Skinfaxi - 01.08.2014, Page 10
10 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
D agana 28. júlí – 2. ágúst síðast-liðinn voru haldnar ungmenna-búðir Nordisk Samorganisasjon for Ungdomsarbeid (NSU).
Ungmennafélag Íslands var gestgjafi búð-
anna á síðasta ári og tók á móti um 35
ungmennum frá hinum Norðurlöndun-
um en búðirnar fóru að þessu sinni fram
í Arendal í Noregi og voru hluti af „Splæsh
Camp“ sem gestgjafarnir í Norsk Frilynt
halda árlega. Þema búðanna í ár var leik-
list, kvikmyndagerð og menning ung-
menna á Norðurlöndunum.
Mikið félagslegt gildi
Verkefnið var afar spennandi kostur fyrir
ungmenni á Íslandi sem hafa áhuga á að afla
sér óformlegrar menntunar á sviði leiklistar,
kvikmyndagerðar og menningar. Búðirnar
hafa fest sig í sessi og hafa mikið gildi fyrir
félagslega heilsu þátttakenda. Þátttakendur
síðastliðinna ára hafa í framhaldi af slíkum
búðum eflst í því að afla sér óformlegrar
menntunar, eflt leiðtogahæfileika sína og
víkkað sjóndeildarhring sinn.
Sextán íslensk ungmenni
Að þessu sinni fór glæsilegur hópur
íslenskra ungmenna í ungmennabúðirnar. Í
hópnum voru sextán ungmenni sem komu
víðs vegar að af landinu ásamt fararstjóra sín-
um, Aðalbirni Jóhannssyni, formanni ung-
mennaráðs UMFÍ.
Að dvölinni lokinni skiluðu þátttak-endur stuttri greinargerð til UMFÍ varðandi ferðina og vitnum við hér
í nokkrar þeirra, með góðfúslegu leyfi
þátttakenda.
Glöð og stressuð
Ég var bæði glöð og stressuð þegar ég fékk
að vita að ég hefði komist að í Splæsh Camp
til Noregs með UMFÍ, ég sótti nefnilega svolítið
seint um (en samt innan tímarammans).
Ungmennabúðir í Arendal í Noregi í sumar:
Vorum á æðislegum stað og
stemningin þarna var frábær
Frábær hópur
Á flugvellinum fengum við að sjá hópinn í
fyrsta skipti. Mér leist nokkuð vel á krakkana en
þegar ég kynntist þeim betur í ferðinni fannst
mér þetta FRÁBÆR hópur.
Upplifun mín í Noregi var hreint æðisleg,
starfsfólkið var frábært og einnig krakkarnir
sem voru í Splæsh Camp. Þetta voru vel skipu-
lagðar búðir, öll kennslan var góð og munur á
tungumálum á milli krakkana skipti ekki máli,
við gátum öll haft gaman, hlegið og skemmt
okkur. Aðalbjörn fararstjóri var mikið meira en
bara fararstjóri. hann var vinur okkar allra og
reyndist okkur ótrúlega vel.
Vinskapurinn mikilvægur
Þar sem ég mun taka með mér úr Splæsh
Camp er dýpri skilningur á kvikmyndagerð,
klippivinnslu sem og hljóðblöndun en allt
þetta lærði ég í Splæsh Camp. Í lok námskeiðs-
ins bjuggum við til trailer og nýttum við þá
kunnáttu sem við tileinkuðum okkur í búðun-
um. Það mikilvægasta, sem ég tók með mér úr
þessum búðum, er vinskapur við aðra krakka
frá hinum Norðurlöndunum, vinskapur sem
varir vonandi að eilífu.
Búðirnar voru á litlum sætum stað rétt við
ströndina. Þar var fullt af kofum og í þeim voru
nokkur herbergi. Ég var með 6 öðrum krökkum
frá Íslandi í herbergi. Í búðunum var hægt að
fara á alls konar námskeið sem tengdust leiklist
en Íslendingarnir máttu bara velja um nokkur
námskeið.
Þessar búðir voru á æðislegum stað og
stemningin þarna var frábær. Flest öllum fannst
íslenskan mjög skemmtilegt og fyndið tungu-
mál og voru mjög spenntir fyrir því að læra ein-
hverja frasa og orð. Ég var líka spennt fyrir því
að læra norsku. Mér var farið að ganga nokkuð
vel að skilja hana og var líka búin að læra
nokkra frasa þegar ég fór heim. Á flugvellinum
keypti ég mér meira að segja bók á norsku sem
að ég ætla að reyna að komast í gegnum.
Æðisleg ferð í alla staði
Þessi ferð var annars æðisleg í alla staði og ég
get alveg sagt að þetta var með því skemmti-
legra sem ég hef upplifað á ævinni. Eftir þessa
ferð er ég líka ákveðin í því að fara einhvern
tíma aftur til Noregs til að læra norsku, kynnast
landinu betur og hitta einhverja af þessum
krökkum aftur. Mig langar til að þakka UMFÍ
fyrir að hafa veitt mér tækifæri til þess að taka
þátt í þessu ævintýri.
Þetta var mikil lífsreynsla. Þessi ferð á eftir
að gleymast seint og mig langar mikið til að
fara aftur í aðra eins ferð. Þetta var allt of stutt.
Ég hefði viljað hafa þetta eina viku í viðbót og
reyna þá eitthvað annað. Mér finnst þetta dýr-
mæt lífsreynsla, og ég hefði alls ekki viljað
sleppa þessu þó að ég hafi misst af Landsmóti.
PS. Það væri skemmtilegast í heimi að fá að
fara aftur næsta sumar.