Fréttatíminn - 17.07.2015, Side 50
PANTAÐU Á CURVY.IS
EÐA KOMDU Í VERSLUN
OKKAR AÐ FÁKAFENI 9
NÝ SENDING
MEÐ SUNDFÖTUM
STÆRÐIR 16-24
Hannes
Friðbjarnarson
hannes@
frettatiminn.is
T ónleikahátíðin KEX-Port verður haldin í f jórða skipti í port-
inu fyrir aftan KEX Hostel
laugardaginn 18. júlí næst-
komandi frá tólf á hádegi til
miðnættis. Tónleikarnir eru
haldnir til heiðurs KEXP í
Seattle og mun verða boðið
upp á tólf tónlistaratriði á
jafn mörgum klukkustund-
um. KEXP er útvarpsstöð
sem sótt hefur Ísland heim
árlega allt frá árinu 2009 og
hefur unnið óeigingjarnt
starf til kynningar á ís -
lenskri tónlist í Bandaríkj-
unum og víðar í heiminum.
Hátíðin er haldin í port-
inu fyrir aftan Kex Hostel
og eru hún opin almenningi
á meðan rúm leyfir. Mikil
stemning er fyrir KEXPort
í ár og er óhætt að segja að
fjölbreytni tónlistaratriða sé
með besta móti.
Myndbandsupptöku af
tónleikunum í ár verður
streymt beint í gegnum
KEXP.ORG, Kexland.is og
MusicReach.tv og er það
í fyrsta skiptið sem það
verður gert. Meðal þeirra
sem koma fram eru Sóley,
Futuregrapher, Valdimar,
Muck, Gísli Pálmi, Agent
Fresco og Emmsjé Gauti.
Allar nánari upplýsingar um
dagskrána má finna á www.
kexhostel.is
KEXPorT 2015
12 tónleikar á 12 klukkutímum
Sóley kemur fram á KEXPort um
helgina.
Telma Huld leikur eitt aðalhlutverkið í Webcam sem frumsýnd var í vikunni.
TElma Huld JóHannEsdóTTir
Ævintýri að gera bíó
með vinum sínum
Í vikunni var kvikmyndin Webcam frumsýnd í kvikmyndahúsum. Webcam er ný íslensk kvikmynd
í leikstjórn Sigurðar Antons Friðþjófssonar sem hafði áður gert kvikmyndina Ísabellu. Webcam
fjallar um ungt fólk í Reykjavík og sögu ungrar stúlku sem ákveður að gerast netstúlka til þess að
vinna sér inn peninga. Ein af leikkonum myndarinnar er Telma Huld Jóhannesdóttir sem segir það
óraunverulegt að myndin sé komin í bíó.
É g er bara rosa meyr og veit ekki alveg hvernig mér á að líða,“ segir Telma Huld leik-
kona í Webcam, þegar hún er spurð
út í líðan sína daginn eftir frumsýn-
ingu. „Það eru samt allar tilfinn-
ingarnar góðar,“ segir hún. „Þetta
var hálf ótrúlegt að sjá myndina
loksins á tjaldinu. Það var alveg
mátulegt stress í mannskapnum
og í mínum huga átti þetta aldrei
að verða svona stórt. Þegar við
vorum að búa þetta til þá var þetta
svo mikill vinahópur að búa til bíó
og það hvarflaði aldrei að mér að
við mundum á endanum frumsýna
í Smárabíói með 600 manns í saln-
um,“ segir Telma. „Ég vann fyrst
með Tona leikstjóra fyrir tveimur
árum síðan. Við kynntumst á Open
Mic kvöldi á Simsen og hann fékk
mig til að leika með sér í jóladaga-
tali sem við settum á YouTube. Um
leið og ég fékk að lesa handritið
að Webcam fannst mér stórkost-
legt hvað það voru sterkir kven-
karakterar í því. Mér fannst ég ekki
hafa séð þetta áður og fannst það
mjög spennandi,“ segir Telma sem
vinnur á Prikinu en stefnir á leik-
listarnám. „Ég var í Leynileikhús-
inu í mörg ár og er örugglega búin
að taka öll námskeið sem voru þar í
boði tvisvar, segir hún. “Svo fór ég
í FG því þar var leiklistarbraut og
þar með var eiginlega ákveðið að
ég ætlaði að verða leikkona,“ seg-
ir Telma sem er 21 árs. „Ég ætla í
leiklistarnám en fyrst ætla ég í hús-
stjórnarskólann í haust og læra eitt-
hvað gagnlegt,“ segir hún. „Eftir
það er planið að flakka á milli landa
í Evrópu á Interrail og fara í prufur
hjá nokkrum skólum sem mig lang-
ar í á leiðinni og skoða heiminn um
leið,“ segir hún. „Þangað til vonast
ég til að sem flestir sjái myndina í
bíó því ég held að hún snerti marga
og efnistökin eru eitthvað sem þarf
að ræða. Einnig er það líka mikil-
vægt fyrir Tona leikstjóra, því það
er dýrt spaug að gera svona kvik-
mynd í fullri lengd,“ segir Telma
Huld Jóhannesdóttir leikkona.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Sketsakóngar sitja sveittir
Grínistarnir Sveppi, Auðunn Blöndal og
Steindi sitja þessa dagana sveittir við að
skrifa sketsa fyrir nýja sjónvarpsseríu sem
verður á dagskrá Stöðvar 2 í vetur. Búist
er við því að grínið verði blanda af því sem
þessir grínistar hafi verið að gera undan-
farin ár og er því von á góðu. Ákveðin
tímapressa er á teyminu þar sem Sveppi
flytur með haustinu til Kaliforníu, til þess
að styðja við bakið á eigikonu sinni sem
fer í nám í Bandaríkjunum, og er áætlað að
klára öll skrif áður en Sveppi heldur utan.
Geirfuglar ganga aftur
í Viðey
Hljómsveitin Geirfuglarnir snýr sér við í
gröfinni og blæs til dansleiks í gamla sam-
komuhúsinu sem nú er Hótel Flatey á
Breiðafirði á morgun, laugardag.
Hljómsveitin er vel úthvíld eftir
að hafa legið í dvala í tvo vetur.
Rykið verður dustað af hinni
einstöku dansiballsdagskrá
Geirfuglanna og er líklegra
en hitt að heitt verði í
kolunum á dansgólfinu. Þar
verður allt í bland: polkar
og rúmbur, harmónikkur
og mandólín, valsar og rokk,
gamalt og nýtt – því fyrir
Geirfuglinum er einn dagur sem
þúsund ár og þúsund ár sem
dagur einn.
Geirfuglana skipa þeir Halldór
Gylfason, Stebbi Magg, Þorkell
Heiðarsson, Andri Geir Árnason,
Ragnar Helgi Ólafsson og Freyr
Eyjólfsson. Sérstakur gestur verður
vestfirski heiðursgeirfuglinn, Vern-
harður Jósefsson.
Júníus Meyvant fer á flug
Tónlistarmaðurinn Júníus Meyvant sem nýverið gaf út stuttskífu er á leiðinni í lítið
tónleikaferðalag um Evrópu. Kappinn mun heimsækja Danmörku og Þýskaland meðal
annars áður en hann kemur heim og spilar á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Júníus er frá
Eyjum og verður því vel tekið eftir ferðalagið. Búist er við því að ekki líði á löngu þar til
fyrsta breiðskífa kappans kemur út, en margir bíða hennar með óþreyju þar sem lögin
hans Colour Decay og það nýjasta, Hailslide hafa notið gríðarlegra vinsælda.
50 dægurmál Helgin 17.-19. júlí 2015