Fréttatíminn - 17.07.2015, Síða 6
MIAMI
svefnsófi með horntungu
Með rúmfatageymslu í tungu. Dökkgrátt, slitsterkt áklæði.
Bara vinstri tunga. Stærð: 240 x 225 cm, H: 80 cm.
Fullt verð: 169.900 kr.
149.900 kr.
IBIZA
U-sófi
Grábrúnt, slitsterkt áklæði -
hægri og vinstri tunga.
Fullt verð: 249.900 kr.
19
8
c
m
286 cm
189.900 kr.
JACKPOT
U-sófi
Svart, slitsterkt áklæði -
hægri og vinstri tunga.
Fullt verð: 189.900 kr.
20
3
cm
276 cm
149.900 kr.
Afgreiðslutími
Mán. til fös. frá kl. 10–18
Laugardaga frá kl. 11–16
www.dorma.is
Holtagörðum
512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
558 1100
Sumar
útsala
Holtagarðar | Akureyri | www
.dorma.is
Sumar
útsala
TVENNUTILBOÐ
dúnsæng + koddi
NATURE’S REST
heilsurúm
Aðeins 59.900 kr.
Nature’s Rest heilsudýna
með Classic botni.
Stærð: 140x200 cm.
Fullt verð: 92.900 kr.
33.000
krónur
AFSLÁTTUR
O&D dúnsæng
· 50% dúnn
· 50% smáfiður
+ Dúnkoddi
Fullt verð: 24.900 kr.
Aðeins 18.900 kr.
TVENNU
TILBOÐ
Þú finnur
bæklinginn á dorma.is
LÝKUR Á
MORGUN
SamfélagSmál Unglingar með útþrá
Helmingur unglinga vill flytja til útlanda
H elmingur íslenskra unglinga vill helst búa í útlöndum í framtíðinni
samanborið við um þriðjung
árið 2007, að því er fram kemur
í nýrri rannsókn Háskólans á
Akureyri og sagt er frá á Akur-
eyri.net. Vorið 2015 vildi ríflega
helmingur unglinga á höfuð-
borgarsvæðinu og á Akureyri
helst flytja af landi brott en tæp-
ur þriðjungur jafnaldra þeirra
annars staðar á Norðurlandi.
Rannsóknin er hluti evr-
ópsku ESPAD rannsóknar-
innar og nær til allra íslenskra
unglinga í 10. bekk grunn-
skóla. Hún er lögð fyrir á 4 ára
fresti.
„Búsetuóskir unglinga
gefa vísbendingu um stemn-
inguna í unglingasamfélag-
inu og að nokkru leyti í
samfélaginu í heild“, segir
Þóroddur Bjarnason, pró-
fessor í félagsfræði við Há-
skólann á Akureyri og stjór-
nandi rannsóknarinnar, í
viðtali við Akureyri vikublað.
„Svör sextán ára unglinga
eru vitaskuld ekki áreiðan-
legur mælikvarði á ákvarð-
anir hvers og eins í framtíð-
inni. Sumir hætta við að flytja
og aðrir flytja þótt þeir hafi
ekki ætlað sér það á unglings-
árum. Í sumum tilvikum snúa
brottfluttir til baka en innlent
og erlent aðkomufólk fyllir
líka í skörðin. Hins vegar hafa
íslenskar rannsóknir sýnt að
búsetufyrirætlanir unglinga
hafa býsna gott forspárgildi
fyrir þróun einstakra byggð-
arlaga yfir lengri tíma.“ -sda
Salerni í HópferðabílUm
Vöntun á losunar-
brunnum fyrir rútur
Mikið hefur borið á því að salerni sem eru til staðar í mörgum langferðabifreiðum á Íslandi séu
ekki í notkun. Ferðmenn hafa talað um það að salerni séu alls ekki í öllum bifreiðum, og að í þeim
sem þau eru séu þau ekki aðgengileg. Þórir Garðarsson stjórnarformaður Iceland Excursion segir
ástæðuna eingöngu vera þá að ekki séu nægir losunarbrunnar á landinu. Brunnarnir eru tveir í
Reykjavík og þá eru þeir upptaldir.
é g get auðvitað bara talað fyrir mitt fyrirtæki,“ segir Þórir Garðarsson hjá Iceland Ex-
cursion þegar hann er spurður út í
málið. „Það eru salerni í nokkrum
bílum hjá okkur og þau eru almennt
ekki notuð nema sérstaklega sé
beðið um bíla með salernum. Þetta
er mjög vandmeðfarið þar sem það
eru mjög fáir staðir á Íslandi þar
sem hægt er að losa rútusalerni,“
segir hann. „Við erum með einn
brunn hjá okkur í Klettagörðum,
annar er hjá Orkuveitunni og þá er
það nánast upptalið,“ segir Þórir.
„Ég þykist vita að þessu umræða
sé sprottin út frá salernismálum á
ferðamannastöðum á landinu. Stað-
reyndin er sú að innan við 40% af
ferðamönnum á Íslandi ferðast með
hópferðabílum. Bílaleigubílar eru
um 50% og aðrir á eigin vegum.
Þar fyrir utan eru svo allir Íslend-
ingarnir sem gleymast stundum í
allri þessari umræðu,“ segir Þórir.
„Manni finnst svona í umræðunni
að það sé verið að ýta vandamálinu
yfir á rútufyrirtækin í staðinn fyrir
að horfa lausnamiðað á vandamálið
og fjölga salernum á landinu.“ Af
öllum þeim fjölda ferðamanna sem
panta þjónustu hópferðabíla á land-
inu segir Þórir það ekki stórt hlut-
fall sem biðji sérstaklega um bíla
með salernum. „það er mjög sjald-
gæft í raun og veru,“ segir hann.
„Hjá okkur erum við með salerni
í flestum bílunum en þau eru ekki
notuð í venjulegri ferð eins og
gullna hringnum. Það er ekki það
langt á milli salerna. Það er helst
ef við erum í einhverjum sérferð-
um með viðskiptavini sem biðja
sérstaklega um það,“ segir hann.
„Þegar við erum að kaupa nýja
bíla þá er það misjafnt hvort það
eru salerni í þeim eða ekki. Þetta
fer allt eftir stærð og slíku og við
kaupum á bilinu 12-18 bíla á ári.“
Þórir segir þó losunarmöguleik-
ann stærsta vandamálið. „Við get-
um ekki tekið kassann úr eins og
í hjólhýsum og slíku,“ segir hann.
„Bílarnir þurfa að geta keyrt yfir
brunn og losað salernin. Þetta er
eitthvað sem þarf að bæta ásamt
því að fjölga salernum. Við rekum
áfangastað á Hveravöllum þar sem
við settum niður 60.000 lítra rotþró
fyrir tveimur árum sem er fram-
kvæmd upp á rúmlega 20 milljónir,
bara neðanjarðar. Svo þetta er svo-
lítið mál. Vandamálið er ekki leyst
þótt hægt sé að sturta niður,“ segir
Þórir Garðarsson, stjórnarformað-
ur Iceland Excursions.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Hjá okkur erum við með salerni í flestum bílunum en þau eru ekki notuð í venjulegri ferð eins og gullna hringnum.
6 fréttir Helgin 17.-19. júlí 2015