Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2013, Blaðsíða 35

Skinfaxi - 01.08.2013, Blaðsíða 35
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 35 sagði Gummi. Hann segir að líkamlegur þroski hafi haft mikið að segja um það hvaða stöðu hann spilaði. Gummi átti mjög gott tímabil með ÍBV 2012 og fékk m.a. viðurkenningar fyrir frammistöðu sína. Erlend lið veittu honum athygli og sendu njósnara til að fylgjast með honum. Norska úrvalsdeildarliðið Sarpsborg 08 hafði síðan samband við ÍBV eftir tímabil- ið og er skemmst frá því að segja að Gummi gekk til liðs við félagið í nóvember 2012. Hann fór fyrst út í fjóra daga, æfði tvisvar með lið- inu og lék einn æfingaleik. „Ég hef stefnt að atvinnumennsku alla tíð og því var þetta mjög mikilvægt fyrir mig. Sarpsborg 08 er passlega stór klúbbur fyrir mig til að byrja í atvinnumennsku og svo spila þeir líka góðan fótbolta,“ sagði Gummi. „Ég skrifaði undir þriggja ára samning í nóvember og fór svo út til Noregs í byrjun janúar á þessu ári.“ Æfum miklu meira og tempóið er hærra Sarpsborg 08 var formlega stofnað árið 2008 eftir að IL Sparta og Sarpsborg FK voru sameinuð í Sarpsborg 08. Í dag er félagið mjög vel skipulagt og „allur rekstur eftir bók- inni“, eins og Gummi segir. Félagið komst upp í efstu deild (Tippeligaen) 2011 en féll sama ár. Árið eftir vann það sig aftur upp og spilar því í efstu deild þetta tímabilið. Sarpsborg er 55.000 manna „rólegur bær“, eins og Gummi segir, sunnarlega í Noregi. Þangað er um klukkustundar akstur suður frá Osló og um 15 mínútur tekur að aka í austur til Svíþjóðar. Bærinn er stundum kall- aður „Solbyen“ vegna þess að þar eru flestir sólardagar í Noregi og sumrin frábær. Gummi segir að það sé ólíku saman að jafna að spila og æfa sem atvinnumaður í norsku deildinni eða sem áhugamaður á Íslandi. Hann æfir miklu meira og segir að tempóið í norsku deildinni sé hærra. Þar spili líka margir virkilega góðir leikmenn eins og hann orðar það og þeir séu fleiri en á Íslandi. Svo spila norsku liðin 30 leiki á tímabilinu meðan þau íslensku spili 22. „Áhuginn á fót- boltanum er meiri í Noregi en á Íslandi og fleiri sem koma á leikina. Yfirleitt eru um 4.000 áhorfendur á heimaleikjum okkar og svona 8–9.000 hjá stærri liðunum og stund- um upp í 15.000. Svo er einstaka leikur þar sem áhorfendur eru enn fleiri. Við spiluðum t.d. 100 ára afmælisleik gegn Vålerenga, sem við töpuðum 5:3, en á honum voru um 25.000 áhorfendur. Eins var leikur gegn Rosenborg 16. maí, daginn fyrir þjóðhátíðardag Norð- manna, mjög skemmtilegur. Þar töpuðum við 2:4 fyrir framan um 24.000 áhorfendur sem var reyndar nokkuð svekkjandi því við áttum góðan leik og alveg skilið að fá meira út úr leiknum.“ Spilaði sig strax inn í hjörtu Sarpsborgara Gumma hefur gengið mjög vel með liði Sarpsborgar það sem af er þessari leiktíð. Hann hefur spilað nánast alla leiki liðsins og náð að skora þrjú mörk í 28 umferðum. Gummi spilar á miðjunni í treyju númer 8, en á heimasíðu félagsins er hann kallaður Gudi eða Thorarinsson. Þar segir enn fremur að hann hafi strax frá byrjun spilað sig inn í hjörtu Sarpsborgara, sé útsjónarsamur og tekniskur leikmaður með magnaðan vinstri fót. „Leikstíll Sarpsborgar hentar mér mjög vel,“ segir Gummi. „Við notum mikið stuttar sendingar á milli manna og boltinn er látinn ganga á jörðinni. Það má segja að æfingarn- ar gangi út á endalausar sendingar. Okkur gekk vel í deildinni til að byrja með, en síðan kom átta