Skinfaxi - 01.08.2014, Síða 22
22 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Þórunnarstræti
Ka
up
va
ng
ss
tr
æ
ti
www.visitakureyri.is
SUNDLAUGIN
Á AKUREYRI
Va t n a v e r ö l d f j ö l s k y l d u n n a r
Afgreiðslutímar:
Sumar (2/6–29/8): Virkir dagar 6.45–21.00. Helgar 8.00–19.30.
Vetur (30/8–1/6): Virkir dagar 6.45–21.00. Helgar 9.00–18.30.
K olfinna Jóhannesdóttir, sveitarstjóri Borgarbyggðar, og Sigurður Guð-mundsson, sambands-stjóri Ung-mennasambands Borgarfjarðar,
undirrituðu í byrjun september samstarfs-
samning um tómstundastarf fyrir 6 til 16 ára
börn í Borgarbyggð. Tilgangurinn með samn-
ingnum er að auka fjölbreytni í tómstunda-
starfi fyrir börn á grunnskólaaldri, fjölga þátt-
takendum í skipulögðu félags- og tómstunda-
starfi og að stuðla að því að vinnudagur
barnanna verði sem heildstæðastur.
Hlutverk UMSB samkvæmt samningnum
verður að sjá um og skipuleggja íþrótta- og
tómstundaskóla fyrir börn í 1.–4. bekk, starf
semi félagsmiðstöðva fyrir unglinga, sumar-
fjör fyrir börn í 1.–7. bekk og vinnuskóla fyrir
börn í 8.–10. bekk.
Helsta nýmæli í tómstundastarfi sam-
kvæmt samningi þessum er stofnun íþrótta-
og tómstundaskóla, sem mun taka til starfa
1. janúar 2015. Starfsemi skólans verður
byggð upp í góðu samstarfi við íþróttafélög-
insem halda úti æfingum fyrir börn á þessum
aldri. Ætlunin er að geta boðið börnunum
upp á að æfa þær greinar sem þau vilja en
um leið að kynna fyrir þeim aðrar greinar
sem í boði er að æfa í sveitarfélaginu.
Auk íþróttaæfinga er stefnt að því að bjóða
upp á fjölbreytt tómstundastarf, svo sem leik-
list, myndlist, tónlist, skátastarf, útivist, kynn-
ingu á starfsemi björgunar-sveitanna og
fleira. Með stofnun skólans er leitast við að
jafna tækifæri barna í sveitarfélaginu til
íþrótta- og tóm-stundaiðkunar.
UMSB hefur ráðið Sigurð Guðmundsson
sem tóm-stundafulltrúa og mun hann hefja
störf 1. nóvember nk. Sigurður er með B.Sc.-
gráðu í íþrótta-, kennslu- og lýðheilsufræðum
frá Háskólanum í Reykjavík. Hann hefur einnig
menntað sig í leiðtoga- og frumkvöðlafræð-
um og almennum íþróttum. Sigurður hefur
yfirgripsmikla reynslu á sviði íþrótta- og
æskulýðsmála. Hann hefur meðal annars
starfað sem landsfulltrúi UMFÍ auk þess að
sitja í Æsku-lýðsráði ríkisins.
Í lok nóvember verður haldinn kynningar-
fundur fyrir nemendur og foreldra þar sem
íþrótta- og tómstundaskólinn og önnur verk-
efni sem samningurinn innifelur verða
kynnt.
Samstarfssamningur um tómstundamál
milli UMSB og Borgarbyggðar