Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2013, Blaðsíða 3

Skinfaxi - 01.08.2013, Blaðsíða 3
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 3 S á umbótaandi sem fylgdi ungmenna- félagshreyfingunni í upphafi og við höfum varðveitt í arni okkar, sem síðan kveikti þann andlega eld sem knúði fólkið, þjóðina, til framfara, er enn til staðar í hreyfingunni. Það eru einstaklingarn- ir sem eru gull þjóðanna og ungmenna- félögin kveiktu sigurvilja frelsisins. Það var mikil uppgötvun að skynja samtakamáttinn til að byggja upp en rífa ekki niður. Eignast keppnisandann, sjá framtíðina í hyllingum, þora áfram. Þannig voru verk ungmenna- félaganna fyrir eitt hundrað árum og enn er þetta verkefni okkar. Þjóðin eignaðist afreks- menn bæði í íþróttum, félagsmálum og ekki síst sjálfboðaliðann sem spyr ekki um daglaun að kveldi. Andi hreyfingarinnar var inni á hverju heimili og þar á hann að vera í dag. Við erum að baka köku sem er hverju barni og unglingi holl sem nesti inn í lífið. En hvernig hefur okkur tekist til? Okkar bíða ný afrek, ný verkefni, og við erum kannski aldrei jafn mikilvæg eins og nú þegar þjóðin þarfnast hugsjóna og einingar. Það er andi og vilji ungmennafélaganna sem dugði svo vel og dugar enn. Enn vinnum við í anda þessara markmiða en þar eru stærstu atriðin að vinna að líkamlegum og félagslegum þroska félagsmanna með því að gefa sem flestum kost á að taka þátt í heilbrigðu félagsstarfi. Við stöndum fyrir iðkun íþrótta og stuðlum að hollri hreyfingu og heilbrigðum lífsháttum með því að vinna gegn neyslu áfengis, tóbaks og annarra vímuefna. Við störfum í anda friðar og jafnréttis. Boð- um að nægjusemin og samhjálpin fylgist að. Erum bróðir og systir í hverjum leik og umber- um og hjálpum í kærleika. Eigum þann drengskap sem ungmennafélaginn ber inn á hvern þann vettvang sem hann starfar á. Viljum vera manneskjur með tilfinningar sem ganga hreint til verks. Vinnum að landgræðslu, skógrækt og umhverfisvernd og glæðum með þjóðinni tryggð og rækt við heimili sín, átthaga og ættjörð. Stuðlum að jafnvægi í byggð landsins og aukum fræðslu almenn- ings til að auðvelda hverjum og einum að taka afstöðu til þjóðnytjamála og vinna að framgangi þeirra. Það er óhætt að segja að tíminn er furðu- leg skepna. Stundum fer hann um mann mjúkum höndum en í annan tíma hristir hann mann og skekur eins og enginn sé morgun- dagurinn. Þannig hafa undanfarin ár verið. Ungmennafélagshreyfingunni ber „að kenna til í stormum sinnar tíðar“. Það er skylda hvers manns. Margur hefur lent í erfiðleikum, fólk hefur yfirgefið landið um sinn. Gjaldþrot hefur hent mörg fyrirtæki og almenningur hefur lent í efnahagslegum erfiðleikum. En við erum þó stödd á þeim stað að við getum vel við unað, höfum ekkert misst sem ekki er hægt að ná árangri í á ný. Eftir hrunið höfum við unnið markvisst að því að láta ekki deigan síga í því starfi sem er leiðarljós hreyfingarinnar og frekar reynt að bæta í jafnframt því sem við höfum velt við steinum til að finna hvar við gætum gert bet- ur án þess að skerða starfsgetu okkar og möguleika til að nýta tækifæri sem gætu skapast. 48. sambandsþing UMFÍ var haldið um miðjan október sl. og var það bæði starfsamt og málefnalegt. Mikill samhugur og samstaða kom fram í þingstörfum og þær fjölmörgu tillögur sem afgreiddar voru eru vörður hreyfingarinnar í störfum hennar næstu tvö árin. Eins og venjulega voru fjármálin rædd nokkuð á þinginu. Eitthvað er um að ein- staklingum innan hreyfingarinnar hafi verið tíðrætt um að rekstur ungmennafélagshreyf- ingarinnar hafi verið erfiður undanfarin ár. Eins og sést, þegar ársreikningarnir eru skoðaðir, er það alls ekki svo því að venju- bundinn rekstur hefur ætíð verið jákvæður. Hins vegar hafa komið til afskriftir sem komu til vegna fjármálakreppunnar sem hafa skekið þetta þjóðfélag svo sem öllum er kunnugt og hafa skekkt afkomumynd hreyfingarinnar. Því miður hafa einstaka menn verið haldnir Að loknu 48. sambandsþingi UMFÍ þeirri ranghugmynd að rétt sé að hafa þetta í hávegum og virðast telja það til bóta fyrir hreyfinguna eins og kreppan hafi hvergi komið við nema hér hjá okkur. Ef við hefðum haft allar upplýsingar um framtíðina á árinu 2008 hefðum við þá þegar getað afskrifað á einu bretti það tap sem hreyfingin varð fyrir vegna efnahagskoll- steypunnar. Ef tekið er út úr ársreikningum þetta áfall sæist með skýrum hætti að afkoma félagsins hefur ávallt verið heilbrigð. Við höfum nefnilega hagað okkur eins og hin hagsýna húsmóðir, að eyða ekki um efni fram. Það vita allir sem vilja vita að frá árinu 2008 hefur dregið úr opinberum fjárfram- lögum til ungmennafélagshreyfingarinnar í kjölfar efnahagshrunsins enda höfum við borið það án þess að kveina og kvarta. Ung- mennafélaginn er nefnilega þannig. Við höf- um hins vegar ekki látið deigan síga heldur tekist að auka aðrar tekjur töluvert ásamt því að arður okkar frá Íslenskri getspá hefur aukist jafnt og þétt milli ára. Lausafjárstaða hreyfingarinnar hefur alltaf verið jákvæð eins og veltufjárhlutfallið ber með sér. Því vísa ég á bug öllu tali um að efnahagur og skuldsetning hreyfingarinnar hafi verið eða sé mikil. Á þinginu kom skýrt fram að nú skal horft til framtíðar og að við ætlum að vera vakandi fyrir tækifærum morgundagsins. Ég hlakka til að starfa með nýkjörinni stjórn, starfsmönnum og ungmennafélögum um allt land að framgangi þeirra góðu verkefna sem fram undan eru hjá hreyfingunni. Framtíðin er björt hjá ungmennafélags- hreyfingunni enda framtíðarsýnin skýr. Við ætlum að starfa áfram samkvæmt þeim markmiðum og gildum sem ungmennafélags- hreyfingin hefur starfað eftir frá upphafi sem eru að rækta lýð og land og vinna með þau gildi sem eru undirstöðurnar í öllu starfi okk- ar og felast í ungmennafélagsandanum. Íslandi allt! Helga Guðrún Guðjónsdóttir Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ. Mynd að ofan: Stjórn og vara- stjórn UMFÍ 2013–2015 ásamt framkvæmda- stjóra. Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ:

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.