Fréttatíminn - 17.07.2015, Qupperneq 10
S amkomulag milli Grikk-lands og lánadrottna þess felur meðal annars í sér
neyðarlán upp á 86 milljarða og
mjög strangar aðhaldsaðgerð-
ir í ríkisfjármálum næstu árin.
Stjórnarflokkur Tzipras, Syriza,
er mjög klofinn í afstöðu sinni en
alls greiddu 32 þingmenn flokks-
ins atkvæði gegn tillögunni og að-
stoðarfjármálaráðherra flokksins,
Nadia Valavani, hefur sagt af sér
embætti þar sem hún getur ekki
stutt tillöguna sem felur meðal
annars í sér miklar skattahækk-
anir og einkavæðingu ríkiseigna.
Það er öllum ljóst að ekki verður
auðvelt að fylgja mjög hörðum
aðhaldsaðgerðum eftir sem Evr-
ópusambandið, með Þýskaland í
fararbroddi, fer fram á. Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn hefur lagt til
að hluti skuldanna verði felldur
niður þar sem aðgerðirnar séu
óraunhæfar, skuldir gríska ríkis-
ins verði komnar í 200% af lands-
framleiðslu innan tveggja ára.
Fréttatíminn bað Jón Steinsson
hagfræðing við Columbia-háskól-
ann í New York um að velta fyrir
sér stöðunni.
Grikkland þarf á EU að halda
„Frá sjónarhóli Grikklands held
ég að það séu kannski mistök að
reyna að borga þetta til baka,“
segir Jón. „Grikkir hefðu ef til vill
þurft að horfast miklu fyrr í augu
við þá staðreynd að skuldirnar væru
ósjálfbærar. Það hefði ákveðna kosti
fyrir Grikki að fara bara á hausinn,
en aðeins ef þeir fengju að halda í
aðhaldið sem Evrópusambandið
veitir þeim. Það eru ekki nema 40
ár síðan Grikkland var einræðisríki,
ef þeir dyttu úr sambandinu væru
hvorki innviðirnir né myntin nógu
sterk til að þola það. Grikkland þarf
á aðhaldi Evrópusambandsins að
halda.“
Sjónarhóll Þýskalands
Jón segir stöðuna sem uppi er í
Evrópu núna snúast aðallega um
þrjú atriði frá sjónarhóli Þýska-
lands, fyrst og fremst um að skapa
ekki vont fordæmi fyrir önnur
lönd. „Eitt af því sem maður heyr-
ir mikið í umræðunni á Íslandi er
hörð gagnrýni á Þýskaland og af-
stöðu þess til Grikklands. Ég held
að sú gagnrýni sé að einhverju
leyti einföldun á stöðu mála því Lín Design Laugavegi 176 Glerártorgi Sími 533 2220 lindesign.is
Brúðkaupsgjön
sem mýkist ár eftir ár
Rúmföt frá 7.990 - 9.990 kr
Yr 50 gerðir rúmfata til brúðargjafa
Rúmföt 7.990 kr - 9.990 kr
Við virðum náttúruna
Þess vegna notum við
ölnota innkaupapoka
Að bjarga
Grikklandi
eða ekki
Tillaga að samkomulagi milli Grikklands og lánadrottna ríkis-
ins var samþykkt í gríska þinginu í vikunni, að stórum hluta til
vegna stuðnings Evrópusinnaðra andstæðinga stjórnar Alexis
Tzipras, sem sagðist styðja tillöguna með hnífinn við hálsinn.
Fréttatíminn bað Jón Steinsson hagfræðing við Columbia-
háskólann í New York um að velta fyrir sér stöðunni.
Gríska þingið
samþykkti skilmála
Evrópusambands-
ins þrátt fyrir
mikla andstöðu
á þingi og mikil
mótmæli á götum
grískra borga.
Bankar hafa verið
lokaðir í Grikklandi
síðan 29. júní.
10 fréttaskýring Helgin 17.-19. júlí 2015