Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2013, Blaðsíða 11

Skinfaxi - 01.08.2013, Blaðsíða 11
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 11 Mæðgurnar, Unnur Katrín Ólafsdóttir og Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, á sund- keppni mósins. Unnur Katrín er með gullverðlaun um hálsinn eftir sigur í einni greininni sem hún tók þátt í. Matthías Már Kristjánsson greip í bók á milli skáka. Katrín Unnur Ólafsdóttir úr Grafar- voginum, sem farið hefur á átta Ungl- ingalandsmót í röð, sagði að það hefði verið ofsalega gaman að taka þátt í Unglingalandsmótunum í gegnum tíðina og um hverja verslunarmanna- helgi kæmi ekkert annað til greina en að fara á Unglingalandsmót. Katrín tók þátt meðal annars í sundi og frjálsum íþróttum á mótinu á Höfn. „Stundum hafa vinkonurnar farið með mér en oftast hef ég þó farið með mömmu og pabba. Ég á eftir að fara á eitt mót til viðbótar en ég verð 18 ára á næsta ári. Það er alveg á hreinu að ég mæti á mótið á Sauðárkróki á næsta ári,“ sagði Katrín Unnur Ólafsdóttir. Matthías Már Kristjánsson, 15 ára piltur úr Kópavogi, keppti undir merkjum UMSK á mótinu. Matthías Már var að keppa á sínu fyrsta Unglingalandsmóti. „Ég keppti í skák, glímu og fótbolta og verð bara að segja að mér finnst þetta mjög skemmtilegt. Dagarnir voru fljótir að líða þegar maður tekur þátt í svona mörgum greinum,“ sagði Matthías Már sem gat vel hugsað sér að taka þátt í næsta móti. Hefur farið á átta Unglingalandsmót Dagarnir voru fljótir að líða

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.