Skinfaxi - 01.08.2013, Síða 18
18 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Aníta Hinriksdóttir
Evrópu- og heimsmeistari:
Gaman að
hafa skellt
sér á mótið
Aníta Hinriksdóttir hefur heldur betur verið í sviðsljósinu á þessu ári en hún
varð Evrópu- og heimsmeistari í 800 metra
hlaupi í 17 og 19 ára aldursflokkum. Aníta
gaf sér tíma til að hlaupa 400 metra hlaup
á Landsmóti UMFÍ á Selfossi. Hún keppti
Ég hef tekið nokkuð oft þátt í jurtagrein-ingu á Landsmótum og hef reyndar
unnið þetta tvisvar áður. Ástæðan fyrir því
hvað ég er sterkur á svellinu í þessum efn-
um er að ég byrjaði að safna plöntum
þegar ég var 13 ára gamall og var búinn
að safna yfir 200 plöntum áður en ég varð
tvítugur. Það sem maður lærir þegar mað-
ur er unglingur situr lengi,“ sagði Þorsteinn
Bergsson, bóndi á Unaósi á Fljótsdals-
héraði, eftir sigurinn í jurtagreiningu á
Landsmóti UMFÍ á Selfossi. Hann keppti
undir merkjum UÍA.
„Það skiptir líka miklu að lesa flórubæk-
ur og pæla vel í fræðiheitum á hlutum
plantnanna. Ef maður veit hvað verið er
að tala um í bókunum er ekki svo erfitt að
greina þetta. Það var lítið til af myndabók-
um þegar ég byrjaði svo það var ekkert
annað að gera en að greina plönturnar
eftir prentuðu máli og það er mjög þrosk-
andi og mörgu leyti betra en að fara eftir
myndum,“ sagði Þorsteinn.
„Sem bónda hefur það oft komið mér
vel að vera vel að sér í þessum fræðum og
gott að vita hvað er að vaxa í túnunum hjá
manni. Ég er bændaskólagenginn og þar
lærði maður að þekkja túngrös og það hef-
ur komið sér vel í þessum keppnum á
Landsmóti og víðar. Það sem skiptir mestu
er að ég hef mjög gaman af að taka þátt í
Landsmótunum og hef einnig verið að
spila bridds með jurtagreiningunni,“ sagði
Þorsteinn Bergsson sem einnig hefur getið
sér gott orð í Útsvari í sjónvarpinu með
liði Fljótsdalshéraðs.
Þorsteinn Bergsson keppti í jurtagreiningu á Landsmótinu á Selfossi:
Var búinn að safna
yfir 200 plöntum
fyrir tvítugt
hins vegar ekki í sinni sterkustu hlaupa-
grein, 800 metra hlaupi, en verkefnin hafa
verið ærin hjá þessari bráðefnilegu stúlku.
Aníta sagði að þetta hefði verið hennar
annað Landsmót en hún hefur aftur á
móti farið á nokkur Unglingalandsmót í
gegnum tíðina.
„Tími minn í 400 metra hlaupinu var
ekkert sérstakur enda ekki við öðru að
búast í þessu hvassviðri. Það var aðalatriði
að vera með og það var gaman að hafa
skellt sér á mótið,“ sagði Aníta Hinriks-
dóttir.