Skinfaxi - 01.08.2013, Page 24
24 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
H
reyfivika, sem íþróttafélagið Höttur
og sveitarfélagið Fljótsdalshérað
hélt utan dagana 7.–13. október sl.,
hefur hlotið verðlaun sem eitt besta verk-
efnið í evrópsku „Move Week“-herferðinni.
Tekið var eftir samvinnu ólíkra hópa í sam-
félaginu sem lögðust á eitt til að stuðla að
aukinni hreyfingu.
Allar deildir Hattar voru
með opnar æfingar
„Við vorum með þegar vikan var haldin
í fyrsta sinn í fyrra og auglýstum þá starf
okkar í samstarfi við sveitarfélagið. Það
var tekið eftir samvinnunni og hvatning-
unni til almennrar hreyfingar í samfélag-
inu,“ segir Davíð Þór Sigurðarson, formað-
ur Hattar, sem stýrði verkefninu á Fljóts-
dalshéraði.
„Tilgangur vikunnar var að vekja athygli
á því skipulagða starfi sem er til staðar í
samfélaginu og virkja fólk til þátttöku í því.
Við vonuðumst til að fá fleiri inn í okkar
starf, jafnt börn sem fullorðna,“ segir Davíð.
Allar deildir Hattar stóðu til dæmis fyrir
opnum æfingum þar sem gestir fengu án
endurgjalds að prófa viðkomandi grein.
Fleiri íþróttafélög, stofnanir, fyrirtæki, félaga-
samtök, svo ekki sé minnst á sveitarfélag-
ið sjálft, tóku virkan þátt í vikunni sem lauk
með opnum degi í Íþróttamiðstöðinni á
Egilsstöðum þar sem sjálfur Íþróttaálfur-
inn kom í heimsókn.
Auðvelt en ekki sjálfgefið
að fá ólíka aðila með
Það er þetta samstarf sem vakið hefur
athygli út fyrir landsteinana en Hreyfivik-
an á Fljótsdalshéraði er eitt af níu verkefn-
um sem hljóta verðlaun Move Week í ár
fyrir samvinnu ólíkra aðila innan sveitar-
félags.
„Ég ímynda mér að það sem veki athygli
úti í heimi sé hversu auðveldlega hægt er
að tengja saman undir einum hatti aðila
eins og sveitarfélag, skóla, íþróttahreyf-
ingu, félög, verslanir og hópa. Í sjálfu sér
er það rétt.
Það er samt ekkert sjálfgefið að svona
margir og ólíkir aðilar bregðist við með
þessum hætti. Það er mikill styrkleiki fyrir
samfélög þar sem þetta tekst,“ segir Óðinn
Gunnar Óðinsson, atvinnu-, menningar-
og íþróttafulltrúi Fljótsdalshéraðs.
„Það eru ýmis verkefni í gangi sem eru
til þess hugsuð að hvetja til hreyfingar.
Sveitarfélagið hefur reynt að taka þátt í
þeim eða hvetja til þátttöku. Með Hreyfi-
vikunni gafst okkur tækifæri til að vinna
verkefnið á okkar eigin forsendum.
Margir fjölbreyttir mögu-
leikar í boði
Það sem mér fannst athyglisverðast,
þegar farið var að undirbúa Hreyfivikuna,
var hvað allir voru jákvæðir og tilbúnir að
vera með. Eins hve margir og fjölbreyttir
möguleikar voru í boði hér hjá okkur. Allir
Hreyfivika á Fljótsdalshéraði
hlaut alþjóðlega viðurkenningu
þeir sem voru með að þessu sinni eiga
þakkir skildar.
Skemmtilegast þegar marg-
ir koma saman til að vinna
Davíð segir viðurkenninguna hafa komið
skemmtilega á óvart. „Við eigum ekki hug-
myndina að vikunni en við gripum hana á
lofti og settumst niður saman. Það er það
skemmtilegasta, að menn komi saman til
að vinna en séu ekki hver í sínu horni.“