Allt um íþróttir - 01.01.1951, Síða 9
úr vegi að nafngreina þá hér, sem
helzt kæmu til með að eiga rétt
til fararinnar. Af svigmönnunum
er keppandinn frá síðustu leikum,
Magnús Brynjólfsson, sjálfsagður.
Þá mundi Haukur Ó. Sigurðsson
frá ísafirði ganga næstur, tveir
Reykvíkingar og jafnvel Haraldur
Pálsson frá Siglufirði, eða alls
fimm talsins.
Stökkmenn koma varla aðrir til
greina en Siglfirðingamir Jónas
Ásgeirsson (keppti á síðustu leik-
um), Guðmundur Árnason og Ari
Guðmundsson. Sá síðastnefndi
dvelur í Noregi um þessar mundir
við nám í veðurfræði, og æfir stökk
þarlendis.
Göngumenn er nauðsynlegt að
senda og verður það í fyrsta skipti,
sem þeir mundu keppa erlendis.
Nóg er að senda tvo, og er Jó-
hann Strandamaður sjálfsagður í
samfylgd með Gunnari Péturssyni
frá ísafirði eða Jóni Kristjánssyni
úr Þingeyjarsýslu. Gunnar mun þó
vera sterkari göngumaður. —
Göngumennimir eiga margt eft-
ir að læra og einkum er nauð-
synlegt að þeir kynnist landslagi
því, sem venjulega er keppt í er-
lendis og ekki er finnanlegt á ís-
landi, en það er skóglendi.
Gaman hefði og verið að geta
sent keppendur í tvíkeppnina
(göngu og stökk), en þar eru án
efa mestir möguleikar fyrir okk-
ur að verða framarlega.
Fjárhagsörðugleikar.
Allt þetta er bundið þeim skil-
yrðum og því aðeins framkvæm-
anlegt, að ekki sé skortur á fé.
En því miður er það víst raunin,
og kemur nú til kasta Ólympíu-
nefndar að sjá um fjárhagshlið-
ina. Ekki má koma fyrir, að þátt-
töku okkar í þessum leikum verði
í nokkm ábótavant, og því verður
Ólympíunefndin að styrkja Skíða-
samband íslands í þessum efnum,
og semja áætlun um fjáröflun í
þessu skyni og gera báðum aðilj-
um vel Ijóst, hvað hægt er og má.
Allir þessir skíðamenn, sem
nefndir hafa verið, verða að eiga
kost á því að keppa í Noregi í
vetur, og undir góðri fararstjóm
ætti sú för að geta orðið íslandi
til sóma í hvívetna, jafnframt því,
sem hún mundi vera skíðamönn-
unum lyftistöng á næstu Ólympíu-
leikum.
Nú reynir á framtakssemi Skíða-
sambandsins og Ólympíunefndar,
og er það von allra velunnara
skíðaíþróttarinnar, að þessir aðil-
ar sjái fram úr örðugleikunum,
sem eru miklir og margvíslegir,
sér í lagi hvað f járhaginn snertir.
Magnús Brynjólfsson
IÞRÓTTIR
5