Fréttatíminn - 17.07.2015, Page 17
Ég er alin
upp með 5
bræðrum
þannig að ég
er vön því
að umgang-
ast mikið af
strákum.
Í sland var alls ekki augljós kostur í byrjun en eftir að ég og kynnti mér aðstæður varð þetta strax mjög aug-
ljóst,“ segir Terry Jester, forstjóri Silicor
Materials, sem stefnir að uppbyggingu
sólarkísilverksmiðju á Grundartanga í
Hvalfirði. Nokkur atriði gerðu útslagið
þegar kom að því að reisa verksmiðjuna
hér og skiptu þar hvað mestu máli lágt
raforkuverð og fríverslunarsamningur
milli Íslands og Kína.
Gert er ráð fyrir að allt að 450 störf
muni skapast þegar verksmiðjan rís, þar
af um 150 sem krefjast háskólamennt-
unar, en hún kemur til með að framleiða
um 4% af heimsframleiðslu á sólarkísil
sem oft er kallaður „græni“ kísillinn.
Framleiðslan er með umhverfisvænni
málmiðnaði, engin brennisteins- eða
flúormengun fylgir framleiðslunni og
er útstreymi koltvísýrings áætlað undir
þúsund tonnum á ári, eða álíka mikið og
stórt kúabú. Til samanburðar er áætl-
að að útstreymi koltvísýrings frá kísil-
málmverksmiðju Thorsil í Helguvík geti
orðið allt að 600 þúsund tonn.
Ferðast um landið
Terry kemur við á skrifstofu Frétta-
tímans að morgni dags en eftir við-
talið er hún að leggja í ferðalag um
landið með dætrum sínum tveimur og
tengdasonum. „Stelpurnar mínar eru
búnar að vera virkilega spenntar fyr-
ir því að heimsækja Ísland og nú eru
þær loksins komnar,“ segir hún. Yngri
dóttirin er nemandi í vélaverkfræði og
kennir stærðfræði og vélmennafræði í
stúlknaskóla með náminu. Sú eldri er
eðlisfræðingur og vinnur hjá nýsköp-
unarfyrirtæki við að búa til sólarsellur
á glugga. Terry segir þær báðar hafa
beðið um vinnu í nýju verksmiðjunni en
hún hafi samviskusamlega bent þeim á
að þetta séu störf þar sem Íslendingar
ganga fyrir þó erlendir sérfræðingar
verði þar til að byrja með og veiti ráð-
gjöf.
Terry Jester með dætrum
sínum tveimur. Sú yngri
er nemi í vélaverkfræði
en hin er eðlisfræðingur.
Mynd/Hari
Terry er menntaður verkfræð-
ingur, hún ólst upp í Kaliforníu í
Bandaríkjunum en þangað fluttist
fjölskyldan frá Ohio þegar heimilis-
faðirinn fékk þar vinnu sem verk-
fræðingur í flugiðnaði. „Frá því ég
var barn hef ég alltaf verið áhuga-
söm um stærðfræði. Með verk-
fræðináminu vann ég hjá litlu frum-
kvöðlafyrirtæki sem rannsakaði
sólarorku. Ég tók líka kúrsa í nám-
inu um sólorku og var sannfærð um
að það væru miklir möguleikar á
þessu sviði. Þarna var umræðan um
tækifærin sem felast í nýtingu sólar-
orku rétt að byrja og nú, 36 árum
síðar, er ég enn hér,“ segir hún.
Kísill gegnir lykilhlutverki í upp-
byggingu á endurnýjanlegri orku á
heimsvísu. Framleiðsla á hreinkísil
til notkunar í sólarrafhlöður hefur
margfaldast á undanförnum árum
og búist er við að þessi þróun haldi
áfram næstu áratugina.
