Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2013, Blaðsíða 14

Skinfaxi - 01.08.2013, Blaðsíða 14
14 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Guðjón Loftsson hefur tekið þátt í öll-um Landsmótum UMFÍ 50+ til þessa og á mótinu í sumar gerði hann sér lítið fyrir og sigraði í opnum flokki í púttkeppn- inni. Guðjón, sem er 78 ára, gamall, býr í Hveragerði, æfir pútt með eldri borgurum inni á veturna og svo fara þeir út á vorin til að leika sér til skemmtunar og heilsubótar. Tek þátt á meðan ég get „Ég ætla að taka þátt í Landsmótum UMFÍ 50+ á meðan ég get. Ég hef ofsalega gaman af þessu, þetta er mikil upplifun og andrúmsloftið einstaklega gott. Þarna kynnist maður nýju og góðu fólki,“ sagði Guðjón Loftsson að lokinni verðlauna- Guðjón Loftsson hefur tekið þátt í öllum þremur Landsmótum UMFÍ 50+: Mikil upplifun og andrúmsloftið einstaklega gott afhendingu í Leikskálum í Vík í Mýrdal. Guðjón segist æfa líka boccia sem að hans mati er líka mjög gefandi og skemmti- leg íþrótt. Guðjón hefur stundað golf- íþróttina í mörg ár en hefur dregið sig aðeins í hlé vegna bakmeiðsla. Púttið henti honum hins vegar vel. „Ég legg mikið upp úr því að hreyfa mig. Pútt og boccia er fínasta hreyfing en að auki fer ég í klukkustunda langa göngu- túra á hverjum morgni. Þetta skiptir miklu máli fyrir mig enda líður mér vel. Ég harð- ákveðinn í því að mæta á næsta mót sem verður á Húsavík að ári,“ sagði Guðjón. 3. Landsmót UMFÍ 50+ í Vík í Mýrdal: Guðjón Loftsson ásamt Helgu Guðrúnu dóttur sinni. Keppni utanvega á hjólreiðum á 30 km leið fór fram á Landsmóti UMFÍ 50+ í Vík í Mýrdal. Fyrstur í mark kom Þorsteinn Björn Einarsson á tæpri 1 klukkustund og 40 mínútum. Upphafspunktur leiðarinnar var við tjaldsvæðið í Þakgili en leiðin er á köflum erfið viðureignar og ekki nema fyrir þá sem eru í góðri þjálfun. Þorsteinn Björn hefur undanfarin tvö ár verið kjör- inn íþróttamaður USVS en hann á heima á Ytri-Sólheimum 2 í Mýrdal. Lilja Petra Ásgeirsdóttir keppti í hjólreiðum: Hressandi í morgunsárið og heldur mér gangandi Lilja Petra Ásgeirsdóttir, 52 ára gömul, hlaut annað sætið þegar hún kom í mark eftir þessa krefjandi leið, tíu mínútum á eftir fyrsta manni. Hún segist vera í góðri þjálfun en hún hjólar úr Mosfellsbænum niður á Landspítala 2–3 sinnum í viku, alls 34 km fram og til baka. Samtals tekur rúmar tvær klukkustundir að hjóla leiðina niður eftir og síðan upp eftir heim. Hún er lífeindafræðingur við sjúkrahúsið. Mæti fersk í vinnuna „Þetta heldur mér gangandi, svo hress- andi í morgunsárið og hreinsar hugann. Maður kemur ferskur í vinnuna og er svona heilt yfir í þokkalegu formi allt árið um kring. Það er færi allt árið og veturnir eru ekki þar undanskildir. Ef eitthvað er að færðinni skellir maður bara nagladekkjun- um undir,“ sagði Lilja Petra. Lilja Petra segist stunda dans og fjall- göngur og segir að sér líði bara ofsalega vel. „Ég ætla að stunda hreyfingu á meðan ég stend í lappirnar. Ég stefni að því að hjóla áfram á Landsmóti UMFÍ 50+ meðan það er í boði,“ sagði þessi hressa kona úr Mosfellsbænum. Göngum um Ísland Fjölskyldan á fjallið

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.