Allt um íþróttir - 01.01.1951, Síða 38
d. kr. og byrjar að leika í Frakk-
landi um áramótin.
Hausttímabilinu lauk um miðj-
an desember og var staðan þá:
A.B. 8 6 1 1 21-7 13
Frem 9 4 3 2 17-13 11
B-93 9 4 2 3 18-13 10
A.G.F. 9 3 4 2 22-16 10
Köge 9 4 1 4 16-17 9
B-1903 8 4 0 4 13-10 8
K.B. 9 2 3 4 14-14 7
Esbjerg 9 3 1 5 14-23 7
B-1909 8 3 1 4 9-13 7
O.B. 8 1 2 5 5-21 4
Finnland.
Finnska ólympíunefnd-
in hefur nú ákveðið dag-
ksrá knattspymukeppni
Ólympíuleikanna 1952. Ekki er þó
víst, hvort sú tillaga hennar, að
ekki fái fleiri en 16 landslið að
taka þátt í leikjunum, fái sam-
þykki alþjóðlegra yfirvalda (FIFA
og CIO).
Á öðrum stað í ritinu (í bréfi B.
Weckmans) er getið um fyrsta at-
vinnuknattspyrnumann Finna,
Rytkönen. Um áramótin ákvað
knattspymusambandið að ógilda
samninginn, þareð R. yrði að leika
reynsluleik, en engin trygging
væri fyrir ráðningu, áhugamanns-
réttindin glötuð.
Júgóslavía.
Nú fyrir skemmstu
tókst landsliðinu að
halda jöfnu gegn enska
landsliðinu og verða þar með
fyrsta liðið utan Bretlandseyja,
sem hefur tekizt slíkt á enskum
velli. En hitt mun færri kunnugt,
að fyrir ellefu árum sendu Júgó-
slavar hið stjömumprýdda enska
landslið sigrað heim frá Belgrad,
eftir fyrsta landsleik ríkjanna.
Júgóslavía var í þann mund eitt af
litlu löndunum í evrópskri knatt-
spymu og vakti leikur þessi því
ekki minni athygli en sigur Banda-
ríkjanna í Brasilíu í fyrra. Af
enska liðinu þá má nefna Lawton,
Matthews, Mercer, Cullis, og enda
þótt bakvarðatvenndin væri fengin
frá Arsenal, þeir Male og Hapgood,
voru það útherjar Júgóslava, sem
skomðu mörkin (2:1).
í haust var lagður grundvöllur
að voldugum leikvangi í Belgrad,
og á hann að taka 200.000 áhorf-
endur, en fyrir er leikvangur fyr-
ir 65.000 manns. Til marks um
breytinguna, sem orðið hefur síð-
an fyrir stríð, má nefna, að á
leiknum gegn Englandi 1939 voru
aðeins 35.000 áhorfendur, en nú
er-65.000 áhorfenda leikvangur of
lítill.
Deildakeppninni lauk fyrir
nokkru og bar Hadjuk frá Split
sigur úr býtum, hlai^t 28 stig, en
næst urðu Belgrad-félögin Parti-
zan og Crevona Zvezda (Rauða
stjaman), bæði með 27 st.
Ítalía.
Áhyggjur forystu-
manna ítölsku knatt-
spymunnar af hinum
stöðuga straum útlendinga til ít-
alskra félaga fara sífellt vaxandi.
Þeir sjá sem er, að því lengur sem
aðstreymið helzt, því lengra líður
34
IÞRÓTTIR