Skinfaxi - 01.08.2014, Síða 6
6 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Skinfaxi 3. tbl. 2014
Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson.
Ábyrgðarmaður: Helga Guðrún
Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ.
Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðsson,
Gunnar Gunnarsson, Ingólfur Hannes
Leósson, Hafsteinn Snær Þorsteinsson,
Guðmundur Karl Sigurdórsson og
fotbolti.net.
Umbrot og hönnun: Indígó.
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja.
Prófarkalestur: Helgi Magnússon.
Auglýsingar: Miðlun ehf. og Gunnar
Bender.
Ritnefnd:
Örn Guðnason formaður,
Gunnar Gunnarsson,
Berglind Ósk Agnarsdóttir,
Pétur Arason og
Jóhanna Hreiðarsdóttir.
Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFÍ,
Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Sími: 568-2929
Netfang: umfi@umfi.is
Heimasíða: www.umfi.is
Starfsmenn UMFÍ:
Sæmundur Runólfsson,
framkvæmdastjóri,
Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri,
Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóri
Skinfaxa og kynningarfulltrúi,
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi,
með aðsetur á Sauðárkróki,
Sabína Steinunn Halldórsdóttir,
landsfulltrúi,
Guðbirna Kristín Þórðardóttir, ritari.
Stjórn UMFÍ:
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður,
Haukur Valtýsson, varaformaður,
Örn Guðnason, ritari,
Helga Jóhannesdóttir, gjaldkeri,
Hrönn Jónsdóttir, meðstjórnandi,
Björg Jakobsdóttir, meðstjórnandi,
Gunnar Gunnarsson, meðstjórnandi.
Varastjórn UMFÍ:
Ragnheiður Högnadóttir,
Baldur Daníelsson,
Kristinn Óskar Grétuson,
Eyrún Harpa Hlynsdóttir.
Forsíðumynd:
Viðar Örn Kjartansson, landsliðsmaður í
knattspyrnu og leikmaður norska liðsins
Vålerenga, hefur farið á kostum í norska
boltanum. Viðar Örn hefur skorað 25 mörk.
Frammistaða hans hefur vakið mikla athygli.
Eru útsendarar liða víðs vegar um Evrópu
fastagestir á leikjum með honum og kæmi
engum á óvart að hann gengi til enn stærra
liðs eftir eins árs veru í norska fótboltanum.
Íslenska karlalandsliðið í knatt-
spyrnu hefur heldur betur verið í
sviðsljósinu undanfarnar vikur í
kjölfar frábærar byrjunar í riðli sínum
í undankeppni Evrópumóts lands-
liða. Íslenska þjóðin er í skýjunum
með sína menn og árangurinn hef-
ur farið eins og eldur í sinu um heims-
byggðina. Kröftug byrjun hefur yljað
landanum en í kjölfar þriggja sigra í
röð eru Íslendingar í efsta sætinu í
sínum riðli, hafa skorað átta mörk,
ekki fengið neitt á sig, og niðurstað-
an er níu stig. Það á örugglega eftir
að ganga mikið á í þessum riðli áður
en yfir lýkur en byrjunin lofar góðu.
Við höfum líklega aldrei áður átt jafn
sterkt A-landslið í knattspyrnu og
árangurinn lætur ekki á sér standa.
Hvað veldur, hvað hefur gerst?
kunna margir að spyrja. Við höfum
aldrei átt jafn góða einstaklinga,
þjálfara í fremstu röð, góða umgjörð
og kannski síðast en ekki síst eru
uppbyggingarstarf í þjálfunarmálum
síðustu ára og bætt aðstaða farin að
skila sér með þessum athyglisverða
og jákvæða hætti.
Margir leikmenn í liðinu í dag hafa
líka leikið lengi saman, tókst m.a. að
komast í lokakeppni 21-árs liða fyrir
nokkrum árum, sem á eflaust stóran
þátt í því hve liðið er orðið sterkt í
dag. Hver leikmaður þekkir hlutverk
sitt í þaula og leikskipulag er aðdáun-
arvert. Mikil vinna hefur verið lögð í
þessa þætti og á þjálfarateymið þar
stærstan þátt. Svíinn Lars Lager-
bäck og Eyjamaðurinn Heimir Hall-
grímsson hafa unnið frábæra vinnu
sem er ekki á færi allra að leika eftir.
Mikið starf er að baki í öllu sem við-
kemur liðinu sem núna er að skila
sér. Umgjörðin er snarbreytt, barist
er um hvern miða á leiki liðsins og
þeir fara allir á nokkrum mínútum.
Það leggst allt á eitt til að ná þeim
árangri sem orðinn er og er þá stuðn-
ingurinn sem liðið ekki síður mikil-
vægur.
Það verður spennandi að fylgjast
með landsliðinu í næstu leikjum í
þessum riðli. Næst verður leikið úti
við Tékka sem hafa ekki heldur tap-
að leik í riðlinum. Ég hef mikla trú á
þessu liði og ber þá von í brjósti að
því takist að ná ætlunarverki sínu.
Það er meðbyr í íslenskri knatt-
spyrnu um þessar mundir og von-
andi njótum við hans lengi.
Eflaust hefur uppgangur Ung-
mennafélagsins Stjörnunnar í
Garðabæ á knattspyrnusviðinu ekki
farið fram hjá neinum. Þegar upp
var staðið nú á haustdögum var
uppskera karla- og kvennaliðsins
einstök. Kvennaliðið varð bæði
Íslands- og bikarmeistari og karlarn-
ir urðu Íslandsmeistarar eftir magn-
aðan úrslitaleik sem verður lengi í
minnum hafður. Mikið og öflugt
barna- og unglingastarf, skipulagn-
ing á öllum sviðum og umgjörð
fleytir þessum liðum alla leið. Stuðn-
ingsmenn Stjörnunnar, Silfurskeiðin
svonefnda, á stóran þátt í þessum
árangri. Silfurskeiðin á fáa sína líka
og hefur sett óhemju skemmtileg-
an svip á knattspyrnuleiki hér á
landi, nokkuð sem aldrei hefur sést
hér á áður. Silfurskeiðin er frábært
innlegg í íslenska knattspyrnu og
hefur lyft henni á hærri stall.
Meðbyr í íslenskri knattspyrnu
– vonandi njótum við hans lengi
Jón Kristján Sigurðsson – ritstjóraspjall:
Eftir setningarathöfn Unglingalandsmóts-
ins á Sauðárkróki í sumar var afhjúpaður
þakkarskjöldur á íþróttavallarsvæðinu. Það
voru Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formað-
ur UMFÍ, og Stefán Vagn Stefánsson, for-
maður byggðaráðs Skagafjarðar, sem
afhjúpuðu þakkarskjöldinn.
Helga Guðrún sagði það heiður að fá að
afhenda sveitarfélaginu þennan minnis-
varða til minningar um það dugmikla og
kröftuga starf sem hefur verið unnið á
Sauðárkróki. Fyrir á svæðinu eru þakkarskild-
ir frá Landsmótum UMFÍ 1971 og 2004, og
Unglingalandsmótunum 2004 og 2009.
Þakkarskjöldur afhjúpaður á Sauðárkróki