Skinfaxi - 01.08.2013, Qupperneq 6
6 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Skinfaxi 3. tbl. 2013
Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson.
Ábyrgðarmaður: Helga Guðrún
Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ.
Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðsson, Guð-
mundur Karl Sigurdórsson, Örn Guðnason,
Hafsteinn Snær Þorsteinsson, Gunnar
Gunnarsson, fotbolti.net, Kolbrún Lára
Kjartansdóttir, Sandra María Ásgeirsdóttir,
Baldvin Berndsen, Flemming Jessen o.fl.
Umbrot og hönnun: Indígó.
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja.
Prófarkalestur: Helgi Magnússon.
Auglýsingar: Miðlun ehf. og Gunnar
Bender.
Ritnefnd:
Stefán Skafti Steinólfsson, Gunnar
Gunnarsson, Ester Jónsdóttir, Bryndís
Gunnlaugsdóttir og Óskar Þór
Halldórsson.
Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFÍ,
Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Sími: 568-2929
Netfang: umfi@umfi.is
Heimasíða: www.umfi.is
Starfsmenn UMFÍ:
Sæmundur Runólfsson,
framkvæmdastjóri,
Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri,
Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóri
Skinfaxa og kynningarfulltrúi,
Sigurður Guðmundsson, landsfulltrúi,
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi,
með aðsetur á Sauðárkróki,
Sabína Steinunn Halldórsdóttir,
landsfulltrúi,
Guðbirna Kristín Þórðardóttir, ritari.
Stjórn UMFÍ:
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður,
Haukur Valtýsson, varaformaður,
Örn Guðnason, ritari,
Helga Jóhannesdóttir, gjaldkeri,
Hrönn Jónsdóttir, meðstjórnandi,
Björg Jakobsdóttir, meðstjórnandi,
Gunnar Gunnarsson, meðstjórnandi.
Varastjórn UMFÍ:
Ragnheiður Högnadóttir,
Baldur Daníelsson,
Kristinn Óskar Grétuson,
Eyrún Harpa Hlynsdóttir.
Forsíðumynd:
Vésteinn Hafsteinsson, Selfyssingur og
einn fremsti kastþjálfari í heiminum í dag,
tendraði landsmótseldinn á 27. Landsmóti
UMFÍ sem haldið var á Selfossi í sumar.
Viðburðaríkt misseri er að baki. Hver
stórviðburðurinn rak annan síðast-
liðið sumar og hiklaust má segja,
þegar litið er yfir farinn veg, að vel
hafi tekist til í öll skiptin. Þrjú mót
voru haldin á vegum UMFÍ og hafa
þau aldrei verið fleiri á einu sumri.
Gífurlegt undirbúningsstarf þarf að
inna af hendi hverju sinni til að hægt
sé að halda svo stóra viðburði og
ungmennafélagar drógu sannarlega
ekki af sér. Öll mótin voru vel skipu-
lögð og haldin við bestu aðstæður.
Framkvæmdaaðilar þessara móta
geta borið höfuðið hátt fyrir vel
unnin störf og frábær mót.
Önnur verkefni UMFÍ gengu vel í
sumar. Frjálsíþróttaskóli UMFÍ var
haldinn í sjötta sinn og gekk vel
eins og áður. Skólinn var haldinn á
fimm stöðum víðs vegar um landið
og var aðsóknin góð. Hún hefur
aukist jafnt og þétt með hverju árinu
og því ljóst að þetta verkefni hefur
sannað gildi sitt. Verkefnið Hættu
að hanga! Komdu að hjóla, synda
eða ganga var haldið í fjórða sinn
og var þátttakan með ágætum.
Mikil vakning um hreyfingu er meðal
almennings og náðu margir þátttak-
endur einstökum árangri. Verkefnið
Fjölskyldan á fjallið nýtur alltaf vin-
sælda og ljóst er að mikill fjöldi hef-
ur lagt leið sína á fjöll. Gestabækur
voru á yfir 20 fjöllum og af þeim að
dæma hefur verið stöðugur straum-
ur fólks á fjöll í allt sumar og núna
í haust.
