Skinfaxi - 01.08.2013, Blaðsíða 38
38 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Íslandsmót FÁÍA 60 ára og eldri í pútti
fór fram í Nesi í Reykholtsdal
Mynd að ofan: Þrír efstu í karla-
flokki, Arelíus Harðarson, Berg-
steinn Pálsson og Sigurður Á.
Finnbogason.
Mynd til hægri: Sveit FaMos sem
sigraði í sveitakeppninni.
Íslandsmót Félags áhugafólks um íþróttir aldraðra, FÁÍA, 60 ára og
eldri í pútti fór fram í byrjun septem-
ber í Nesi í Reykholtsdal í Borgarfirði.
Skráðar voru 16 sveitir en til leiks
mættu 13. Keppt var á tveimur níu
holu völlum og spilaðir tveir hringir
á hvorum velli 4 x 9, alls 36 holur.
Undirbúningur og framkvæmd öll
var í höndum félaga eldri borgara í
Borgarbyggð.
Úrslit í mótinu urðu eftirfarandi:
Í kvennaflokki sigraði Jytta Juul, Borg-
arfirði, á 74 höggum, Þórey S. Guðmunds-
dóttir, Reykjavík, varð í öðru sæti á 75
höggum og í þriðja sæti lenti Ólafía Hrönn
Ólafsdóttir, Garðabæ, á 78 höggum.
Í karlaflokki bar Bergsteinn Pálsson,
Mosfellsbæ, sigur úr býtum á 68 höggum,
Arelíus Harðarson, Hafnarfirði, varð annar
á 69 höggum og Sigurður Á. Finnboga-
son, Kópavogi, varð í þriðja sæti á 69
höggum.
Í sveitakeppninni sigraði FaMos úr Mos-
fellsbæ á 207 höggum, FebH, Hafnar-
fjörður hafnaði í öðru sæti á 215 höggum
og í þriðja sæti lenti Feb-Gullsmára,
Kópavogi á 216 höggum.
Velkomin á 17. UNGLINGALANDSMÓT UMFÍ
á Sauðárkróki verslunarmannahelgina
1.-3. ágúst 2014
Skagfirðingar bjóða ykkur velkomin á skemmtilegasta frjálsíþróttavöll landsins
þaðan sem aðeins er steinsnar í knattspyrnuvelli, íþróttahús, sundlaug,
golfvöll, reiðhöll og aðstöðu fyrir allar aðrar keppnisgreinar,
auk þess sem tjaldsvæði eru í stuttu göngufæri.
www.visitskagafjordur.is
Það verður kátt á Króknum
N
Ý
PR
EN
T
eh
f.