Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2013, Síða 27

Skinfaxi - 01.08.2013, Síða 27
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 27 S elfyssingurinn Vésteinn Hafsteinsson, þjálfari og fyrrum kringlukastari, hélt á Landsmótinu á Selfossi fjölmennan fyrirlestur sem var einn af dagskrár- liðum mótsins. Gestir á fyrirlestrinum hlustuðu af athygli á Véstein sem sagði skemmtilega frá reynslu sinni sem íþrótta- manns og þjálfara. Vésteinn býr í Svíþjóð ásamt fjölskyldu sinni þar sem hann þjálfar einnig. Vésteinn tendraði landsmótseldinn á Selfossi í sumar. Vésteinn byrjaði sem lítill strákur í Grýlu- pottahlaupinu á Selfossi, varð kringlukastari á heimsmælikvarða og síðar einn af bestu frjálsíþróttaþjálfurum heims. Vésteinn hefur um árabil verið einn fremsti kringlukastsþjálfari í heiminum og frægt er samstarf hans við eistneska kringlukastarann Gerd Kanter sem varð Ólympíumeistari í kringlukasti í Peking árið 2008 og vann brons- verðlaun á leikunum í London í fyrrasumar. Þá varð hann heimsmeistari árið 2007 og hefur auk þess unnið til fjölda verðlauna á stórmótum undir handleiðslu Vésteins. Vésteinn er eftirsóttur þjálfari víða um heim og heldur auk þess fyrirlestra og miðlar þannig reynslu sinni víða. Á dögunum var hann í Ottawa í Kanada þar sem hann hélt fimm fyrirlestra á vegum Kanadíska frjáls- íþróttasambandsins. Fyrirlestur Vésteins í Fjölbrautaskóla Suður- lands bar yfirskriftina „Æfingin skapar meist- arann“, með vilja, trú og þolinmæði er allt mögulegt. Þar sagði hann meðal annars frá íþrótta- og þjálfaraferli sínum og því sem hef- ur skipt sköpum fyrir hann til að ná árangri. „Ég þjálfa um þessar mundir sex stráka frá þremur mismunandi löndum og það er aðal- vinna mín. Ég geri þetta í Växjö í Suður-Svíþjóð og hluti af þjálfuninni fer fram í gegnum tölvu. Í Växjö hefur verið gríðarleg uppbygg- ing íþróttamannvirkja og þar er mikið um að vera. Þangað flutti ég fyrir fimm árum frá Hälsingborg og bý þar með konu og þremur börnum. Auk þjálfunarinnar er ég ráðgjafi fyrir nokkra aðra íþróttamenn og síðan held ég mikið af námskeiðum og fyrirlestrum. Eftir Kanadaferðina fer ég til Skotlands, Finn- Vésteinn Hafsteinsson er eftirsóttur fyrirlesari víða um heim: Framganga íslensks íþróttafólks vekur mikla athygli lands og innan Svíþjóðar. Nú þegar liggja fyrir námskeið sem ég held í Sviss og á Írlandi í vor. Ég er alltaf að fá tilboð um að halda fyrir- lestra víða um heim og það þykir mér mjög gaman. Fyrirlestrarnir fjalla að mestum hluta um skipulagningu þjálfunar, líkamlega þjálf- un og tækni í kastgreinum almennt. Svo kemur fyrir að ég held fyrirlestra í mörgum greinum íþrótta eins og með þjálfurum í ís- hokkí og handbolta svo að eitthvað sé nefnt,“ sagði Vésteinn í samtali við Skinfaxa. Efnilegir einstaklingar Hvað finnst þér um unga og efnilega íþróttafólkið sem er að koma fram á Íslandi um þessar mundir? „Ég fylgist náið með því sem er að gerast á Íslandi. Hér eru nokkrir mjög efnilegir ein- staklingar og Aníta Hinriksdóttir er einstök þar í flokki. Svo verður spennandi að fylgjast með Guðmundi Sverrissyni og Hilmari Jóns- syni en Hilmar var sjötti á HM af 19 ára og yngri í sleggjukasti. Guðmundur er búinn að kasta 80 metra í spjótkasti og fleiri efnilega einstaklinga væri hægt að nefna. Mér finnst bara almennt ganga vel í íþróttum á mörg- um sviðum á Íslandi þessa dagana. Karla- og kvennalandsliðin í knattspyrnu standa sig vel og vekja mikla athygli þar sem ég er á ferðinni. Karlalandsliðið í handbolta hefur ennfremur spjarað sig vel á síðustu árum og hópfimleik- arnir hafa náð eftirtektarverðum árangri. Karlaliðið í fótbolta er vissulega að brjóta blað í sögunni með framgöngu sinni og það hefur vakið mikla athygli í Svíþjóð og annars staðar í heiminum. Aníta Hinriksdóttir er orð- in þekkt í frjálsíþróttaheiminum og allir vita hver hún er,“ sagði Vésteinn Hafsteinsson. Ég þjálfa um þessar mundir sex stráka frá þremur mismunandi löndum og það er aðalvinna mín. Ástu og Guðrúnu veitt starfsmerki UMFÍ Lokafundur framkvæmdanefndar Landsmóta á Selfossi var haldinn í Þrastalundi 29. september sl. Fram- kvæmdanefndin sá um undirbúning og skipulagningu bæði Unglingalands- móts UMFÍ árið 2012 og Landsmóts UMFÍ árið 2013. Fundurinn var sá 55. í röðinni en fyrsti fundur nefndarinnar var haldinn 12. janúar 2009. Á lokafundinum heiðraði UMFÍ tvo einstaklinga sem komið hafa að undir- búningi og framkvæmd mótanna beggja. Helga G. Guðjónsdóttir, formað- ur UMFÍ, sæmdi Ástu Stefánsdóttur og Guðrúnu Tryggvadóttur starfsmerki UMFÍ. Ásta átti sæti í framkvæmda- nefndinni og tók virkan þátt í störfum nefndarinnar fyrir hönd sveitarfélags- ins. Guðrún var verkefnisstjóri Unglinga- landsmótsins og starfaði einnig við undirbúning og framkvæmd Landsmóts- ins í sumar. Þá hefur Guðrún um árabil unnið við sumarafleysingar á skrifstofu HSK, átt sæti í landsmótsnefnd HSK og verið í forystusveit HSK á Unglinga- landsmótum UMFÍ. Frá vinstri: Ásta Stefáns- dóttir, Helga Guðrún Guðjónsdóttir og Guðrún Tryggvadóttir.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.