Fréttatíminn - 26.06.2015, Blaðsíða 12
F
Fagnaðarefni er að samningar náðust í erfiðri
kjaradeilu hjúkrunarfræðinga og ríkisins áður
en til kasta gerðardóms kom, eins og orðið
hefði um mánaðamót samkvæmt ákvæðum
laga sem sett voru á verkfall stéttarinnar.
Samninganefnd Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga komst að þeirri niðurstöðu að gerð-
ardómur kæmist aldrei að betri niðurstöðu
en væri í samningnum, að gefnum þeim for-
sendum sem voru í lögunum. Jafnframt var
haft eftir formanni samninga-
nefndar ríkisins, að samning-
urinn væri í heildina innan þess
kostnaðarramma sem nefnd-
inni var settur.
Samningurinn við hjúkr-
unarfræðinga gildir til ársins
2019 og kemur í kjölfar samn-
inga við lækna frá liðnum vetri.
Þessar kjaradeilur reyndu mjög
á heilbrigðiskerfið, sem var við-
kvæmt fyrir vegna þess niður-
skurðar sem grípa varð til í
kjölfar efnahagshrunsins árið 2008. Að því
gefnu að hjúkrunarfræðingar samþykki gerð-
an samning má binda við það vonir að tími
gefist til að styrkja innviði heilbrigðiskerfis-
ins. Framlög til rekstrar og stofnkostnaðar
heilbrigðisstofnana hafa verið aukin og áfram
verður væntanlega haldið á þeirri braut. Sam-
staða er um það meðal þjóðarinnar að búa vel
að starfsmönnum heilbrigðiskerfisins hvað að-
stöðu og endurnýjun tækja varðar. Þá verður
hinn nýgerði samningur vonandi til þess að
þeir hjúkrunarfræðingar sem sagt hafa upp
störfum sjái sér hag í því að endurskoða þá
ákvörðun.
Enn er ósamið við aðildarfélög BHM, meðal
annars heilbrigðisstéttir innan vébanda banda-
lagsins. Verkfall þessara stétta hafði staðið á
þriðja mánuð þegar það var stöðvað með laga-
setningu. Mikil stífni virðist vera í deilunni.
Páll Halldórsson, formaður samninganefndar
BHM, sagði að loknum árangurslausum fundi
með samninganefnd ríkisins á þriðjudag að
samstaða væri um það innan bandalagsins að
kvika ekki frá þeirri kröfu að menntun skuli
metin til launa. Samningaleiðin með ríkinu
verði ekki farin miðað við núverandi stöðu og
á þeim forsendum sem ríkið setji fram. „Það á
þó aldrei að segja aldrei,“ bætti Páll við. Samn-
inganefnd BHM og ríkisins hafa enn tíma og
það sást á hröðum gangi hjá samninganefnd-
um hjúkrunarfræðinga og ríkisins á þriðjudag-
inn að sá dagur dugði til að ná niðurstöðu. Að
frágengnum samningum við stærstu verka-
lýðsfélögin á almennum vinnumarkaði og nú
við hjúkrunarfræðinga liggja meginlínur fyrir.
Þessar erfiðu kjaradeilur hafa sýnt fram
á, eins og áður hefur verið getið á þessum
vettvangi, að fyrirkomulag kjarasamninga
á opinbera markaðnum hefur gengið sér til
húðar. Kerfið er þungt í vöfum og erfiðara að
bregðast við en á almenna markaðnum. Mikil-
vægt er því að breyta lögum og straumlínu-
laga kerfið. Bent hefur verið á að þann galla að
opinber stéttarfélög hafa ekki rétt til að fresta
verkföllum. Í nýafstaðinni samningagerð á al-
menna markaðnum gerðist það oftar en einu
sinni að verkalýðsfélögin frestuðu boðuðum
aðgerðum sínum þegar gangur var kominn
í samningagerðina. Til slíkra viðbragða geta
opinberu félögin ekki gripið. Sama gildir um
möguleika ríkissáttasemjara til að grípa inn
í en Magnús Pétursson, fyrrverandi ríkis-
sáttasemjari, hefur bent á að á öllum Norður-
löndunum nema Íslandi hafi ríkissáttasemjari
heimild til að fresta boðuðum verkföllum í allt
að fimm vikur.
Önnur atriði hljóta að koma til skoðunar.
Viðskiptaráð greindi til dæmis frá niðurstöð-
um þróunarverkefnisins Virkur vinnustaður
fyrr í þessum mánuði en þær sýndu að veikindi
væru tvöfalt algengari hjá hinu opinbera en á
almennum vinnumarkaði. Þessi mismunur
veldur, að sögn ráðsins, um 11 milljarða árleg-
um aukakostnaði fyrir hið opinbera. Veikinda-
réttur er mun ríflegri hjá hinu opinbera en á
almennum vinnumarkaði. Viðskiptaráð sagði
það undirstrika mikilvægi þess að meta einnig
starfsréttindi eins og veikindarétt þegar launa-
kjör á opinberum og almennum vinnumarkaði
væru borin saman. Ráðið sagði enn fremur að
kjaraviðræðurnar við BHM sköpuðu tækifæri
til að samræma starfsréttindi á almennum og
opinberum vinnumarkaði: „Með afnámi um-
framréttinda opinberra starfsmanna væri unnt
að auka svigrúm til hækkunar grunnlauna
opinberra starfsmanna líkt og forsvarsmenn
bandalagsins hafa barist fyrir.“
Meginlínur liggja fyrir
Enn er tími fyrir BHM og ríkið
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR
Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Hösk-
uldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson
teitur@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
KOSTA
RÍKA
NÁTTÚRUPARADÍS SEM Á EKKI SINN LÍKA
5. - 19. SEPTEMBER
Verð kr. 565.940.-
Innifalið í verði: Flug, skattar, hotel, allar ferðir,
islenskur fararstjóri og aðgangur þar sem við á
Ferðaskrifstofan hefur nú hannað í samvinnu við
heimamenn sérstaka ferð sem saman-stendur
af upplifun af náttúru landsins og dýralífi þess.
Auk þess munum við kynnast fólkinu sjálfu
sem landið byggir. Ferðin er ætluð brosandi og
lifandi fólki sem vill upplifa ævintýri í ótrúlegu
umhverfi
niðurhal
einfalt
ótakmarkað
6.990
ljósleiðari ljósnet
vortex.is 525 2400
12 viðhorf Helgin 26.-28. júní 2015