Fréttatíminn - 26.06.2015, Blaðsíða 62
Ungir snillingar með
ókeypis tónleika
Ein kunnasta ungsinfóníuhljómsveit í
heimi, New England Conservatory Youth
Philharmonic Orchestra, heldur tónleika
í Eldborgarsal Hörpu á sunnudaginn
klukkan 17. Ókeypis er inn á tónleikana
og allir eru velkomnir en sækja þarf
miða í gegnum Miða.is. Í sveitinni eru
90 framúrskarandi tónlistarnemar á
aldrinum 14-18 ára. „Margir af meðlimum
sveitarinnar hafa síðar orðið með virtasta
tónlistarfólki heims, en á hverju ári sækja
um 1.000 manns um stöðu í hljómsveitinni
og því aðeins þeir bestu sem komast inn,“
segir Valdimar Hilmarsson sem aðstoðar
hljómsveitina á Íslandi.
Þekktir listamenn á
KEX hostel
Tíunda samsýning Gallerí Muses verður á
KEX hostel um helgina. Sýningin ber titilinn
Traveler – allt er afleiðing hreyfingar.
Opnun er á laugardag en sýningin verður
opin á sunnudaginn frá klukkan 10-22.
Listafólkið sem sýnir er: Margeir Dire,
Hugleikur Dagsson, Bergþór Morthens,
Sylvía Lovetank, Víðir Mýrmann, Georg
Óskar Giannakoudakis, Sævar Karl, Katrín
Matthíasdóttir, Ægir the Artist, Dagrún
Íris Sigmundsdóttir, Örn Tönsberg, Hertha
Maria Richardt Úlfarsdóttir, Eva Vestmann,
Arngrímur Sigurðsson, Harpa Einarsdóttir
„Ziska“ og Þorgrímur Andri Einarsson.
Við erum
búin að
setja niður
einhver
nöfn sem
við höfum
áhuga á.
Sjónvarp 60 Söngvarar keppa um að verða röddin
Íslensk útgáfa af
The Voice í loftið í haust
Sextíu söngvarar verða valdir til að taka þátt í íslenskri útgáfu sjónvarpsþáttarins The Voice
sem sýndur verður á Skjá einum í haust. The Voice er einn vinsælasti þáttur í heimi með yfir
500 milljónir áhorfenda og íslenska útgáfan verður stærsta verkefni Skjásins frá upphafi.
Íslensk útgáfa af hinum vinsæla sjónvarpsþætti The Voice fer í loftið í haust. Stóra spurningin hlýtur að vera hverjir setjast
í dómarasætin fjögur. Hér eru þau Blake Shelton, Pharrell Williams, Gwen Stefani og Adam Levine úr bandarísku útgáfu
þáttarins. Ljósmynd/NordicPhotos/Getty
v ið erum búin að vera eitt og hálft ár að undirbúa þetta verkefni og þátt-urinn fer í loftið í lok september,“
segir Pálmi Guðmundsson, sjónvarpsstjóri
á Skjáeinum.
Skjárinn hefur tryggt sér réttinn til að gera
íslenska útgáfa af sjónvarpsþættinum The
Voice sem er stærsti „format“-þáttur í heimi
með yfir 500 milljónir áhorfenda á heimsvísu.
Þátturinn hóf göngu sína í Hollandi árið 2010
en var fljótlega keyptur til NBC í Bandarík-
unum. The Voice er sýndur í 120 löndum og
Ísland verður 61. landið sem gerir sína eigin
útgáfu af þættinum.
„Ólíkt öðrum svona þáttum þá eru kepp-
endur valdir fyrirfram. Við þurfum að finna
60 frambærilega söngvara og við erum þegar
búin að ná í tæplega helminginn af þeim,“
segir Pálmi þegar hann er spurður um undir-
búninginn. Þátturinn verður eins og frum-
gerðin – fjórir dómarar munu sjá um að þjálfa
söngvarana og keppa sín í milli.
Pálmi segir að nú sé leitað að rétta fólkinu
til að setjast í dómarasætin en hver þeirra
verður með einn aðstoðarmann. „Við byrjuð-
um á því að kaupa formatið og leyfðum okkur
að leita að keppendum í leiðinni en nú tekur
við að ráða dómarateymið. Við erum búin
að setja niður einhver nöfn sem við höfum
áhuga á,“ segir Pálmi.
The Voice fer eins og áður segir í loftið í
lok september en úrslitin ráðast í desember.
„Við klárum fyrir jól en eftir áramót tekur
þriðja þáttaröðin af Biggest Loser við,“ segir
Pálmi en augljóst má vera að Skjárinn ætlar
sér stóra hluti á sjónvarpsmarkaði á næstu
misserum. Auk þessara tveggja stóru format-
þátta hefur stöðin tryggt sér sýningarrétt að
EM í fótbolta sem haldin verður í Frakklandi
næsta sumar.