Ungmennafélög náðu frábærum
árangri í knattspyrnunni í sumar.
Stjarnan tryggði sér Íslandsmeistara-
titilinn í kvennaknattspyrnu í annað
sinn og karlalið Fjölnis bar sigur úr
býtum í 1. deild og leikur í deild á
meðal þeirra bestu á komandi tíma-
bili.
Íslenskt íþróttafólk hefur látið til
sína taka á þessu ári. Er skemmst að
minnast frábærs árangurs Anítu
Hinriksdóttur sem gerði sér lítið fyrir
og sigraði á Evrópu- og heims-
meistaramótum í 800 metra hlaupi í
17 og 19 ára flokki. Aníta er eitt
mesta efni sem komið hefur fram í
frjálsum íþróttum hér á landi. Í skoð-
anakönnun, sem Evrópska frjáls-
íþróttasambandið stóð fyrir, var
Aníta valin vonarstjarna Evrópu og
má af því ljóst vera að miklar vonir
eru bundnar við hana á hlaupabraut-
inni í framtíðinni.
Árangur íslenska karlalandsliðsins
í knattspyrnu hefur vakið mikla
athygli víða. Liðið tryggði sér rétt
til umspilsleikja við Króata um laust
sæti í lokakeppni heimsmeistara-
mótsins í Brasilíu á næsta ári. Leikirn-
ir við Króata verða í nóvember og
bíður íslenska þjóðin spennt eftir
þessum viðureignum.
Mikill uppgangur er líka hjá yngri
landsliðum Íslands og er ljóst að upp-
bygging knattspyrnuhalla víðs vegar
um landið er farin að skila árangri.
Þessi uppbygging er farin skila okkur
betri knattspyrnumönnum. Sömu
sögu má segja um framgang yngra
frjálsíþróttafólks. Frjálsíþróttavellir
hafa verið gerðir víða um land á síð-
ustu árum í tengslum við Landsmót
UMFÍ sem hefur kallað fram vakn-
ingu í frjálsum íþróttum. Uppbygg-
ingin hefur kostað sitt en þetta er
frábær fjárfesting sem skilar sér
margfalt þegar fram í sækir.
Bætt íþróttaaðstaða hefur skilað sér
Jón Kristján Sigurðsson – ritstjóraspjall:
Vefurinn Hreyfitorg formlega opnaður
Gagnvirki vefurinn Hreyfitorg var opnaður
formlega 13. september sl. Í tilefni opnun-
arinnar var á sama tíma haldið málþingið
„Þjálfun almennings – ábyrg þjónusta,
upplýst val“. Þingið var vel sótt. Að lokinni
kynningu vefsins skrifuðu aðstandendur
vefsins undir samning. Vefslóð Hreyfitorgs
er www.hreyfitorg.is
Embætti landlæknis hefur haft umsjón
með uppbyggingu Hreyfitorgs, en aðrir
aðstandendur vefjarins eru auk UMFÍ,
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands,
Félag sjúkraþjálfara, Íþróttakennarafélag
Íslands, Læknafélag Íslands, Reykjalundur,
og VIRK starfsendurhæfingarsjóður.
Meginmarkmið Hreyfitorgs er að auð-
velda þeim sem leita eftir þjónustu fyrir sig
eða aðra, t.d. foreldrum og ýmsu fagfólki,
að finna hreyfingu sem samræmist getu og
áhuga viðkomandi einstaklings og stuðlar að
heilbrigði og vellíðan. Hreyfitorg er þannig
m.a. ætlað að styðja við uppbyggingu kerfis
um ávísun á hreyfingu (Hreyfiseðils).
Þjónustuaðilar, sem bjóða upp á hreyf-
ingu sem samræmist markmiðum Hreyfi-
torgs, geta sótt um að kynna þjónustu sína
á vefnum, sér að kostnaðarlausu. Sérstök
áhersla er á að stuðla að auknu framboði á
einfaldri og ódýrri hreyfingu sem flestir ættu
að geta stundað.
Aðstandendur
nýja vefsins
hreyfitorg.is