Allt um íþróttir - 01.01.1951, Page 39
þar til ítalir geta náð svipaðri
stöðu í alþjóðaknattspyrnu og þeir
höfðu árin fyrir styrjöldina. Rúm-
lega 100 útlendingar leika nú á
Ítalíu og leika flestir í innherja-
stöðum, og hefur undanfarið ver-
ið erfitt að finna hæfa menn í
þær stöður í ítalska landsliðinu.
Hefur því verið gripið til þess ráðs
að skipa tríóið þremur miðfram-
herjum.
Á fundi ítalska knattspyrnu-
sambandsins í byrjun desember
var ákveðið, að leiktímabilið 1952
—3 megi 1. deildarliðin ekki hafa
fleiri en 2 útlendingaví liðum sín-
um og frá og með 1953—4 ekki
nema einn. Enn fremur var ákveð-
ið að fækka liðum í 1. deild, úr
20 í 18.
Svíin Lennart Skoglund er nú
tekinn að leika með Intemazionale
í Milano, en það félag greiddi hon-
um 166.000 s.kr. fyrir samninginn,
og er það meira en nokkur annar
útlendingur hefur fengið á Ítalíu.
Síðan hann kom hefur Inter kom-
izt í 1. sæti, vann 7 leiki í röð, en
gerði síðan jafntefli við Atlanta
(9.), 3:3 og Bologna (6.), 1:1.
Eftir 15. umferð er Inter með
25 stig, Milan 24, Juventus 23, og
Lazio 19.
Sænska liðið Norrköping kom
við í Róm á heimleið frá Afríku.
Lék það þar við Roma (20. í 1.
deild) og sigruðu Svíarnir með 1
marki gegn 0.
eOLi
efft mjjár
!
Þökk fyrir liðna árið.
Verzlunin Varmá.
Þökkum viðskiptin
á liðna árinu.
Verzl. Óli og Baldur.
eöLi
ecjt nýjár
I
Þökkum viðskiptin
á liðna árinu.
Ljósmyndastofa Vignis,
Samtún 40.
IÞRÓTTIR
35