Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2013, Blaðsíða 31

Skinfaxi - 01.08.2013, Blaðsíða 31
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 31 Föstudagurinn fór í flakk Á föstudeginum var öllum hópnum smalað saman upp í rútu og dagurinn fór í flakk. Við heimsóttum m.a. Vadehavscentret í Ribe en Vadehavet er þjóðgarður sem 12 milljónir far- fugla heimsækja á hverju ári. Við fórum svo með vagni, sem dráttarvél dró, út í eyjuna Mandø. Þar eyddum við nokkrum klukkutím- um og fengum leiðsögn um bæinn og eyjuna. Ég hef samt ekki lent í svona mikilli rigningu síðan á Unglingalandsmóti UMFÍ á Stykkis- hólmi hér árið 2002. Rigningin setti strik í reikninginn og var því leiðsögninni hætt snemma og við söfnuðumst saman á veit- ingastað bæjarins og drukkum heitt kakó. Við þurftum nefnilega að bíða eftir að vagn- inn gæti lagt aftur af stað yfir, það er aðeins hægt að komast milli eyjar og lands þegar er fjara. Kosið var um bíómynd til að horfa á eftir kvöldmatinn svo að kvöldið var rólegt og notalegt. Verkefnastjórnun Á laugardeginum voru svo fyrirlestrar sem fjölluðu um verkefnastjórnun og hvernig skipuleggja skuli verkefni. Hreyfivikan var notuð sem dæmi og var hún í rauninni hálf- gerður rauður þráður út alla vikuna en hún var mikið notuð í tengslum við æfingar sem við þurftum að leysa. Eftir hádegi var farið í samskiptatækni og virka hlustun. Um kvöldið var svo lokakvöldverðurinn, hamborgarhryggur og flottheit. Búið var til langborð með fallegum skreytingum. Hver og einn fékk ákveðið hlutverk á meðan matn- um stóð, en undir diskunum hjá hverjum og einum var búið að koma fyrir litlu blaði þar sem var búið að skrifa lýsingu á ákveðnu hlut- verki. Mitt hlutverk var t.d. að stela mat af diskum þeirra sem sátu nálægt mér, aðrir þurftu að halda ræðu á 20 mínútna fresti á meðan aðrir gáfu fólki við borðið reglulega knús. Fræðandi og skemmtilegt Á sunnudeginum var frekar erfið kveðju- stund sem að lauk með hópknúsi, rútan kom og náði í okkur um eittleytið og keyrði okkur á flugvöllinn í Billund. Þar fóru flestir í flug en við Íslendingarnir ásamt Lindu frá Noregi átt- um ekki flug fyrr en seint um kvöldið og eyddum við því deginum í Legolandi, en ekki hvað? Fluginu okkar heim til Íslands seinkaði svo aðeins svo við eyddum dágóðum tíma á flugvellinum í Billund en komumst á endan- um heim til Íslands. Þessi vika var rosalega fræðandi og skemmtileg. Ég vil bara hvetja alla til að kynna sér NSU, Leiðtogaskólann, sem og Evrópu unga fólksins. Það er svo margt snið- ugt í boði og svona námskeið eru ómetanleg reynsla sem mun nýtast manni í framtíðinni. Sandra María Ásgeirsdóttir, framkvæmdastýra UÍA. Landsmót UMFÍ 50 + verður haldið á Húsavík 20.-22. júní 2014. Ætlar þú ekki að mæta?

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.