Skinfaxi - 01.08.2014, Qupperneq 23
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 23
Frjálsíþróttaskóli UMFÍ var starfræktur í sjötta sinn í sumar á fjórum stöðum víðs vegar um landið, á Laugum í Reykjadal, Egilsstöðum, í Borgarnesi
og á Selfossi. Ungmennin komu saman á há-
degi á mánudegi og skólanum lauk síðan á
hádegi á föstudegi í sömu viku. Aðaláhersla
var lögð á kennslu í frjálsum íþróttum.
Auk frjálsra íþrótta var farið í sund, leiki,
óvissuferðir og haldnar kvöldvökur. Lagt var
upp með að fá fagmenntaða kennara til að
sjá um kennsluna á hverjum stað til að tryggja
sem besta kennslu fyrir ungmennin.
Frjálsíþróttaskólinn á Selfossi sem var
fyrir krakka á aldrinum 11–15 ára heppnaðist
með afbrigðum vel. Krakkarnir voru mjög
ánægð með skólann og eru strax farin að
hlakka til að koma aftur á næsta ári. Bæði í
fyrra og í ár var metfjöldi en alls voru 38 börn
sem tóku þátt í skólanum í ár. Krakkarnir
komu flest af Suðurlandi en þó voru þau
nokkur af höfuðborgarsvæðinu. Dagskrá
skólans var mjög fjölbreytt þar sem til að
mynda voru kvöldvökur á hverju kvöldi og
fjölbreytt hreyfing, allt frá hefðbundnum
frjálsíþróttaæfingum, til sundsprells og rat-
leiks. Markmið skólans var að kynna og breiða
út frjálsíþróttir á Íslandi. Fjöldi þjálfara og
aðstoðarmanna lögðu sig fram við að gera
skólann sem faglegastan og skemmtilegast-
an. Skólinn fór fram við frábærar aðstæður
þar sem stutt er í alla aðstöðu sem nota þarf,
til að mynda frjálsíþróttavöll, félagsheimilið
Tíbrá, Selið, íþróttahúsið Iðu og sundlaugina.
Skólinn gegnir mikilvægu hlutverki í að
opna augu ungmenna fyrir ágæti íþrótta-
iðkana, en margar rannsóknir styðja þá full-
yrðingu að ungmenni, sem stunda íþróttir,
leiðist síður út í óreglu síðar á lífsleiðinni.
Síðast en ekki síst fá ungmennin tækifæri til
að kynnast hvert öðru, mynda tengslanet og
auka hæfni sína í mannlegum samskiptum.
Skólanum lauk með frjálsíþróttaskólamóti á
föstudeginum. Þá rigndi hressilega en veðrið
hafði annars verið ágætt alla vikuna. Þrátt
fyrir úrhelli var vindur löglegur og margir
krakkar bætt árangur sinn sem er frábært.
Fjóla Signý Hannesdóttir og Ágústa Tryggva-
dóttir sáu um skólann á Selfossi
Skólinn á Egilsstöðum tókst mjög vel.
Frjálsar íþróttir skipuðu eðlilega stóran sess í
búðunum en einnig var farið í aðrar íþrótta-
greinar og skemmtu allir sér hið besta.
Einnig var farið í báta og á hesta inni á Hall-
ormsstað og í bogfimi, glímu, taekwondo,
fimleika og fleira ske mmtilegt. Skólastjóri
frjálsíþróttaskólans var Hildur Bergsdóttir og
fékk hún ýmsa þjálfara með sér í lið í vikunni.
Á annan tug krakka sóttu skólann á Laug-
um. Hafdís Sigurðardóttir sá um fyrstu
æfingu í skólanum og spjallaði við krakkana
eftir æfingu. Þar kom m.a. fram að hún tekur
alltaf Lýsi á hverjum degi og segir það mjög
mikilvægt sérstaklega yfir vetrartímann.
Jóhanna Kristjánsdóttir, formaður HSÞ, og
Hermann Aðalsteinsson, stjórnarmaður HSÞ,
komu í heimsókn á fyrsta degi og færðu
þátttakendunum bláa HSÞ-boli að gjöf.
Frjálsíþróttaskóli UMFÍ
Mjög góð þátttaka var í
Frjálsíþróttaskóla UMFÍ um allt land
Krakkar í Frjálsíþróttaskóla UMFÍ á Selfossi 2014.
Mynd að ofan:
Frá Frjálsíþróttaskól-
anum að Laugum.
Mynd að neðan:
Frá Selfossi.