Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2013, Blaðsíða 12

Skinfaxi - 01.08.2013, Blaðsíða 12
12 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Dagana 7.–9. júní sl. var 3. Landsmót UMFÍ 50+ haldið í Vík í Mýrdal. Móts- haldari var Ungmennasamband Vestur- Skaftafellssýslu, en undirbúningur fyrir mótið stóð yfir í nokkra mánuði. Mótshald- ið allt gekk eins og fyrirfram var áætlað og ekkert stórvægilegt kom upp sem raskaði dagskrá á einn eða annan hátt. Aðstaðan til keppni í Vík var öll til fyrirmyndar. Keppt var í 16 keppnisgreinum. Mikið var lagt upp úr fræðslu um heil- brigði og hollustu á mótinu. Boðið var t.d. upp á heilsufarsmælingar sem alltaf eru jafnvinsælar. Mótið í Vík sýnir að Lands- mót UMFÍ 50+ er komið til að vera. Kepp- Hafsteinn Óskarsson gat sér gott orð sem frjálsíþróttamaður hér á árum áður. Hafsteinn hafði stefnt að því um hríð að taka þátt í Landsmóti UMFÍ 50+ og það varð úr að hann skellti sér til Víkur. Hafsteinn tók þátt í kastgreinum og stóð sig með prýði eins og við var að búast. „Mér finnst frábært að vera með og gaman að sjá að þetta framtak skuli ganga vel eins og raun ber vitni. Þessi mót hljóta að eiga góða framtíð fyrir sér og gaman er að sjá hvað þátttakendur eru ánægðir. Hafsteinn Óskarsson frjálsíþróttamaður: Áhugi kviknar eftir að hafa keppt á fyrsta mótinu í Vík Aðalatriðið í mínum huga er ekki keppnin sjálf heldur að hitta fólk og eiga góða stund með því,“ sagði Hafsteinn Óskars- son. Fljótt að fyrnast - Býrðu ekki ennþá að þeirri hreyfingu sem þú fékkst þegar að þú varst yngri? „Jú, en það er samt ansi fljótt að fyrnast þegar maður heldur því ekki við. Það verð- ur að passa upp á að halda áfram að hreyfa sig þegar maður eldist. Það er nefnilega erfitt að byrja aftur ef maður stoppar of lengi.“ Hafsteini fannst þörf fyrir að koma svona móti á laggirnar. Að hans mati setur það réttan anda í iðkunina. Í honum er fólgið er að hreyfa sig og taka þessu ekki of hátíðlega en vera samt í keppni. Það er ákveðin gleði að vera að keppa. „Það tengir fólk saman en á þeim stutta tíma sem ég var í Vík hitti ég marga gamla félaga sem langt er síðan ég hef séð. Ég hef mikinn hug á því að mæta aftur að ári. Það kviknar áhugi eftir að hafa komið hingað til Víkur,“ sagði Hafsteinn Óskars- son. Sigurður Guðmundsson, framkvæmdastjóri Landsmóts UMFÍ 50+: Mótin eiga bara eftir að vaxa og dafna endur og gestir skemmtu sér konunglega þrátt fyrir að nokkuð hafi rignt á keppend- ur og gesti. Ánægð með þátttökuna „Við vorum sérlega ánægð með það hvað mótið gekk vel í Vík. Veðurguðirnir hefðu getað verið okkur hliðhollari en þátttakendur og gestir létu það ekki á sig fá, nutu dvalarinnar og heilt yfir erum við ánægð með þátttökuna í mótinu,“ sagði Sigurður Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Landsmóta UMFÍ 50+. Sigurður sagði að tímaáætlun mótsins hefði staðist. Framkvæmdaaðilar hefðu einnig verið ánægðir með hvað utanvega- hlaupið hefði gengið vel en þarna hefði verið um að ræða nýtt hlaup. Hlaupið var úr Reynisfjöru, yfir fjallið og inn í bæinn. Sigurður sagðist ekki verða hissa á því þótt þetta hlaup yrði árlegur viðburður hér eftir. „Það er gaman að sjá hvernig þessi mót hafa þróast með jákvæðum hætti og núna horfum við full tilhlökkunar til næsta móts sem haldið verður á Húsavík. Við vonumst til að sjá alla þá sem voru á mótinu í Vík á Húsavík næsta sumar. Gaman væri að sjá ný andlit en þessi mót eiga bara eftir að vaxa og dafna með hverju árinu,“ sagði Sigurður í samtali við Skinfaxa. 3. Landsmót UMFÍ 50+ í Vík í Mýrdal:

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.