Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2013, Síða 34

Skinfaxi - 01.08.2013, Síða 34
34 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Endalausar æfingar hafa skilað sér Viðtal við Guðmund Þórarinsson, atvinnumann hjá norska knattspyrnuliðinu Sarpsborg 08 Í byrjun þessa árs hélt Selfyssingur- inn Guðmundur Þórarinsson út í atvinnumennsku í fótbolta er hann gekk til liðs við norska liðið Sarpsborg 08. Guðmundur er einn af mörgum ungum og efnilegum íþróttamönnum sem hafa látið draum sinn um að gerast atvinnu- maður rætast. Margt áhugavert og skemmtilegt einkennir atvinnu- mennskuna og sannarlega er gaman fyrir ungan mann að ná markmiðum sínum. Guðmundur eða Gummi Tóta eins og hann er oftast kallaður er fæddur og uppalinn á Selfossi, sonur Þórarins Ingólfs- sonar (Tóta Ingólfs), aðstoðarskólameistara í FSu, og Önnu Guðmundsdóttur, banka- starfsmanns. Bróðir Gumma er Ingólfur (Ingó Veðurguð) sem m.a. hefur látið nokkuð að sér kveða í íslenskum tónlistarheimi sem og á knattspyrnuvellinum. Byrjaði ungur og var duglegur að æfa Fyrstu minningar Gumma úr fótboltanum eru frá því er hann var 4 ára og fékk að fara með pabba sínum á æfingar en hann þjálf- aði þá m.a. stráka í 4. og 5. flokki á Selfossi. Gummi byrjaði 5 ára að æfa fótbolta með 7. flokki og var þá með Halldór Björnsson sem þjálfara, en Halldór hefur undanfarið verið markmannsþjálfari íslenska kvennalandsliðs- ins og aðstoðarþjálfari meistaraflokks Selfoss. Gummi var í góðum árgangi sem stóð sig vel á mótum eins og Shell-mótinu og N1-mótinu. Gummi á margar góðar minningar frá þess- um mótum. „Þetta voru frábær mót og ég var nokkrum sinnum valinn í úrvalslið mótanna. Ég man líka að mér þótti mjög gaman að fara út í Eyjar keppa í fótbolta og heimsækja afa og ömmu í leiðinni.“ Gummi hefur alla tíð haft mikinn áhuga á fótbolta og verið með eindæmum duglegur að æfa sig. Hann segir að það hafi haft mikið að segja fyrir fótboltagetu sína þegar gervi- grasvelli var komið upp við Vallaskóla, skammt frá heimili hans á Víðivöllunum. „Ég æfði mig mikið sjálfur og bjó nánast á gervigrasinu. Strákarnir kölluðu mig stund- um „Gumma gervigras“ af því að ég var svo oft þar einn að æfa mig með bolta.“ Gummi segir að Ingólfur bróðir sinn, sem er sex árum eldri, hafi líka alltaf verið sterk fyrirmynd. Ingólfur var snemma mjög efni- legur knattspyrnumaður, á m.a. sex lands- leiki að baki með U17 landsliðinu og þrjá leiki með U19 liðinu. „Ingó var og er alltaf stuðningsmaður nr. 1 hjá mér. Hann var líka í mínum huga bestur á landinu,“ segir Gummi. Fórum upp í efstu deild á afmælisdegi mömmu Fyrsti leikur Gumma með meistaraflokki Selfoss var þegar hann 15 ára gamall en það var æfingaleikur gegn Val. Gummi æfði síðan 16 ára allt tímabilið með liði Selfoss sem þá endaði í 3. sæti í 1. deildinni. Árið eftir (2009) spilaði hann nær alla leiki liðsins sem vann 1. deildina glæsilega og komst í fyrsta skipti í sögu félagsins upp í efstu deild. Selfoss tryggði sér úrvalsdeildarsæti með glæsileg- um 6:1 sigri á Aftureldingu á heimavelli þegar tvær umferðir voru eftir. Stemningin á vellinum var einstök en Gummi og Ingó bróðir hans voru báðir í liðinu sem nær ein- göngu var skipað heimastrákum. „Þetta var einstaklega skemmtilegt og ekki síst fyrir þær sakir að þetta var 4. september, afmælis- dagur mömmu,“ segir Gummi. Árið eftir lék Selfoss í fyrsta skipti í efstu deild og segir Gummi að það hafi verið erfitt tímabil. Mörg mistök hafi verið gerð og mikil vonbrigði að falla aftur niður um deild. Menn hafi þó lært margt af þessu. „Mér finnst Sel- foss vera það stór bær að það eigi alveg að vera hægt að halda úti liði í efstu deild.“ Eins og flestir knattspyrnuáhugamenn vita vann Selfoss sér aftur sæti í Pepsi-deildinni 2011 en féll aftur niður árið eftir. Spennandi að fá að spila með ÍBV Haustið 2010 ákvað Gummi að ganga til liðs við úrvalsdeildarlið ÍBV. „Ég vildi komast í betra lið þar sem hefðin væri meiri. ÍBV sýndi mér líka mikinn áhuga og mér fannst það spennandi.“ Gummi spilaði tvö tímabil með ÍBV þar sem hann lék nær alla leiki liðsins. „Fyrra árið var ég oftast á kantinum en það síðara á miðjunni, en þar hef ég oftast spilað,“ „Ég vildi kom- ast í betra lið þar sem hefðin væri meiri. ÍBV sýndi mér líka mikinn áhuga og mér fannst það spennandi.“ „Ég æfði mig mikið sjálfur og bjó nánast á gervigrasinu. Strákarnir köll- uðu mig stund- um „Gumma gervigras“ af því að ég var svo oft þar einn að æfa mig með bolta.“

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.