Allt um íþróttir - 01.01.1951, Blaðsíða 11

Allt um íþróttir - 01.01.1951, Blaðsíða 11
sinn. Þegar Vals-stúlkurnar hafa yfirbugað keppnisskjálftann, mega hin félögin vara sig á þeim. Allmargir áhorfendur voru að Hálogalandi á annan jóladag, en þeir voru orðnir hálfleiðir, því að keppnin var allt of langdregin, og er hætt við, að Ármenningar verði að finna upp annað fyrirkomulag, ef þeir ætla sér að halda jólamót aftur. Einstakir leikir fóru sem hér segir: Meistaraflokkur kvenna: Ármann—Valur 4:0. Meistaraflokkur karla: Valur—K.R. 8:6. Í.R.—Afturelding 22:8. Ármann—Víkingur 7:3. K.R.—Í.R. 8:6. Valur—Víkingur 10:2. Ármann—Afturelding 11:4. K.R.—Víkingur 6:4. Valur—Afturelding 10:4. Ármann—Í.R. 14:5. Til kaupenda. Þar sem pappír og allur annar kostnaður hefur hækkað mjög í verði, hafa útgef. séð sig tilneydda að hækka lausasöluverð ritsins í kr. 5.00. Árgangurinn hækkar ekki og er kr. 40.00 (12 blöð). Þeir áskrifendur, sem ekki hafa sent greiðslu II. árg. fyrir 1. febr. verður sent febrúarheftið í póst- kröfu. Útg. SPREYTTU ÞIG! Sá, sem getur svarað 8 spurn- ingum rétt, hefur góða þekkingu á íþróttum og íþróttamálum. 1. Hvað er drengjametið í 3 km. og hver á það? 2. Hver er form. Frjálsíþrótta- ráðs Reykjavíkur? 3. Hvaða félag er Reykjavíkur- meistari í 3. fl. karla í hand- knattleik? 4. Hvað hlaut Gunnar Huseby mörg prósent greiddra at- kvæða í atkvæðagreiðslunni um íþróttamann ársins? 5. Hvaða félag sigraði í Tjam- arboðhlaupinu s.l. vor? 6. Hvað hafa margir íslending- ar kastað sleggjunni yfir 40 metra? 7. í hvaða landi voru Vetrar- Ólympíuleikarnir haldnir ár- ið 1948? 8. Hver er íslandsmeistari í svigi? 9. í hvaða íþróttagrein keppir Bergur Bergsson aðallega? 10. Hvaða íslendingur var það, sem komst í aðalkeppnina á Ólympíuleikunum í Berlín 1936 og í hvaða íþróttagrein? Svör á bls. 29. Joe Louis vann Beshore á rot- höggi í 4. lotu í keppni þeirra ný- lega. Hann virðist vera að ná sér á strik aftur. IÞRÓTTIR 7

x

Allt um íþróttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.