Skinfaxi - 01.08.2014, Side 4
4 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Hreyfivikan
Yfir fimmtán
þúsund
tóku þátt
H reyfivikan MoveWeek, sem fram fór dagana 29. september til 5. október sl., tókst mjög vel og var almenn
ánægja með verkefnið. Ungmennafélag
Íslands náði markmiðum sínum fyrir árið í ár
því viðburðir voru um 250 á landinu öllu og
yfir 15.000 manns sem tóku þátt. Til saman-
burðar voru um 50 viðburðir á Íslandi í Hreyfi-
vikunni árið 2013 og markmiðið var að fjölga
viðburðum um helming. Hreyfivikan Move-
Week fór fram í nærri fjörutíu Evrópulöndum
á sama tíma. Miðað við höfðatölu gaf Ísland
öðrum þjóðum ekkert eftir.
Hreyfivikan fór fram með ýmsum hætti í 45
þéttbýliskjörnum á landinu og sneið hvert
samfélag sér stakk eftir vexti. Viðburðir voru
mjög fjölbreyttir og eitthvað í boði fyrir alla
aldurshópa. Ungmennafélög og sambands-
aðilar voru með opnar æfingar, sveitarfélög
buðu frítt í sund í vikunni, dvalarheimili voru
með dagskrá fyrir íbúa sína, leikskólar brugðu
á leik og grunnskólar voru með fjölbreytta
viðburði. Þá tóku veitingastaðir víða vel í
verkefnið sem og fyrirtæki og einstaklingar.
Markmið verkefnisins er að fjölga þeim sem
hreyfa sig reglulega og hvetja alla til að finna
uppáhaldshreyfingu sína og því ættu allir að
hafa fundið eitthvað við hæfi.
Ungmennafélag Íslands vonar að sem flest-
ir hafi notið vikunnar í leik og starfi og þakk-
ar öllum þeim sem þátt tóku í verkefninu
fyrir framlag þeirra. Boðberar hreyfingarinn-
ar halda áfram að virkja samfélag sitt. Hreyfi-
vikan sjálf er ekki eina vika hreyfingar á árinu
því að allar 52 vikur ársins ættu að vera
hreyfivikur hjá öllum.
Hreyfivikan MoveWeek er hluti af „The
NowWeMove 2012–2020“, herferð ISCA (In-
ternational Sport and Culture Association),
sem hefur það að markmiði að kynna kosti
þess að taka virkan þátt í hreyfingu og íþrótt-
um til heilsubótar.
„Við erum gríðarlega ánægð með hvernig til
tókst með Hreyfivikuna MoveWeek að þessu
sinni. Fjöldi viðburða víðs vegar um landið
var hátt í þrjú hundruð í 45 þéttbýliskjörn-
um. Ég hef mikla trú á því að verkefnið fari
bara stækkandi. Það var gleðiefni að sjá hve
fjöldi viðburða var mikill og hvað fjölbreyti-
leikinn var skemmtilegur í dagskrárliðum um
allt. Þátttakendur sniðu sér stakk eftir vexti en
boðið var upp á ýmislegt sem var til staðar
og eins notuðu sumir tækifærið til að kynna
starf sitt sem lýtur að hreyfingu almennt,“
sagði Sabína Steinunn Halldórsdóttir, lands-
fulltrúi UMFÍ og verkefnastjóri Hreyfiviku
MoveWeek, að lokinni Hreyfiviku sem hald-
in var hér á landi og eins um alla Evrópu.
Sabína Steinunn sagði að það hefði
komið á óvart hvað verkefnið hefði sótt á
þegar líða tók á vikuna sjálfa. Viðburðum
fjölgaði og stemningin var frábær víðast
hvar og allir voru tilbúnir að taka þátt.
„Það er mikill áhugi fyrir verkefninu og
fólk tekur þátt á sínum forsendum. Mark-
miðið er að þátttakendur finni sína hreyf-
ingu og hafi gaman af því sem þeir taka sér
fyrir hendur. Þátttakan fór fram úr björtustu
vonum en þetta verkefni er fyrst og fremst
langhlaup, ekki spretthlaup. Það verður
auðveldara að bæta ofan á fyrir þá staði
sem hafa hafið þátttöku og verða þá með
á næsta ári og gera þá enn meira,“ sagði
Sabína Steinunn.
Framtíðarsýn herferðarinnar er „að 100
milljónir fleiri Evrópubúa verði orðnir virkir í
hreyfingu og íþróttum fyrir árið 2020” – „að
fólk finni SÍNA hreyfingu sem hentar því“.
Hreyfivikan er almenningsíþróttaverkefni á
vegum Ungmennafélags Íslands í samstarfi
við yfir 200 grasrótarsamtök í Evrópu sem öll
eru aðilar að International Sport and Culture
Association (ISCA).
Sabína Steinunn Halldórsdóttir, verkefnastjóri Hreyfiviku:
Hef mikla trú á því að verkefnið fari bara stækkandi