Allt um íþróttir - 01.01.1951, Blaðsíða 36
hann, síðan Nordahl-bræðumir, en
í ár hefur fyrirliði landsliðsins,
Erik Nilsson frá Malmö, hlotið
hann. Hann hefur leikið með lands-
liðinu 37 sinnum síðan 1938 og var
einn af þeim. fáu þátttakendum í
heimsmeistarakeppninni í sumar,
sem einnig var með í þeirri III.,
1938.
Millivegalengdahlauparinn Ing-
var Bengtsson fór fyrir skömmu
til Nýja Sjálands til keppni, ásamt
Reiff, Bannister, Slijkhuis og Wint.
Þeir félagar munu dvelja í Christ-
church til 28. janúar, en vonast
einnig til að geta keppt í Ástralíu
og Ameríku.
Sovétríkin.
Á síðastliðnu ári settu
rússneskir sundmenn
alls 47 ný sundmet. —
Sum þeirra eru mjög góð og nærri
heimsmetinu. Virðast Rússar hafa
tekið miklum framförum í sundi.
Brasilía.
Stórkostlegur árangur
í þrístökki náðist fyrir
skemmstu í Sao Paulo,
þar sem Adhemar Ferreira da Silva
stökk 15.83 m., en aðeins Japan-
amir Tajima og Togami hafa
stokkið lengra (16,00—15,86).
Stökk da Silva voru: 14.71-óg,-
15,62-óg.-15,83. Annar í keppn-
inni varð Geraldo de Oliveira með
15,18 m.
da Silva hefur síðar gert ennþá
betur, þ. e. jafnað sjálft heimsmet-
ið með því að stökkva 16.00 m.
Á þessu sama móti stukku f jór-
ir menn yfir 1,90 í hástökki. 100 m.
vann Helio Continho da Silva (da
Silva virðist þar álíka algengt og
Guðmundur hér) á 10.6 sek., en
Roque vann 400 m. á 48.7 esk.
Ástralía.
Leslie McKeand, sá
sem var með 4. bezta af-
rek í þrístökki 1950,
fórst nýlega í bílslysi. Hann átti
bezt 15,35 m. og var 26 ára gamall.
Argentína.
í heimsmeistarakeppn-
inni í körfuknattleik, er
fór fram í Buenos Aires,
urðu þau óvæntu úrslit, að Argen-
tína vann U.S.A. í úrslitunum og
varð því heimsmeistari.
ísrael.
Stokkhólmsfélagið AIK
lék nokkra leiki í nóv.
gegn landsliðinu og ísra-
elsmeisturunum. Sigraði AIK
landsliðið með 1:2 og Makkabi,
meistarana, með 1:2.
Frakkland.
Meðan ítalir taka á
sig rögg og girða alveg
fyrir frekara aðstreymi
útlendinga til ítalskra knatt-
spyrnufélaga, hafa Frakkar, ef
svo má að orði kveða, opnað allar
flóðgáttir og streyma útlendingar
nú að þeim. Eftir misheppnaðar
samningaumleitanir við Legnano
á ítalíu, hefur danski leikmaður-
inn Poul Erik Petersen frá Köge
gert samning við Le Havre, og er
32
IÞRÓTTIR