Fréttatíminn - 26.06.2015, Blaðsíða 56
Auðvitað
er maður
voða stoltur
af syninum
Fley tríó fær góðan liðsauka á tónleikum þess á Jómfrúnni á
laugardag þegar Högni Egilsson stígur á stokk og syngur klass-
ískar djassperlur. Högni er sonur Egils B. Hreinssonar píanó-
leikara sem segir samstarfið við soninn vera frábært. Spáð er
góðu veðri á laugardag.
V ið vorum með svipaða tón-leika á Jómfrúnni í fyrra en þá var Jóel Pálsson líka með
okkur. Hann átti ekki heimangengt
núna. Við feðgar höfum oft og mörg-
um sinnum fengist við ýmislegt
saman í heimahúsum en við höfum
ekki troðið mikið upp á opinberum
vettvangi fyrir utan tónleikana
í fyrra. Það getur vel verið að við
gerum meira af því í framtíðinni,
ég vonast til þess enda samstarfið
frábært,“ segir Egill B. Hreinsson
píanóleikari.
Egill treður upp á sumartónleik-
um á Jómfrúnni á laugardag með
tríói sínu, Fley. Auk hans skipa tríó-
ið Gunnar Hrafnsson sem leikur á
kontrabassa og Kjartan Guðnason
trommari. Sérstakur gestur á tón-
leikunum verður sonur Egils, hinn
kunni tónlistarmaður Högni Egils-
son úr hljómsveitunum Hjaltalín og
GusGus.
Fley tríó er fimm ára gamalt og
hefur spilað nokkrum sinnum í
Reykjavík, að sögn Egils. „Tríóið
varð til þegar okkur bauðst að spila
á bandarískum skemmtiferðaskip-
um og dregur nafn sitt af því,“ segir
hann.
Tríóið mun leika íslensk lög sem
færð hafa verið í djassbúning en
síðan mun Högni syngja klassískar
TónlisT Fley Tríó og Högni egilsson á JómFrúnni á laugardag
Feðgarnir Egill B. Hreinsson og
Högni Egilsson troða saman upp
á djasstónleikum á Jómfrúnni á
laugardag. Egill er píanóleikari í
Fley tríói og Högni verður gestur
á tónleikunum. Mun hann meðal
annars syngja lög eftir Duke Elling-
ton og fleiri meistara. Ljósmynd/
Hari
djassperlur. „Þetta eru hefðbund-
in viðfangsefni djassleikara, þessi
klassísku lög og eitthvað til viðbót-
ar því. Högni mun syngja eitthvað
af þessum sígrænu perlum úr djass-
bókmenntunum, Duke Ellington og
slíka meistara,“ segir Egill.
Tónleikarnir fara fram utandyra
á Jómfrúartorginu á laugardag.
Þeir hefjast klukkan 15 og standa til
klukkan 17. Aðgangur er ókeypis.
Egill kveðst hlakka mikið til tón-
leikanna. „Ég hef oft spilað á Jóm-
frúnni og það er alltaf skemmtilegt.
Svo skemmir ekki fyrir að það er
spáð góðu veðri. Ég er þakklátur
fyrir að fá að vinna með þessum frá-
bæru tónlistarmönnum. Bæði þeim
Gunnari og Kjartani í hljómsveit-
inni en ekki síður Högna. Maður er
voða stoltur af syninum og ánægður
hvað hann hefur staðið sig vel.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Hannesarholt nú opið
virka daga frá 8 - 17 og
11-17 um helgar.
Tilvalið að hittast í
morgunmat eða í
vinsæla helgarbrönsinum.
BókmennTir BókaBæirnir ausTanFJalls
Fornbækur boðnar
upp í Hveragerði
Bókauppboð á fornbókum fer fram
í Austurmörk 23 í Hveragerði, húsi
leikfélagsins, á morgun, laugar-
daginn 27. júní, klukkan 14. Til-
efnið er opnun bókamarkaðarins
Bókabæirnir austanfjalls íHvera-
gerði, sem opinn verður í sumar.
Anna Birna Þráinsdóttir, Sunn-
lendingur með meiru, stjórnar
uppboðinu með sínum einstaka
hætti, að því er fram kemur í til-
kynningu.
Ýmsir kjörgripir verða á uppboð-
inu, meðal annars þessir: Harm-
saga ævi minnar eftir Birkiland,
Norsk lög Hrappseyjarprents frá
1779, Færeyingasaga frá 1832,
Saga Ólafs Tryggvasonar frá 1892,
Grallari frá 1739, Orðskviðasafn
Guðmundar á Staðastað frá 1809,
Hauksbók frá 1892, Íslenskir
sjávarhættir, Árituð Hvalasaga
Jóhannesar Kjarvals, Björn og
Sveinn eftir Megas, Enemond eftir
Dunganon, Kortasaga Íslands og
margt fleira.
Heildarlisti yf ir bækur sem
boðnir verða upp verður birtur á
heimasíðu Bókabæjanna austan-
fjalls bokabaeir.is
Markaðurinn verður opnaður í
dag, föstudag, klukkan 12 og verð-
ur opinn til 18. Bókamarkaðurinn
verður opinn allar helgar í sumar
frá klukkan 12-18 föstudaga, laug-
ardaga og sunnudaga. Honum lýk-
ur svo helgina 14-16 ágúst, á sama
tíma og bæjarhátíðin Blómstrandi
dagar verður haldin.
Norsk lög Hrappseyjarprents frá árinu
1779.
56 menning Helgin 26.-28. júní 2015