Fréttatíminn - 26.06.2015, Blaðsíða 42
42 heilsutíminn Helgin 26.-28. júní 2015
Í Rekstrarlandi aðstoða sérfræðingar okkar við rétt val á hjálparvörum við
þvagleka en ávallt er um einstaklingsbundnar lausnir að ræða.
Eitt mesta úrval af hjálparvörum sem í boði er við þvagleka er frá hinum vandaða
danska framleiðanda Abena. Vörurnar fást í öllum stærðum og gerðum og búa yfir
rakadrægni sem hæfir hverju tilfelli fyrir sig þannig að auðvelt er að finna lausn
sem hentar hverjum og einum.
Abena vörurnar eru flestar umhverfisvænar og framleiddar með það að markmiði
að auka á þægindi notenda. Þær eru mjúkar viðkomu, þægilegar og umfram allt
lítt áberandi.
Skírteinishafar geta nú leitað beint til Rekstrarlands til þess að fá slíkar
vörur afgreiddar auk þess sem við sjáum um að koma vörunum heim til
notenda án aukakostnaðar.
Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100www.rekstrarland.is
Upplýsingar fást
í síma 515 1100 eða á
heilbrigdi@rekstrarland.is.
REKSTRARLAND býður upp
á hágæðavörur við þvagleka
sem samþykktar eru af
Sjúkratryggingum Íslands
Þetta er mikil
áskorun en
ég vil hvetja
kuldaskræfur,
vatnshrædda,
þaraklígjugjarna,
fólk sem er
hrætt við lífið
í sjónum, fólk
með stoðkerfis-
vandamál og
fólk sem glímir
við þunglyndi og
allskonar kvilla,
að gefa sjósundi
séns.
Í sjósundi leysast einhver gleði-hormón úr læðingi,“ segir Anna Ingólfsdóttir, sjósundsgarpur
með meiru. Anna er ein þeirra fjöl-
mörgu sundgarpa sem hittast reglu-
lega í Nauthólsvík til að leyfa sjónum
að styrkja bæði líkama og sál. „Kerfin
í líkamanum fara alveg á fullt við að
reyna að bjarga honum úr kuldanum
og mynda endorfín sem fylla mann
gleði sem læðist út í vitundina í heita
pottinum eftir sundið. Maður verður
algjörlega glaðvakandi og þessi líðan
endist manni alveg út daginn.“
Vandamálin hverfa í sjónum
Anna segist oft mæta því að fólk sé
hrætt við sjóinn en það sé óþarfi.
Kuldinn taki orku en sjórinn gefi
miklu meira til baka. „Fólki finnst
þetta svo yfirþyrmandi hugsun því
hún nær svo langt út fyrir radíusinn.
Og maður er auðvitað ótrúlega lítill
þegar maður byrjar að fara í sjóinn.
En þetta er alveg svo sterk náttúru-
upplifun sem fyllir mann af undrum
lífsins. Þetta er tenging við sjóinn,
jörðina, fuglana, vindana og sólina.
Mér finnst aldrei betra að fara í sjó-
sund en þegar einhver lífsverkefni
eru að trufla mig. Það er ekki hægt
að taka vandamálin með sér út í sjó.
Maður fer algjörlega inn í núið.“
„Á meðal okkar sem stundum
þetta eru til ótrúlegar sögur af bót
sem fólk fær á heilsunni með því að
stunda sjósund. Það er til dæmis
hægt að halda niðri verkjum vegna
stoðfkerfisvandamála og gigtar,
með því að stunda sjósund. Konur
með gigt segjast ekki þurfa að taka
lyf á meðan þær komi reglulega í
sjóinn. Þetta hefur auk þess mikil
áhrif á ónæmiskerfið og alla öndun
því öndunarvegurinn opnast algjör-
lega þegar maður er komin út í.“
Hvetur fólk með kvilla til að
prófa
Anna segir enn einn kostinn við sjó-
sundið sem heilsubót vera þann að
það sé ekki nauðsynlegt að kaupa
neinar græjur. „Það þarf ekkert
nema viljann til að byrja. Það er
tvennt sem byrjendur mega hafa
í huga og það er að koma mettur
og ekki að láta mana sig út í neitt.
