Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2013, Blaðsíða 24

Skinfaxi - 01.08.2013, Blaðsíða 24
24 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands H reyfivika, sem íþróttafélagið Höttur og sveitarfélagið Fljótsdalshérað hélt utan dagana 7.–13. október sl., hefur hlotið verðlaun sem eitt besta verk- efnið í evrópsku „Move Week“-herferðinni. Tekið var eftir samvinnu ólíkra hópa í sam- félaginu sem lögðust á eitt til að stuðla að aukinni hreyfingu. Allar deildir Hattar voru með opnar æfingar „Við vorum með þegar vikan var haldin í fyrsta sinn í fyrra og auglýstum þá starf okkar í samstarfi við sveitarfélagið. Það var tekið eftir samvinnunni og hvatning- unni til almennrar hreyfingar í samfélag- inu,“ segir Davíð Þór Sigurðarson, formað- ur Hattar, sem stýrði verkefninu á Fljóts- dalshéraði. „Tilgangur vikunnar var að vekja athygli á því skipulagða starfi sem er til staðar í samfélaginu og virkja fólk til þátttöku í því. Við vonuðumst til að fá fleiri inn í okkar starf, jafnt börn sem fullorðna,“ segir Davíð. Allar deildir Hattar stóðu til dæmis fyrir opnum æfingum þar sem gestir fengu án endurgjalds að prófa viðkomandi grein. Fleiri íþróttafélög, stofnanir, fyrirtæki, félaga- samtök, svo ekki sé minnst á sveitarfélag- ið sjálft, tóku virkan þátt í vikunni sem lauk með opnum degi í Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum þar sem sjálfur Íþróttaálfur- inn kom í heimsókn. Auðvelt en ekki sjálfgefið að fá ólíka aðila með Það er þetta samstarf sem vakið hefur athygli út fyrir landsteinana en Hreyfivik- an á Fljótsdalshéraði er eitt af níu verkefn- um sem hljóta verðlaun Move Week í ár fyrir samvinnu ólíkra aðila innan sveitar- félags. „Ég ímynda mér að það sem veki athygli úti í heimi sé hversu auðveldlega hægt er að tengja saman undir einum hatti aðila eins og sveitarfélag, skóla, íþróttahreyf- ingu, félög, verslanir og hópa. Í sjálfu sér er það rétt. Það er samt ekkert sjálfgefið að svona margir og ólíkir aðilar bregðist við með þessum hætti. Það er mikill styrkleiki fyrir samfélög þar sem þetta tekst,“ segir Óðinn Gunnar Óðinsson, atvinnu-, menningar- og íþróttafulltrúi Fljótsdalshéraðs. „Það eru ýmis verkefni í gangi sem eru til þess hugsuð að hvetja til hreyfingar. Sveitarfélagið hefur reynt að taka þátt í þeim eða hvetja til þátttöku. Með Hreyfi- vikunni gafst okkur tækifæri til að vinna verkefnið á okkar eigin forsendum. Margir fjölbreyttir mögu- leikar í boði Það sem mér fannst athyglisverðast, þegar farið var að undirbúa Hreyfivikuna, var hvað allir voru jákvæðir og tilbúnir að vera með. Eins hve margir og fjölbreyttir möguleikar voru í boði hér hjá okkur. Allir Hreyfivika á Fljótsdalshéraði hlaut alþjóðlega viðurkenningu þeir sem voru með að þessu sinni eiga þakkir skildar. Skemmtilegast þegar marg- ir koma saman til að vinna Davíð segir viðurkenninguna hafa komið skemmtilega á óvart. „Við eigum ekki hug- myndina að vikunni en við gripum hana á lofti og settumst niður saman. Það er það skemmtilegasta, að menn komi saman til að vinna en séu ekki hver í sínu horni.“

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.