Fréttatíminn - 26.06.2015, Blaðsíða 18
ið á sér ekki langa sögu hér á landi. Það
er því ekki að undra að sumir hafi verið
hissa þegar unga parið tilkynnti að það
skyldi halda utan til náms í sirkusfræðum.
„Viðbrögð fjölskyldunnar voru samt furðu
góð, þau tóku bara mjög vel í þetta,“ segir
Jóakim.
„Þau bara sáu hvað okkur leið vel í
þessu og að við vorum viss um að þetta
væri það sem við vildum gera,“ segir Ey-
rún. „Mamma er læknir og hún var pínu
efins fyrst en auðvitað vilja þau bara að ég
geri það sem gerir mig glaða. Þau sjá að
við brennum fyrir þessu.“
Sirkus er ekki lengur „fríksjóv“
Eyrún og Jóakim segja eitt það góða við
að vera úti í námi sé að hafa aðgang að
sýningum sem veiti þeim stöðugan inn-
blástur. „Eitt það flottasta sem ég hef séð
er lítil fimm manna sýning frá Frakklandi.
Í Frakklandi er það hluti af menningar-
stefnu stjórnvalda að styðja við sirkus-
formið, til að halda því á lífi. Fólkið sem
vann þessa sýningu hafði verið á launum
hjá ríkinu í fjögur ár til að búa hana til. Og
þessi sýning var engu lík,“ segir Eyrún.
„Svona sirkus, og það sem við erum að
gera, er svokallaður „nýsirkus“ og byrjaði
í Frakklandi á sjöunda áratugnum. Ný-
sirkusinn notast við aðferðir þess gamla
til að tjá eitthvað nýtt. Í gamla daga var
sirkus meira „fríksjóv“ en leikhús. Fólk
kom til að sjá eitthvað alveg nýtt og öðru-
vísi, eins og villt dýr og konur með skegg,
en í dag er hægt að finna allt þetta á inter-
netinu.“
Þrátt fyrir að sirkusformið eigi sér
lengri hefð á meginlandinu segjast þau
Eyrún og Jóakim að sumu leyti vera bet-
ur sett en skólafélagarnir úti. „Við erum
hluti af þessari litlu sirkusmenningu
sem er hér, og með vinnu. En auðvitað
eru fleiri tækifæri úti,“ segir Jóakim sem
tók þátt í uppfærslu á Rómeó og Júlíu á
vegum Fílharmóníunnar í Rotterdam í
vetur. „Ég tók þátt í uppfærslu á vegum
skólans og var þá „spottaður“ og beðinn
um að taka að mér hlutverk Rómeó. Það
var mjög gaman og mikill skóli en þar
var ég meira að nota leiklist en sirkuslist,
notaði súluna ekkert né nokkra fimleika,
ég var meiri trúður.“
Sirkusbörn á slæðum og súlum
„Sirkuslíf er listamannalíf“, segir Ey-
rún. „Þetta er ekki sama flakkaralífið
og hér áður fyrr en þetta er samt frekar
óstöðugt líf þar sem ekki er mikil rút-
ína. Þetta er bara spurningin um að grípa
tækifærin á meðan þau gefast. Hér áður
fyrr voru sirkusfjölskyldur fyrir utan
samfélagið og börnin urðu fljótt hluti af
sýningunum. Fjölskyldur voru jafnvel
með sitt atriði.“
„Það er mjög algengt í þeim verkefn-
um sem við höfum tekið þátt í úti að fólk
sé með lítil börn með sér á ferðalagi en
svo verður það erfiðara þegar þau verða
eldri,“ segir Jóakim og þau Eyrún velta
því fyrr sér hvernig framtíðin verði.
Kannski þau bara búi til fjölskyldusýn-
ingu?
„Já hver veit,“ segja þau og hlæja við til-
hugsunina um lítil börn hangandi í súlum
og slæðum. „Okkur langar allavega til að
búa til okkar eigin sýningu,“ segir Jóa-
kim. „Draumurinn er líka að Sirkus Ís-
lands festi rætur og þessi menning fái að
blómstra hér. Það væri allavega synd ef Ís-
lendingar fengju ekki að njóta þess að fara
í sirkus því allir geta haft gaman að sirkus,
þetta er listform sem allir skilja. Sirkusinn
færir líka svo mikla gleði og Ísland þarf á
því að halda.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
„Í gamla
daga var
sirkus meira
„fríksjóv“ en
leikhús. Fólk
kom til að
sjá eitthvað
alveg nýtt
og öðru-
vísi, eins og
villt dýr og
konur með
skegg, en í
dag er hægt
að finna
allt þetta á
internetinu.“
Eyrún Ævarsdóttir og Jóakim Kvaran eru ungt og efnilegt sirkuslistapar. Þau búa í Rotterdam þar sem mikil hefð er fyrir sirkus-
listinni en dreymir um að halda áfram að gleðja Íslendinga með Sirkus Íslands hér á landi. Mynd Hari
11 kg2 kg 5 kg 10 kg
Smellugas er einfalt,
öruggt og þægilegt!
Gas fyrir grillið,
útileguna og
heimilið
Vinur við veginn
SANDKASSAR FRÁ 58.900kr
RÓLURFRÁ
106.800kr
BORÐ OG
BEKKIR
KÍKTU Á VEFVERSLUN
KRUMMA.IS
FRÁ
69.000kr
Gylfaflöt 7 112 Reykjavík 587 8700 krumma.is
LEIKTÆKI
LEIKFÖNG
REIÐHJÓLAGRINDUR
Jil Sander og gler í fjær eða nær
styrkleika +/- 4,00 cyl 2,00 gler með
glampa, rispu og móðuvörn
HEILDARVERÐ: UMGJÖRÐ OG GLAMPAFRÍ GLER
Sími: 5 700 900 - prooptik.is
18 viðtal Helgin 26.-28. júní 2015