Fréttatíminn - 17.07.2015, Blaðsíða 70
Símamótið 2015 Helgin 17.-19. júlí 201518
www.sjukrasport.is / 564-4067
óskum öllum
góðs gengis
á símamótinu
Íþróttaiðkun barna og unglinga
É g hef undanfarið fylgst með umræðunni varðandi meiðsl og álag á börn og unglinga í
íþróttum. Íþróttaiðkun hefur farið
vaxandi og eru nú ansi margir farnir
að æfa eins og afreksíþróttamenn.
Ég hef einnig tekið eftir að foreldr-
ar og þjálfarar hlusta ekki á ung-
mennin þegar þau byrja að kvarta
yfir verkjum hér og þar. Verkirnir
eru taldir vera venjulegir vaxtar-
verkir. Við verðum að gera okkur
grein fyrir því að umhverfið hefur
breyst mjög mikið varðandi æfinga-
aðstöðu og álagið hefur aukist til
mikilla muna á ungmennin.
Nú er kominn tími til þess að
fylgjast með krökkunum og hlusta
á þá þegar þeir kvarta. Það er ekki
eðlilegt að ungmenni þjáist af bak-
verkjum, höfuðverkjum eða verkj-
um í líkamanum vegna álags undan
æfingum. Það þarf að greina hvað
er að gerast og koma í veg fyrir að
álag og verkir safnist upp þannig
að á endanum getur viðkomandi
ekki stundað íþróttir vegna verkja,
ekki verið með út af álagsmeiðslum
o.s.frv. Þá kemur rétt greining sér
vel; nárameiðsl, tognun aftan á læri,
höfuðverkur, verkur í mjóbaki og
svo mætti áfram telja. En af hverju
koma þessi meiðsl? Getur verið að
mjaðmagrindin sé skökk eða annar
fótleggurinn styttri en hinn? Vinna
vöðvarnir ekki eins og þeir eiga að
gera? Allt þetta er hægt að greina
og ættu foreldrar og þjálfarar um-
svifalaust að leita til stoðkerfissér-
fræðinga ef grunur leikur á að þessi
vandamál til staðar, svo koma megi
í veg fyrir brottfall úr íþróttum og
ótímabær meiðsl.
Við verðum að hugsa um ung-
mennin og hlusta þegar þau kvarta,
ekki grípa of seint inn í meiðslaferli
því það getur hamlað árangri og
ástundun. Ég hef í starfi mínu sem
kírópraktor séð fjölmörg dæmi um
að einstaklingur hefur hætt iðkun
út af meiðslum en eftir greiningu
og meðferð, komist af stað aftur og
allt að því eignast nýtt líf. Mér þykir
mikilvægt að grípa sem fyrst inn í
þetta ferli og fá viðkomandi góðan
eins fljótt og hægt er.
Hjá fótboltaiðkendum er mikið
um mjaðmaskekkjur sem mynd-
ast við það mikla álag þegar annar
fóturinn er notaður sem bremsa
en hinn sveiflast fram og sparkar.
Þetta er hægt að leiðrétta með góðri
greiningu og ákveðinni aðferða-
fræði sem unnið er eftir. Það sama
á um fimleika, handbolta, frjálsar
og allar íþróttagreinar. Með því að
hlusta á og fylgjast með ungmenn-
unum og líka fullorðnum er hægt að
koma viðkomandi fljótt til iðkunar
eða inn í liðið aftur.
Auk þess hef ég einnig tekið eft-
ir að í sumum tilfellum er um mis-
lengd fótleggja að ræða, vöðvaó-
jafnvægi eftir meiðsl og sem dæmi
um það má nefna að þegar einstak-
lingur tognar á ökkla þá slokknar
á stóra rassvöðvanum á sömu hlið
og tognunin átti sér stað. Það er
ekki gefið að hann taki til starfa
aftur þegar tognunin er gengin til
baka. Þessu þarf að fylgjast með og
grípa inn í ef þetta gerist. Við eig-
um bara einn líkama og hann á að
endast okkur alla ævi. Ekki taka því
sem sjálfsögðum hlut að hafa verki
eða finna til. Það er staðreynd að
ef stoðkerfið okkar virkar vel, sem
og fjöðrunarbúnaður líkamans og
hulstrið utan um taugakerfið, þá líð-
ur okkur vel og erum betur í stakk
búin að fást við það sem lífið býður
upp á.
Jón Arnar Magnússon
kírópraktor hjá Kírópraktorstofu Íslands og
ólympíufari í tugþraut.
Hverju ber að fylgjast
með hjá börnunum?
Tjörnin við Fífuhvamm: Þar hefur
Kópavogslækurinn verið stíflaður svo
myndast hefur fínasta útivistarsvæði.
Þar hafa endur gert sig heimakomnar
og það getur verið gaman að gefa þeim
brauð.
Hlíðargarður: Skemmtilegur garður í
suðurhlíðum Kópavogs mjög stutt frá
mótssvæðinu. Tilvalið er að draga liðið
aðeins út úr skarkalanum og næra sig
á milli leikja.
Sund: Eftir langan dag á vellinum er
fátt betra en að skella sér í sund með
liðsfélögunum. Sundlaug Kópavogs er
nálægt keppnissvæðinu og sundlaugin í
Versölum er í Salahverfi Kópavogs.
Náttúrufræðistofa Kópavogs: Þar
er að finna risastór fiskabúr með
lifandi ferskvatns- og sjávarlífverum.
Þar eru einnig alls konar náttúrugripir
sem tengjast jarðfræði Íslands og ís-
lenskum dýrum. Náttúrufræðistofan er
í Hamraborginni.
Leiktæki: Við Smáraskóla
má finna skemmtileg
leiktæki til að stytta
sér stundir og eins
við göngustíga í
nágrenninu.
Rútstún: Stór
grasflöt og fullt
af skemmti-
legum leiktækjum. Túnið er fyrir neðan
Kópavogssundlaug.
Fjöruferð: Ef góður tími gefst á milli
leikja er hægt að ganga framhjá
tjörninni, í undirgöngin við Hafnar-
fjarðarveg og svo strax til vinstri í átt
að botni Kópavogs (Kópavogsleirur).
Þar er hægt að leika sér, skoða steina
og fræðast um fugla.
Himnastiginn: Fyrir þá sem vilja
hreyfa sig er Himnastiginn svokallaði
frábær áskorun, en hann liggur upp frá
Skátaheimilinu.
Spil: Gamli góði spilastokkurinn klikkar
aldrei. Nú er tækifærið til að kenna
vinkonunum uppáhalds spilið og læra
ný í leiðinni. Ólsen, Ólsen, Veiðimaður,
Skítakall og Hæ Gosi! slá alltaf í
gegn.
Afþreying milli leikja
Leikjadagskráin er þétt alla keppnisdagana en þegar ekki er verið
að undirbúa næsta leik eða hvetja önnur lið er hægt að finna sér
ýmislegt skemmtilegt að gera.