Á næstunni á The Voice allan hug Pálma
enda í mörg horn að líta: „Þetta er stærsta
verkefni Skjásins frá upp-
hafi,“ segir Pálmi en
Saga Film mun sjá
um framleiðsluna.
Tekið er á móti
ábendingum um
vænlega þát t -
takendur í The
Voice á netfangið
thevoiceisland@
sagafilm.is.
Höskuldur Daði
Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Pálmi Guð-
mundsson,
sjónvarpsstjóri
á Skjáeinum.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Eldhús- og skolvaskar
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Bol-834 80x48x18cm þykkt 0,8mm
11.990
Bol-604 48x43x18cm
Þykkt stáls 0,8mm
7.790
(fleiri stærðir til)
Gua 539-1 með veggstál plötu,
grind fylgir, 1mm stál
16.990
Botnventill og
vatnslásar fylgja
öllum vöskum
CR Plast skolvaskur
55x34x21cm með botn-
ventli og vatnslás
8.590
Gua-543-1 vegghengdur,
1mm stál, einnig fáanlegur
í borð kr. 17.990
18.900
Mikið úrval af blöndunartækjum.
Á MÚRBÚÐARVERÐI
Flottir tónleikar í Gamla bíói
Íslenskir tónlistarmenn eru búnir að átta sig
á því að Gamla bíó er besti tónleikastaður
landsins um þessar mundir og keppast nú
við að bóka húsið. Að undanförnu hafa bæði
útgáfutónleikar Gísla Pálma og Ensímis verið
haldnir þar og nóg er fram undan. Á fimmtu-
dagskvöldið í næstu viku, 2. júlí, hertekur
hljómsveitin Samúel Jón Samúelsson Big
Band (SJSBB) Gamla bíó. Eins og kunnugt er leikur sveitin frumsamda fönktónlist sem
er undir áhrifum frá nígerísku Afróbíti, eþíópískum djassi, brasilískum sambatöktum,
bandarísku fönki og stórsveitardjassi – allt undir styrkri stjórn básúnuleikarans
Samma. Tónleikarnir hefjast klukkan 21 og miðasala fer fram á Miði.is. Í vikunni þar
á eftir, fimmtudagskvöldið 9. júlí, leiða saman hesta sína hljómsveitirnar Mammút og
Samaris. Báðar sveitir munu kynna nýtt efni. Miðasala fer fram á Tix.is. Laugardags-
kvöldið 11. júlí verður svo Kaleo með heimkomutónleika en sveitin hefur undanfarna
mánuði gert út frá Bandaríkjunum. Miðasala er á Miði.is.
TónliST Fimm þúSund miðar í boði á TónliSTarháTíð
Fleiri hljómsveitir en í fyrra á ATP
a ll Tomorrows Parties tón-listarhátíðin fer fram í þriðja skipti á Ásbrú í
næstu viku, 2.-4. júlí næstkom-
andi.
„Hátíðin verður með svipuðu
sniði og í fyrra. Aðalmunurinn er sá
að það verða fleiri hljómsveitir í ár,
bæði innlendar og erlendar,“ segir
Hildur Maral Hamíðsdóttir, kynn-
ingarstjóri hátíðarinnar. Þekktustu
tónlistarmennirnir sem munu koma
fram eru Iggy Pop, Belle and Se-
bastian, Public Enemy og Run the
Jewels.
„Líkt og í fyrra fer dagskráin
fram á tveimur sviðum en sú nýj-
ung verður í ár að tvö fyrirtæki
munu stýra dagskránni á Andrew
Theatre sviðinu, annars vegar út-
gáfufyrirtækið Bedroom Comm-
unity sem gerir út frá Íslandi og
hins vegar Rás 2. Fyrirtækin sjá
um sviðið sitt hvorn daginn og
velja hvaða f jórar hljómsveitir
koma fram.“ Tvær af þessum átta
hljómsveitum voru valdar úr hópi
hljómsveita sem eru ekki með
samning við plötufyrirtæki, og
segir Hildur það vera hluta af því
að virkja grasrótina í tónlistinni
hér á landi.
„Alls bárust yfir 150 umsóknir og
að lokum urðu hljómsveitirnar Ca-
terpillarmen og Ceasetone fyrir val-
inu,“ segir Hildur.
5000 miðar eru í boði á hátíðina
og býst Hildur við að sérstaklega Ís-
lendingarnir taki við sér síðustu dag-
ana fyrir hátíðina. Að auki er hægt
að nálgast dagpassa á hátíðina. Dag-
skráin hefst um eftirmiðdaginn alla
dagana og verður boðið upp á rútu-
ferðir fram og til baka milli Reykja-
víkur og Ásbrúar.
62 dægurmál Helgin 26.-28. júní 2015