Skinfaxi - 01.08.2013, Síða 30
30 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Ómetanleg reynsla sem nýtast mun í framtíðinni
V
ikuna 1–6. október fór undirrituð
ásamt fjórum öðrum Íslendingum í
Leiðtogaskóla NSU í Danmörku. Arney
Þyrí, Björgúlfur, Þórhildur Erla og Einar
Ásgeir, sem er bróðir minn, fóru með mér út
í skólann. Ég vissi ekki beint hvað ég væri að
fara út í en ákvað engu að síður að slá til. Ég
er ofboðslega glöð yfir þeirri ákvörðun minni
því að þessi vika var svo ótrúlega skemmti-
leg og ég kynntist svo mörgu frábæru fólki
og lærði helling af nýjum hlutum sem að
munu nýtast mér í framtíðinni.
Leiðtogaskólann sækja mestmegnis krakk-
ar frá Norðurlöndunum á aldrinum 18–30 ára.
Skólann sóttu krakkar frá Danmörku, Noregi,
Finnlandi, Grænlandi, Þýskalandi og Eistlandi
ásamt okkur Íslendingunum. Helsta hlutverk
Leiðtogaskólans er, eins og nafnið gefur til
kynna, að styrkja einstaklinginn til forystu og
við gerðum margar æfingar og verkefni sem
sneru að forystuhlutverkinu og því hvað
gerir góðan leiðtoga.
Skovly er afskaplega
sjarmerandi staður
Við áttum flug út mjög snemma á þriðju-
dagsmorgni, kl. 7:15, svo það þýddi ræs upp
úr 3:00 um nóttina í Reykjavík. Við vorum
komin til Skovly um fimmleytið. Staðurinn
er afskaplega sjarmerandi með svona ekta
sumarbúðafíling. Við fengum að velja okkur
lítið sumarhús sem rúmar um 6 manneskjur
og byrjuðum á að koma okkur vel fyrir. Við
íslensku stelpurnar tókum eitt hús og strák-
arnir tveir voru í húsi við hliðina á okkur.
Skovly er í sveit en þar eru hestar, geitur,
rollur, svín, hænur og kanínur fyrir fólk til
að skoða. Um kvöldið fórum við í smáleiki,
ísbrjóta, sem var mjög skemmtilegt og
nauðsynlegt því að auðvitað er fólk aðeins
feimið til að byrja með. Þá er tilvalið að fara í
nokkra leiki til að brjóta ísinn.
Smáíþróttir og skemmti-
legir leikir í morgunsárið
Skólinn var settur þannig upp að við gerð-
um verklegar æfingar og hlustuðum á áhuga-
verða fyrirlestra. Allir skóladagarnir hófust
kl. 7:30 með smáíþróttum til kl. 8 en þá var
morgunmatur til kl. 9. Í þessum íþróttum fór-
um við oftar en ekki í skemmtilega leiki til að
ná hópnum enn betur saman. Ég var búin að
sjá fyrir mér einhverjar svakalegar púlæfingar
og var bara nokkuð fegin þegar þessum tíma
var eytt í skemmtilega leiki enda þjappaði
það hópnum skemmtilega saman.
Hvað þarf til að teymi virki
Kennslan á miðvikudeginum byrjaði á fyrir-
lestri um mismunandi leiðtogahlutverk og
hvað þarf til þess að teymi virki vel. Einnig
tókum við próf í tengslum við hvaða týpa
maður er í teymisvinnu. Það var virkilega
áhugavert að skoða niðurstöðurnar úr því,
þær hittu svo skemmtilega beint í mark. Við
sátum líka fyrirlestur um Hreyfivikuna (Move
Week) og fyrirlestur um kynningartækni og
gerðum æfingar í tengslum við að tala fyrir
framan stóran hóp af fólki. Allir dagarnir end-
uðu svo með fundum („Reflection groups“)
kl. 17:30, þá hópuðu löndin sig saman og við
fórum yfir það sem við lærðum yfir daginn,
hvað var gott og hvað hefði mátt betur fara.
Það var afskaplega sniðugt, bæði fyrir okkur
sem sátum námskeiðið og fyrir þá sem héldu
það.
Eftir kvöldmat söfnuðust svo allir saman
úti, í kringum eldstæði þar sem grillaðir voru
sykurpúðar og bakaðar pönnukökur en líka
mikið spjallað ásamt því að spilað var á gítar
og sungið. Ekki má heldur gleyma leik ferðar-
innar, Varúlfinum, sem Björgúlfur stýrði svo
snilldarlega flest öll kvöldin.
Hvernig á að halda ræðu
fyrir framan stóran hóp
Á fimmtudeginum fyrir hádegi fórum
við í þá vinnuhópa („workshops“) sem við
völdum við skráningu í skólann. Við Íslend-
ingarnir, fyrir utan Þórhildi, vorum öll saman
í vinnuhópi sem hét „Facilitation of process-
es“. Í vinnustofunni okkar var viðfangsefnið
hvernig skuli halda ræðu fyrir framan stóran
hóp af fólki og hvernig á að leiða fundi og
fá sem mest út úr þeim. Þetta var virkilega
gagnlegur og skemmtilegur fyrirlestur með
mjög góðum æfingum. Við vorum t.d. tekin
út úr skólastofunni og farið með okkur út
þar sem við þurftum að læra að vinna með
umhverfishljóðunum þegar við vorum að
halda ræðu. Við fengum líka að æfa okkur í
að leysa ákveðin vandamál og verkefni með
því að halda fundi og leiða þá. Eftir hádegi
voru tveir fyrirlestrar, sá fyrri fjallaði um
hvernig hægt sé að hvetja fólk til að taka
þátt í sjálfboðastarfi og sá seinni hvernig
leysa eigi ágreiningsmál. Eftir kvöldmat var
aftur safnast saman í kringum eldstæðið og
sykurpúðarnir runnu ljúft niður.
Leiðtogaskóli NSU í Skovly í Danmörku haustið 2013: