Fréttatíminn - 26.06.2015, Blaðsíða 60
Í takt við tÍmann Denise margrét Yaghi
Hittir Verslókrakkana á b5 og
Vesturbæingana á Prikinu
Denise Margrét Yaghi er 23 ára Vesturbæingur sem stundar samkvæmisdans
af miklum móð. Hún fæddist í Katar og á líbanskan föður og í sumar flýgur hún
um allan heim sem flugfreyja hjá WOW Air.
Staðalbúnaður
Ég versla mest í H&M, Monki, Zöru og
Urban, sem sagt mest í útlöndum. Ég
legg ekki í vana minn að missa mig í búð-
um, ég vel frekar færri og vandaðri flíkur
og á þær lengur í stað þess að kaupa
þúsund vörur í hverri ferð. Mér finnst
All Saints líka ótrúlega fín búð, hún er
eiginlega uppáhalds búðin mín, en ég hef
ekki alveg efni á að versla þar reglulega.
Ég reyni að blanda saman þægilegum og
fínum fötum – mér finnst gaman að vera
smá fín en er ekkert alltaf á pinnahælum.
Hugbúnaður
Mér finnst rosa gaman að fara í sund.
Vesturbæjarlaugin er í uppáhaldi en mér
finnst líka gaman að prófa nýjar laugar,
bæði úti á landi og í Reykjavík. Ég fer
svolítið á kaffihús. Mér finnst gaman að
fara í bókabúðirnar, Kaffi Vest er líka
skemmtilegt og mér þykir alltaf vænt um
Tíu dropa. Mér finnst alltaf æðislegt að
fara þangað og tengi það einhvern veginn
við jólin. Við stelpurnar erum byrjaðar að
fara í göngutúra á kvöldin og það er mjög
skemmtilegt. Mér finnst líka gaman að
fara í leikhús og er ágætlega dugleg að
gera það. Ég fer út að skemmta mér þó ég
drekki ekki. Á b5 hitti ég Verslókrakkana
og svo eru Vesturbæingarnir á Prikinu.
Þetta er góð blanda og stutt á milli. Ég
horfi ekki mikið á sjónvarpsþætti en
get þó mælt með Black Mirror sem er
klikkaður, breskur sálfræðitryllir. Frekar
ógeðslegt stöff.
Vélbúnaður
Ég á iPhone 5 en ég er ekkert brjálæðis-
lega mikið í símanum og er ekki með
mörg öpp. Ég nota samt Facebook og
finnst Instagram mjög skemmtilegt. Ég
er ekki á Twitter, ég er ekki svo kúl, en
það eru allir þar núna svo ég verð að fara
að bæta úr því.
Aukabúnaður
Ég bý ennþá heima og er því það heppin
að ég þarf ekki að elda. Uppáhaldsmat-
urinn minn er líbanskur og indverskur
matur en annars finnst mér allt gott. Ég
kaupi sjaldan skyndibita en nota frekar
hádegistilboðin og fer út að borða, til
dæmis á Ítalíu. Ég keyri um á Yaris sem
ég er með í langtímaláni frá vinkonu
sinni. Í sumar verður nóg að gera í vinnu
en ég fer þó í æfingabúðir til Englands í
ágúst. Ég var í Ástralíu allt síðasta sumar
að dansa. Ég get óhikað sagt að það sé
uppáhalds staðurinn minn og mig langar
mikið að fara þangað aftur.
Ljósmynd/Hari
SRI LANKA
PARADÍSAREYJAN
3. - 16. NÓVEMBER
Verð kr. 549.900.-
Innifalið í verði: Hálft fæði, flug, hótel, skattar, íslenskur fararstjóri og allar ferðir.
Hrífandi náttúra, einstök menning og fjölbreytt dýralíf sem
eiga varla sinn líkan, ævintýraleg upplifun í einstöku umhverfi.
Við kynnumst framandi og heillandi heimi sem tekur á móti
ferðalöngum með opnum örmum.
Hraðfréttamennirnir Fannar og Benedikt með Sölku Sól og fjórða aðila, ónafn-
greindri hænu.
rÚv LanD Lagt unDir fót
r ÚV tekur sumrinu fagnandi með Sumardögum þar sem Rás 2, fréttastofan og RÚV
leggja land undir fót. Sumardagar
hefjast 1. júlí og fram til 14. ágúst
sækja hraðfréttamennirnir Fannar
Sveinsson og Benedikt Valsson, auk
umsjónarmanna Virkra morgna og
fréttamanna RÚV, 13 bæjarfélög
víðs vegar um land.
Á miðvikudögum er hitað upp í höf-
uðborginni með léttum sumarþætti
í beinni útsendingu í umsjón Fann-
ars og Benedikts. Á fimmtudögum
er lagt af stað í ferðalag um landið.
Virkir morgnar eða Sumarmorgnar,
eins og þátturinn heitir á sumrin,
byrja dagskrána á nýjum stað á hverj-
um fimmtudagsmorgni. Að kvöldi
fimmtudags verða kvöldfréttir, eða
fréttainnslag, sendar út frá hjarta bæj-
arins og strax að þeim loknum taka
Fannar og Benedikt við og verða með
léttan viðtalsþátt þar sem íbúar bæjar-
félagsins verða teknir tali.
Á föstudagsmorgnum er nýtt bæj-
arfélag sótt heim. Virkir morgnar
koma sér fyrir og sjá um beina út-
sendingu frá Rás 2 frá bæjarfélag-
inu. Um kvöldið verða Fannar og
Benedikt með sjónvarpsþátt með
innslögum og viðtölum í beinni út-
sendingu frá staðnum.
Öll dagskrá RÚV mun litast af
þeim stað sem farið er á hverju
sinni. Síðdegisútvarpið verður
meðal annars í góðum tengslum
við ferðalangana.
Hraðfréttamenn og
fleiri á sumarralli
60 dægurmál Helgin 26.-28. júní 2015