Skinfaxi - 01.08.2014, Qupperneq 18
18 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
„Í mínum huga eru Unglingalandsmótin sam-
vera með börnunum, að fylgjast með þeim
og sjá þau skemmta sér í heilbrigðu umhverfi
og í góðum félagsskap. Kynni við krakkana
víðs vegar að af landinu eru mikilvæg fyrir
börn og unglinga. Unglingalandsmótin hafa
algjörlega hitt í mark og þau eru síung eins
og börnin okkar og ef við viljum sinna þeim
eigum við að leyfa þeim að taka þátt. Þetta
er upplifun sem þau búa alltaf að og gleyma
aldrei. Við eigum að setja börnin okkar í fyrsta
sæti og þátttaka á Unglingalandsmóti er ein
góð leið til þess og vera með þeim eina helgi,“
sagði Þórir Haraldsson, sem var formaður
framkvæmdanefndar landsmóta á Selfossi.
Þórir sagði að Skagfirðingar hefðu staðið
vel að mótinu á Sauðárkróki. „Þeir tóku vel á
móti fólki og stóðu vel að mótshaldinu í heild
sinni. Sól skein alla dagana, unglingarnir voru
ánægðir, og það er það sem skiptir máli.“
„Unglingarnir takast á í keppninni, eru
góðir félagar og leika sér þess utan. Þau
njóta samverunnar hvert með öðru. Þessi
mót eiga bjarta framtíð fyrir sér og munu að
mínu viti stækka á næstu árum eftir sem fleiri
sjá gildi þess að taka þátt,“ sagði Þórir.
„Við vorum ákveðnir, vinirnir, í að taka þátt í
Unglingalandsmótinu. Allir í liðinu æfa fót-
bolta á Selfossi svo það var ekki mikið mál
að safna í lið undir merkjum Gull-Guttanna.
Við æfðum bara nokkuð vel fyrir mótið, kom-
um nokkrum sinnum saman síðustu vikurn-
ar fyrir mótið,“ sagði Þorsteinn Freyr Gunnars-
son, einn liðsmanna Gullguttanna, eftir einn
leik liðsins.
Sigurðarbikarinn
afhentur UMSS í
mótslok
Á mótsslitum 17. Unglingalandsmóts
UMFÍ á Sauðárkróki var Sigurðarbikarinn
afhentur. Það var Jón Daníel Jónsson, for-
maður Ungmennasambands Skagafjarðar,
UMSS, sem veitti bikarnum viðtöku.
Bikarinn er gefinn til minningar um Sigurð
Geirdal, fyrrverandi framkvæmdastjóra
Ungmennafélags Íslands.
Bikarinn afhendist að loknu Unglinga-
landsmóti UMFÍ ár hvert sem viðurkenn-
ing á því mikla starfi sem felst í undirbún-
ingi Unglingalandsmóta. Gefendur bikars-
ins eru Hafsteinn Þorvaldsson, fyrrverandi
formaður UMFÍ, og Jónas Ingimundarson,
Ólöf María Einarsdóttir, 15 ára kylfingur frá
Dalvík, gerði sér lítið fyrir og setti vallarmet á
rauðum teig á Hlíðarendavelli á Sauðárkróki,
á Unglingalandsmóti UMFÍ í sumar. Ólöf María
lék hringinn á 71 höggi eða á einu pari undir
pari vallarins. Ólöf María hefur þegar getið
sér gott orð sem kylfingur og þykir mikið
efni sem spennandi verður að fylgjast með í
framtíðinni.
„Ég er búin að æfa golf frá því að ég var
fjögurra ára gömul. Ástæðan fyrir því að ég
byrjaði svo snemma var að stóri bróðir minn
og mamma kveiktu áhugann í mér því að
þau stunduðu golf af miklum krafti. Það var
Þorsteinn Freyr Gunnarsson, Selfossi:
Ofsalega gaman að taka þátt í þessum mótum
„Flestir í liðinu hafa tekið þátt í Unglinga-
landsmóti áður en við vorum á mótinu sem
haldið var á Selfossi 2012 og einhverjir voru
líka með á mótinu á Höfn í Hornafirði í fyrra.
Mér finnst ofsalega gaman að taka þátt í þess-
um mótum og svo er spennandi að hitta aðra
krakka. Maður á örugglega eftir að taka þátt í
Unglingalandsmótum á meðan maður hefur
aldur til,“ sagði Þorsteinn Freyr.
Ólöf María Einarsdóttir, Dalvík, setti vallarmet á Sauðárkróki:
Sé fyrir mér framtíðina algjörlega í golfinu
Þórir Haraldsson:
Upplifun sem þau búa
alltaf að og gleyma aldrei
lítill golfvöllur rétt hjá leikskólanum mínum
og þar æfði ég mig mikið.“
„Ég keppi mikið á mótum í dag, mest fyrir
sunnan og eins á mótum erlendis með ungl-
ingalandsliðinu. Ég sé framtíðina fyrir mér
algjörlega í golfinu og ég stefni að því að
bæta mig enn frekar. Ég er í golfi öllum stund-
um, þetta er bara svo ofsalega gaman,“ sagði
Ólöf María.
„Unglingalandsmótin eru mjög skemmti-
leg,“ sagði Ólöf María, sem hefur tekið þátt í
þremur Unglingalandsmótum.
fyrsti formaður Ungmennafélagsins Þórs
í Þorlákshöfn.
Bikarinn var afhentur í fyrsta sinn
HSK vegna Unglingalandsmóts UMFÍ í
Þorlákshöfn 2008. UMSS fékk bikarinn
2009, UMSB 2010 ,UÍA 2011, HSK 2012,
USÚ 2013 og UMSS 2014.
Unglingalandsmótið á Sauðárkróki