Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2013, Blaðsíða 28

Skinfaxi - 01.08.2013, Blaðsíða 28
28 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands U ndanfarin ár hafa mörg af elstu ung- mennafélögum landsins fagnað 100 ára afmæli sínu og sum þeirra hafa haldið afmælishátíðir af því tilefni. Það heyrir þó til undantekninga að félög- in gefið út sögu sína en á vordögum kom út bókin Ungmennafélag Biskupstungna, 100 ára saga. Höfundur er sagnfræðingur- inn Jón M. Ívarsson frá Vorsabæjarhóli í Flóa. Fyrir söguáhugamenn er ekki síst áhuga- vert að lesa um þann eldmóð sem ein- kenndi sveitasamfélag Biskupstungna í upphafi síðustu aldar. Andi sjálfstæðis- baráttunnar sveif yfir vötnum og hug- sjónamenn um ræktun lands og lýðs voru í fararbroddi. Fundir félagsins voru jafn- framt sveitarskemmtanir. Þar voru fram- faramálin rædd og svo var spilað, sungið og dansað til skiptis. Stundum alla nóttina því að félagsmenn voru skemmtanaglaðir. Piltar glímdu á samkomum og stúlkur efndu til handavinnukeppni. Ritfærir félagar sömdu ljóð og laust mál í félagsblaðið Baldur sem var lesið upp á fundum. Bókasafn var starf- andi á vegum félagsins. Árlega hjálpuðu félagsmenn við heyskap þeim sem stóðu höllum fæti og gáfu jólagjafir á fátæk heimili. Þarna er sagt frá skógrækt og skemmtiferðum. Íþróttakeppnum við nágrannafélög og gullöld glímunnar og sundsins. Sigurður Greipsson, skólastjóri í Haukadal, rak íþróttaskóla að Geysi um áratuga skeið og þar voru margir Tungnamenn meðal nemenda. Félagið átti mikla frjálsíþrótta- kappa og jafnvel landsliðsmenn á tímabili. Félagsmenn stund- uðu fjöldann allan af íþrótta- greinum og íþróttavöllur, sund- laug og íþróttahús risu með stuðningi félagsins. Leiklistin hefur átt sinn sess í Biskup- Glæsileg aldarsaga Ungmennafélags Biskupstungna stungum og leikdeild félagsins hefur sett upp leikverk reglulega annað hvert ár að undanförnu. Alls hefur félagið sýnt 74 leikrit á þessu 100 ára tímabili og aðsókn verið geysigóð enda mikið lagt í æfingar og sviðsetn- ingar. Félagið lyfti grettistaki þegar það stóð fyrir bygg- ingu félagsheimilisins Aratungu sem var fullbúið árið 1961. Við tilkomu hússins varð sannkölluð menningarbylting í mann- lífi Biskupstungna. Sagt er frá þeirri margvíslegu starfsemi sem þar hefur þróast, allt frá íþróttum og leiklist til árshátíða, heim- boða, þorrablóta og ástarfunda æskunnar á sveitaböllunum sem urðu víðfræg þegar Mánar frá Selfossi voru upp á sitt besta. Frá þessu öllu segir í bókinni sem er 300 blaðsíður í stóru broti og ríkulega skreytt með ljósmyndum úr starfinu. Hún ber stórhug og myndarskap ungmenna- félaga í Biskupstungum fagurt vitni og er full ástæða til að óska höfundi og Tungna- mönnum til hamingju með hana. Bókin fæst á góðu verði hjá stjórnarfólki Ung- mennafélags Biskupstungna. Við þessi tímamót ákvað stjórn félags- ins að útnefna 5 einstaklinga sem heiðurs- félaga fyrir margháttuð störf fyrir félagið. Þeir eru: Gunnar Sverrisson og Sigríður J. Sigurfinnsdóttir Hrosshaga, Áslaug Sveinbjarnardóttir Espiflöt, Guðný Rósa Magnúsdóttir Tjörn og Egill Jónasson Hjarðarlandi.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.