Þetta er mikil áskorun en ég vil
Heilsa sterk náttúruleg upplifun
Sjósundið fyllir
mann gleði
Sjósunds- og sjóbaðsfélag Reykjavíkur hittist vikulega í Naut-
hólsvík og lætur gleðihormón leysast úr læðingi í heitum
pottum eftir kaldan sjóinn. Sundgarparnir segja sjóinn skola
burt jafnt líkamlegum sem andlegum kvillum. Áskorunin og
sterk náttúruupplifunin fylli mann gleði sem endist út daginn.
hvetja kuldaskræfur, vatnshrædda,
þaraklígjugjarna, fólk sem er hrætt
við lífið í sjónum, fólk með stoð-
kerfisvandamál og fólk sem glímir
við þunglyndi og allskonar kvilla,
að gefa sjósundi séns. Það er alltaf
gott veður í Nauthólsvík og ef það er
einhver þarna úti sem er hræddur
við að byrja eða er einn og langar
að prófa, þá er um að gera að hafa
bara samband við okkur í félaginu
og við leiðum fólk út í.“
Syndir fjórum til fimm sinnum
í viku
Ragnheiður Valgarðsdóttir, for-
maður Sjósunds- og sjóbaðsfélags
Reykjavíkur segir hvern sem er sem
er geta stundað sjósund. Meðlimir
félagsins eru um 200 og rúmlega
helmingurinn eru konur. „Við hitt-
umst að minnsta kosti einu sinni í
viku, en innan félagsins eru minni
hópar sem hittast misoft. Sjálf fer
ég þrisvar í viku í sjóinn yfir vet-
urinn en fjórum til fimm sinnum í
viku yfir sumarið,“ segir Ragnheið-
ur. „Stundum syndum við langar
vegalengdir en stundum hittumst
við bara til að baða okkur og hafa
það gaman saman. Við erum reglu-
lega með nýliðakynningu en áhuga-
samir geta haft samband við okkur
eða skoðað heimsíðuna; sjosund.is“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Matcha
orkuboltar
M atcha er japanskt grænt te í púðurformi sem er margfalt orkuríkara en
hefðbundið grænt te. Það er stút-
fullt af andoxunarefnum en virku
efnin í þeim eru flavoníð sem ver
frumur líkamans og vinnur gegn
öldrun og catechin sem talið er
hefta útbreiðslu krabbameins-
fruma, lækka blóðþrýsting, halda
blóðsykurmagni stöðugu og draga
úr líkum á blóðtappa. Matcha te-
duftið þarf ekki eingöngu að
drekka, það er einnig tilvalið í
bakstur. Hér má finna uppskrift
af dásamlega orkuríkum matcha
boltum.
Uppskrift:
1/2 bolli döðlur (steinlausar)
1/2 bolli möndlusmjör eða hakk-
aðar möndlur
2 ½ msk kakó
1 msk hunang eða hlynsýróp
1 tsk lífrænt vanilluduft
Salt á hnífsoddi
1 msk kakónibbur
Matcha te-duft til að velta upp úr
Kókosflögur til að velta upp úr
Aðferð:
Takið öll innihaldsefni nema Matcha
teduftið og blandið vel í mat-
vinnsluvél eða með töfrasprota.
Þegar deigið er orðið mjúkt skal
móta 12 litlar kúlur og strá svo
Matcha te-duftinu og kókosflög-
unum yfir til skiptis. Frystið að
lágmarki í 30 mínútur. Svo er bara
spurning hversu lengi þær endast í
frystinum?
Ragnheiður Valgarðsdóttir og Anna Ingólfsdóttir ásamt félögum sínum úr Sjósunds- og sjóbaðsfélagi
Reykjavíkur. Hópurinn hittist að minnsta kosti vikulega í Nauthólsvík. Mynd/Hari