Fréttatíminn - 17.07.2015, Side 12
M Markverður árangur hefur náðst í barátt-unni gegn tóbaksreykingum hér á landi. Reykingar eru mjög á undanhaldi, það þyk-ir fráleitt fínt að reykja og þeir sem það gera eru eiginlega útlægir, híma á svölum eða í
húsaskotum hvernig sem viðrar. Að sama
skapi hefur mjög dregið úr óbeinum reyk-
ingum og því heilsutjóni sem þær valda,
enda bannað að reykja þar sem margir
koma saman, á vinnustöðum,
opinberum stöðum og veit-
ingastöðum. Mestu skiptir
þó sá árangur sem náðst hef-
ur gagnvart ungu fólki hvað
reykingarnar varðar. Með því
næst mikil heilsubót þegar
litið er til framtíðar.
En tóbakið er lævís skratti.
Samhliða því sem dregið
hefur úr reykingum hefur
notkun munntóbaks auk-
ist til muna, einkum meðal
ungra karlmanna. Svo undarlegt sem það
er þá virðist munntóbaksneysla vera fylgi-
fiskur íþróttaiðkunar. Jafnvel afreksfólk
í íþróttum hefur sést með bólgna efrivör
vegna tóbaksnotkunar, fyrirmyndir ungs
fólks, sem gefa þannig til kynna að munn-
tóbaksnotkun sé í lagi þótt fólk stundi af-
reksíþróttir. Það er hins vegar fjarri lagi og
óábyrg framkoma. Íþróttir og munntóbak
eiga ekki frekar saman en íþróttir og reyk-
ingar. Við notkun á munntóbaki þrengjast
æðar í líkamanum og blóðflæði til vöðva
minnkar. Þá eru ónefnd önnur áhrif sem
munntóbakið hefur en talið er að í því séu
að minnsta kosti 28 krabbameinsvaldandi
efni. Slímhúð þykknar og langvarandi
notkun eykur líkur á krabbameini í munn-
holi og munnvatnskirtlum og ofanverðum
meltingarvegi vegna munntóbakssafa sem
kyngt er. Sérkennilegast er þó, miðað við
hve notendurnir eru ungir og væntanlega
flestum annt um útlit sitt, að þeir sætti sig
við þau lýti sem sjást verði þeim á að brosa.
Við blasa tennur með brúnum tóbakskless-
um, auk skemmda á tannholdi og hættu á
tannskemmdum, enda er ákveðnum teg-
undum sykrunga, sem valdið geta tann-
skemmdum, blandað í tóbakið.
Munntóbak er ákaflega vanabindandi
enda berst mest allt nikótín í því hratt um
slímhúð og inn í blóðrás. Það er því erf-
itt að venja sig af notkun þess. Þess vegna
er virðingarvert að fylgjast með framlagi
Jóns Kára Eldon á síðunni baggerblogg.is.
Hann notaði munntóbak í áratug, byrjaði
eins og margir aðrir sem gutti í fótbolta af
því að þetta þótti töff, en hætti neyslunni
fyrir ári. Nú, ári síðar greinir Jón Kári frá
reynslu sinni á síðunni, laus við fíknina
og nokkrum þúsundköllum ríkari, eins og
hann segir. Fram kemur í samantekt hans
að á þessum tíu árum hafi hann tekið að
minnsta kosti 18 þúsund „lummur“ í vör-
ina, eða sem svarar 36 kílóum af munntób-
aki. Í þetta eyddi hann í kringum 824.400
krónum.
„Ég ætla að hjálpa þér að hætta,“ segir
Jón Kári á síðu sinni, en megin markmið
hans með síðunni er að reyna að fækka
neytendum munntóbaks. Hann hafði heyrt
frá félögum sínum að erfitt væri að hætta
neyslunni, nokkrir þeirra höfðu reynt en
flestir byrjað aftur eftir nokkra daga. Jón
Kári var hins vegar ákveðinn í að standa
við þá ákvörðun að hætta. „Til að gera mér
erfiðara fyrir að hætta, þá leyfði ég öllum
að fylgjast með hvernig mér gekk í gegn-
um samskiptasíðuna Twitter,“ segir hann
en með því fékk hann félagslegt aðhald.
„Ég er sannfærður um að árangur minn
sé þessu félagslega aðhaldi að þakka. Því
hvet ég þig, kæri neytandi, til að nota þessa
aðferð sem reyndist mér svo vel...“ segir
hann og klykkir út með þessari hvatningu:
„Saman munum við kveðja munntóbaks-
dolluna, hornið, lummuna, baggið, brúnu
tennurnar, hringlaga farið á gallabuxunum,
allar buguðu sjoppuferðirnar og ekki síst
öll þau 28 krabbameinsvaldandi efni sem
finna má í munntóbaki.“
Á mynd á síðunni brosir Jón Kári hindr-
unarlaust, laus við ógeðið brúna. Væntan-
lega vilja fleiri sem ánetjast hafa fylgja í
hans fótspor.
Bless sagt við munntóbaksdolluna, lummuna og brúnu tennurnar
„Ég ætla að hjálpa þér að hætta“
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR
Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Hösk-
uldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson
teitur@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
PEPSI MAX OG WOW AIR KYNNA
KINGS
OF LEON
NÝJA LAUGARDALSHÖLLIN 13. ÁGÚST
#KOLICELAND WWW.SENA.IS/KOL
N
M
68
96
8
Siminn.is/spotify
Á Spotify er úrval af íslenskri
tónlist, sögum og ævintýrum
sem stytta ferðalagið!
HEFUR ALDREI
EINS VEL!
12 viðhorf Helgin 17.-19. júlí 2015