leikja taphrina sem við höfum verið að reyna að snúa við,“ segir Gummi. Tveir Íslendingar eru hjá Sarpsborg auk Gumma, en það eru þeir Haraldur Björnsson, markvörður úr Val, og Þórarinn Ingi Valdimars- son, vinstri kantmaður, sem lék með Gumma í ÍBV. Þeim hefur báðum gengið ágætlega. Haraldur hefur reyndar átt við meiðsli að stríða og var lánaður til 1. deildarliðs Fredrik- stad í sumar. Frábær ferill með yngri landsliðum Íslands Gummi hefur átt frábæran feril með yngri landsliðum Íslands. Hann lék 5 landsleiki með U17 ára liðinu, 13 með U19 ára liðinu og þegar þetta er skrifað hefur hann spilað 8 leiki með U21 árs liðinu. Undanfarið hefur hann tekið þátt í undankeppni EM 2015 með U21 árs landsliðinu. Strákunum hefur gengið mjög vel og þeir eru þegar þetta er skrifað í næst efsta sæti riðilsins með 12 stig eftir fimm leiki. Þess má geta að í U21 árs landsliðinu með Gumma er Jón Daði Guðbjörnsson, félagi hans og jafnaldri frá Selfossi, en hann fór út í atvinnu-mennsku á sama tíma og Gummi og leikur með Viking í Stafangri. „Þetta er mjög gott lið með toppstráka,“ segir Gummi um U21 árs liðið. „Stemningin er líka góð og þjálfararnir, Eyjólfur og Tómas Ingi, hressir og skemmti- legir.“ Gummi segist klárlega stefna á að komast í A-landslið Íslands, það hafi verið draumur sinn lengi. Vonandi fyrsta skrefið á ferlinum Það er töluvert mál fyrir ungan mann að halda út fyrir landsteinana í atvinnumennsku í knattspyrnu. Gummi segir að atvinnu- mennskan hjá Sarpsborg 08 sé vonandi fyrsta skrefið á ferli sínum. Draumurinn sé að taka síðar stærra skref og spila með stærri klúbbi fyrir framan fleiri áhorfendur eins og t.d. í Hollandi eða jafnvel Englandi. Svo er aldrei að vita hvað getur gerst síðar. Grípur í gítarinn í frístundum og semur lög Gummi fór að ráði föður síns og kláraði stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Suðurlands áður en hann fór út í atvinnumennskuna. Segir hann að það sé gott að eiga það í bak- höndinni síðar meir. Í FSu var Gummi töluvert viðloðandi tónlist, líkt og Ingó bróðir hans, og vann m.a. söngvakeppni skólans. Hann segist oft grípa í gítarinn og semja lög þegar hann á frí frá fótboltanum. Annars er dæmi- gerður dagur hjá Gumma í atvinnumennsk- unni þannig að hann borðar morgunmat um kl. 8:30 og er mættur á æfingu kl. 9:00. Æfing- in stendur venjulega í 1–1½ tíma eða fram að hádegismat sem er um kl. 12:00. Að hon- um loknum er hvíld til kl. 15:00, en þá er seinni æfing dagsins. Hún er yfirleitt léttari og stendur í rúman klukkutíma. Prógram dagsins er því yfirleitt búið um kl. 17:00. Þá kíkja menn gjarnan á Facebook, horfa á sjónvarpið eða sinna áhugamálum sínum. Leikmenn hafa gert ýmislegt saman eins og t.d. að kíkja á veðreiðar, prufukeyra BMW-bíla og farið í GoCart. Stundum eru líka samveru- stundir með styrktaraðilum og stuðnings- mönnum liðsins. Skinfaxi þakkar Gumma fyrir viðtalið sem fór fram í bókasafninu á Selfossi einn góðan haustdag í september þegar hann var í heim- sókn á Selfossi hjá foreldrum sínum í tengsl- um við landsleik með U21 árs landsliðinu. Jafnframt er honum óskað áframhaldandi góðs gengis á fótboltavellinum. Viðtal: Örn Guðnason, Selfossi „Leikstíll Sarps- borgar hentar mér mjög vel.“ Við notum mikið stuttar sendingar á milli manna og boltinn er lát- inn ganga á jörðinni.“ „Ég hef stefnt að atvinnu- mennsku alla tíð og því var þetta mjög mikilvægt fyrir mig.“

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.