Þurfti að hylja sig á viðskipta-
fundum
Fjögur ár eru síðan Terry hóf störf
hjá Silicor Materials og varð for-
stjóri fyrirtækisins ári síðar. Verk-
smiðjan á Grundartanga verður sú
fyrsta sinnar tegundar, framleiðsla
hennar byggir á nýrri framleiðslu-
aðferð sem fyrir tækið hefur þróað
og hefur einkaleyfi á. Terry hefur
farið víða í leit að ákjósanlegum
stað fyrir verksmiðjuna. Fyrir-
tækið er bandarískt, Kína helsta
viðskiptalandið og vegna hárra
gjalda sem fyrirtækið hefði þurft
að greiða fyrir að flytja sólarkísil
frá Bandaríkjunum til Kína var
ákveðið að falla frá hugmyndum
sem voru uppi um að reisa verk-
smiðju í Missisippi og leitað ann-
að. „Eitt af þeim löndum sem við
skoðuðum var Sádi-Arabía og ég
fór þangað á fundi. Ég var hissa
þegar ég kom þangað því kven-
frelsi var enn styttra á veg komið
en ég gerði mér grein fyrir. Þar er
ekki hefðbundið að kona sé í við-
skiptum og á viðskiptafundum
þurfti ég að hylja mig sem mér
fannst mjög þvingandi. Ég sá ekki
fyrir mér hvernig við gætum reist
verksmiðju í Sádi- Arabíu þar sem
ég, konan, er forstjóri,“ segir hún.
Gagnrýnin á misskilning byggð
Terry heitir raunar Theresa en hef-
ur verið kölluð Terry frá því hún var
lítil stúlka. Það hefur stundum bor-
ið við að nafnsins vegna gerir fólk í
fyrstu ráð fyrir að hún sé karlmaður
en hún segist ekki hafa mætt mörg-
um hindrunum á framabraut sinni
innan orkugeirans sem hún rekur
til kynferðis síns. „Ég er alin upp
með 5 bræðrum þannig að ég er vön
því að umgangast mikið af strákum.
Eins og þið Íslendingar vitið þá eru
konur alveg jafn gáfaðar og hæfi-
leikaríkar og karlmenn. Ég var allt-
af sannfærð um að ég hefði mikið
fram að færa og lagði mig virkilega
fram til að sýna það,“ segir hún.
Um 18 mánuðir eru síðan við-
ræður hófust vegna uppbyggingar
verksmiðju Silicor Materials á Ís-
landi og er svo komið að fyrsti fasi
fjármögnunar er á lokametrunum.
Ef allt gengur samkvæmt áætlum
verður verksmiðjan opnuð árið
2018. Terry hefur ekki farið var-
hluta af þeirri gagnrýni sem bygg-
ing verksmiðjunnar hefur hlotið á
Íslandi þar sem hún er sögð valda
gríðarlegum og óafturkræfum nátt-
úruspjöllum. „Ég er vel meðvituð
um þessa gagnrýni en ég verð að
segja að hún er ekki á rökum reist.
Ég held að þessi gagnrýni byggi á
einhvers konar misskilningi á því
hvers konar verksmiðju við ætlum
að reisa. Þetta er ekki stóriðja. Við
komum á næstunni til með að efla
kynningu á starfseminni á Íslandi
og halda opna fundi þar sem fólk
getur spurt spurninga,“ segir hún.
Skipulagsstofnun ákvað að upp-
bygging verksmiðjunnar væri ekki
háð umhverfismati þar sem starf-
semi hennar hefði ekki í för með sér
umtalsverð umhverfisáhrif.
Fjárfesting Silicor Materials
nemur jafnvirði 122 milljarða króna
og verður því eitt stærsta fjárfest-
ingarverkefni hér á landi fyrr og
síðar. „Hér eru innviðir fyrir orku-
frekan iðnað og flutninga á heims-
mælikvarða, auk þess sem Ísland
býr yfir hagkvæmri orku úr endur-
nýjanlegum orkugjöfum.“ Fulltrúar
Orku náttúrunnar hafa skrifað und-
ir viljayfirlýsingu við Silicor Materi-
als vegna sölu á 35 megavöttum af
raforku. Terry segir að fyrir hverja
kílóvattstund sem verksmiðjan notar
verði til 30-40 kílóvattstundir með
notkun sólarkísilsins. „Þetta er um-
hverfisvænn iðnaður og ég er sann-
færð um að gagnrýnisraddirnar eigi
eftir að hljóðna þegar fólk hefur
kynnt sér málið til hlítar,“ segir hún.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
viðtal 17 Helgin 17.-19. júlí 2015