.
Platan er samin síðasta sumar og
fjallar um það. Ískaldur raunveru-
leiki tveggja gaura.“
Þið eruð búnir að vera duglegir
undanfarin ár, þið spilið mikið er
það ekki?
Rapparar í
dag eru bara
einhverjir
venjulegir
gaurar, í
námi eða
að gera
einhvern
fjandann
Rappið er ekki
strákasport
Rappdúettinn Úlfur úlfur hefur vakið mikla athygli að undan-
förnu fyrir plötu sína Tvær plánetur sem kom út fyrr í sumar.
Þeir Arnar Freyr Frostason og Helgi Sæmundur Guðmundsson
eru aldir upp á Sauðárkróki í Skagafirði og stofnuðu ungir
hljómsveitina Bróður Svartúlfs sem sigraði í Músíktilraunum
Tónabæjar árið 2009. Þeir byrjuðu ungir að rappa og segja
rappsenuna á Íslandi vera í miklum blóma í dag.
„Jú, við erum búnir að spila nán-
ast einu sinni í viku í nærri þrjú ár,“
segir Arnar. „Við erum búnir að
vera að búa fólk undir það andlega
að það sé plata á leiðinni.“
Hvaða fólk er það sem hlustar á
Úlf úlf?
„Við náum ekki alveg að staðsetja
markhópinn okkar,“ segir Helgi.
Hann er miklu stærri en ég þorði
að vona, bætir Arnar við.
„Við erum að heyra reglulega að
foreldrar í dag séu að hlusta á plötuna
okkar með börnunum sínum. Setn-
ing eins og „Ég fíla nú ekki rapp, en
ég fíla ykkur,“ er eitthvað sem ég
heyri oft. Ég held að markhópurinn
sé bara fólk á okkar aldri, en af því að
platan fjallar bara um venjulegt líf þá
nái fullorðið fólk líka að tengja,“ seg-
ir Arnar. „Við erum að tala um hluti
sem fólk er að díla við. Okkar raun-
veruleiki er ólíkur veruleika margra
annarra rappara og því kannski
tengja fleiri við hann, við erum t.d
mjög ólíkir Blaz Roca og Gísla Pálma
í okkar lífi þó við fílum hver annan.“
Þannig að þið eruð ekki daglega
á Prikinu?
„Við erum reyndar furðulega oft á
Prikinu,“ segir Arnar og þeir skella
báðir upp úr.
„Vinir okkar eru þarna.“
Hávamál kveiktu áhugann
Þeir Arnar og Helgi segjast ekki
vita af hveru tveir ungir menn á
Sauðárkróki taki upp á því að byrja
að rappa. Kannski er það körfu-
boltahefðin í bænum, og kannski
er það bara eitthvað allt annað.
„Ég byrjaði að rappa 12 ára,“ seg-
ir Helgi. „Ég var beðinn um að
rappa Hávamál fyrir kvenfélagið
á Króknum og ég gerði það,“ segir
hann og Arnar engist um af hlátri.
„Þetta er svo gott,“ segir Arnar.
„Ég stal bara einhverjum takti af
netinu og það var í fyrsta sinn sem
ég kom fram og rappaði,“ segir
Helgi. „Svo þróaðist þetta bara. Ég
hlustaði alltaf á rapp og Arnar var
að því líka og þannig bara byrjaði
þetta.“
„Ef það hefði ekki verið fyrir
Helga þá hefði ég aldrei byrjað að
rappa,“ segir Arnar. „Ég sá bara
hann sem var einu ári eldri en ég
að rappa sem mér fannst mjög kúl,
og ég hugsaði bara. Ég er líka frá
Sauðárkróki og ég get gert þetta
líka,“ segir hann.
Tengist þetta eitthvað körfubolt-
anum á Króknum?
„Maður spilaði mikið körfu og
hlustaði á rapp,“ segir Helgi.
„Það var stemning í því og það
var ákveðin körfuboltamenning á
Króknum og líklega tengist þetta
eitthvað.“
Eruð þið með eitthvert plan? Hvað
er framundan?
„Arnar er alltaf fullur af hug-
myndum og hringir í mig daglega
með eitthvert plott,“ segir Helgi.
“Stundum segi ég já og stundum
segi ég kannski,” segir hann.
„Við byrjuðum að pæla í því fyrir
löngu að okkur langar að gefa út
EP-plötu fljótlega,“ segir Arnar. „Við
viljum ekki segja nákvæmlega hve-
nær en við erum með næsta skref
planað,“ segir hann.
„Annars erum við bara búnir
að spila ótrúlega mikið til þess að
kynna plötuna og verðum að áfram,“
segir Helgi. „Við ætlum samt í smá
frí í ágúst, en í haust langar okkur
að halda stóra tónleika fyrir norðan.
Borga smá tilbaka fyrir stuðninginn
að norðan,“ segir hann.
„Sauðárkrókur hefur alltaf staðið
við bakið á okkur og það er alltaf
gaman að koma heim,“ segir Arnar.
Útgáfutónleikar Úlfs úlfs fara
fram fimmtudaginn 24. júlí í Gamla
bíói.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
„Við erum reyndar
furðulega oft á
Prikinu“ Ljósmynd/
Anton Brink
tónlist 27 Helgin 17.-19. júlí 2015
PEPSI MAX OG WOW AIR KYNNA
KINGS OF LEON
NÝJA LAUGARDALSHÖLLIN 13. ÁGÚST
#KOLICELAND WWW.SENA.IS/KOL