Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.08.2013, Page 20

Skinfaxi - 01.08.2013, Page 20
20 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands F orvarnadagur 2013 var haldinn 9. október sl. í öllum grunn- og fram- haldsskólum landsins. Dagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu. Forvarnadagurinn er haldinn að frum- kvæði forseta Íslands í samvinnu við Ung- mennafélag Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, Ungmennafélag Íslands, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Reykjavíkurborg, Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Verkefnið er stutt af Actavis. Skipulögð dagskrá var í skólum þar sem nemendur voru beðnir um að taka virkan þátt í umræðum um forvarnir gegn fíkni- efnum og horfðu á myndband. Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff heimsóttu Rimaskóla á forvarnadeginum. Forsetinn átti fund með nemendum 9. bekkjar, kennurum og stjórnendum skólans. Forsetinn kynnti góðan árangur forvarnastarfs á Íslandi á síðustu áratugum þar sem Ísland mælist lægst hvað neyslu vímuefna meðal ung- menna varðar. Forvarnadagurinn byggist á niðurstöð- um íslenskra rannsókna sem sýna hvaða ráð duga vel til að koma í veg fyrir að ung- menni verði fíkniefnum að bráð. Framan af voru kannanir á neyslu bundnar við 9. og 10. bekk grunnskóla en fyrir tveimur árum komu framhaldsskólar landsins inn í verkefnið. Forvarnadagurinn 2013 Góður árangur forvarnastarfs Íslenskar rannsóknir sýna að þeir ungling- ar sem verja minnst klukkustund á dag með fjölskyldum sínum eru síður líklegir til að hefja neyslu fíkniefna. Að sama skapi sýna niðurstöður að mun ólíklegra sé að ungmenni, sem stunda íþróttir og annað skipulagt æskulýðsstarf, falli fyrir fíkniefn- um. Í þriðja lagi sýna rannsóknirnar fram á að því lengur sem ungmenni bíða með að hefja áfengisneyslu, þeim mun ólíklegra er að þau neyti síðar fíkniefna. Niðurstöðurnar byggja á rannsóknum vísindamanna við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík sem hafa um árabil rannsakað áhættuhegðun ungmenna og hafa þær vakið alþjóðlega eftirtekt. Frá heimsókn forseta Íslands í Rimaskóla á Forvarnadeginum. Forvarnadagurinn í Árskóla á Sauðárkróki. Forvarnadagurinn í Rimaskóla í Reykjavík.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.