Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2013, Síða 4

Skinfaxi - 01.08.2013, Síða 4
4 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 48. sambandsþing Ungmennafélag Íslands var haldið dagana 12.–13. október sl. í Stykkishólmi. Helga Guðrún Guðjónsdótt- ir, formaður UMFÍ, setti þingið en um 140 þingfulltrúar áttu rétt til setu á því. Við setninguna flutti Helga S. Guðmundsdótt- ir, varaforseti ÍSÍ, stutt ávarp. Sturla Böðvars- son var þingforseti á sambandsþinginu og Björg Ágústsdóttir varaforseti. Helga Guðrún Guðjónsdóttir var endur- kjörin formaður UMFÍ en auk Helgu Guðrúnar var Stefán Skafti Steinólfsson í framboði til formanns. Helga fékk 80 atkvæði, Stefán Skafti 34 atkvæði, en eitt atkvæði var ógilt. Helga Guðrún hefur verið formaður síðan 2007 en þá var hún kosin fyrst kvenna til formennsku í UMFÍ. Á þinginu var einnig kosið í stjórn og varastjórn. Í aðalstjórn voru kjörin Hrönn Jónsdóttir UMSB, Björg Jakobsdóttir UMSK, Gunnar Gunnarsson UÍA, Haukur Valtýs- son UFA, Helga Jóhannesdóttir UMSK og Örn Guðnason HSK. Í varastjórn voru kos- in Ragnheiður Högnadóttir USVS, Baldur Daníelsson HSÞ, Kristinn Óskar Grétuson HSK og Eyrún Harpa Hlynsdóttir HSV. Þó nokkur endurnýjun varð í stjórninni. Jón Pálsson gjaldkeri gaf ekki kost á sér og Bolli Gunnarsson, Stefán Skafti Steinólfsson og Einar Kristján Jónsson náðu ekki endurkjöri. Þingið var mjög starfsamt en um 50 þingmál voru tekin til umræðu og af- greiðslu á þinginu. 48. sambandsþing UMFÍ í Stykkishólmi Helga Guðrún Guðjónsdóttir endurkjörin formaður UMFÍ Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður Ungmennafélags Íslands, sagði í sam- tali við Skinfaxa að sér væri efst í huga inni- legt þakklæti fyrir stuðninginn sem hún fékk í kjörinu og það traust sem sér hafi verið sýnt til að leiða þessa öflugu hreyf- ingu næstu tvö árin. Hún sagðist hlakka til að takast áfram á við skemmtileg viðfangs- efni og sagði að fullt af verkefnum biði. Helga Guðrún sagðist finna fyrir samheldni og samhug að afloknu þingi í Stykkishólmi. „Það er mikill vilji fyrir því innan hreyf- ingarinnar að horfa til framtíðar. Það verð- ur gaman að vinna með nýju stjórninni næstu tvö árin en öflugir einstaklingar hafa valist þar til starfa. Einnig er yngra fólk að koma inn sem hefur tekið þátt í starfi hreyfingarinnar með einum eða öðrum hætti. Ég vil þakka því góða fólki sem gekk úr stjórn fyrir vel unnin störf,“ sagði Helga Guðrún. „Ég hlakka til að takast á við þau verk- efni sem þingið hefur falið okkur en ljóst er að við verðum að koma heilmiklu í verk á næstu tveimur árum. Það er bara spenn- andi og gefur okkur tækifæri til að þróa hreyfinguna áfram og styrkja það sam- félagslega afl, sem hún klárlega er, enn frekar,“ sagði Helga Guðrún Guðjónsdóttir. Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ: Mér er efst í huga þakklæti fyrir það traust sem mér var sýnt Héraðssamband Þingeyinga, HSÞ, fékk hvatn- ingarverðlaun UMFÍ 2013 en verðlaunin voru afhent á sambandsþinginu í Stykkishólmi. Þing- eyingar fá verðlaunin fyrir kröftugt og metnaðar- fullt starf á sviði íþrótta- og æskulýðsmála á sambandssvæðinu í kjölfar sameiningar HSÞ og UNÞ. Hvatningarverðlaun UMFÍ til HSÞ Jóhanna S. Kristjáns- dóttir, formaður HSÞ, sem veitti við- urkenningunni við- töku, ásamt Helgu G. Guðjónsdóttur, formanni UMFÍ. Áralöng hefð er fyrir því á sambandsþingum UMFÍ að velja matmann þingsins. Valdimar Leó Friðriksson nauð þess heiðurs að vera valinn mat- maður þingsins í Stykkishólmi. Valdimar Leó, sem er formaður UMSK, tók við viðurkenning- unni sem er forkunnarfagur og glæsilega útskorinn askur. Valdimar Leó matmaður þingsins Guðmundur Kr. Jónsson, fyrrver- andi formaður HSK, afhenti Valdimari Leó askinn en HSK er gefandi hans.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.