Skinfaxi - 01.08.2014, Page 25
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 25
að starfi fyrir börnin sín en það er erfitt að fá
fólk í stjórnir og til að gegna ábyrgðarstöðum,“
segir Davíð aðspurður um hvort erfitt sé að
fá fólk í sjálfboðaliðastörf. „Við höfum sýnt
að við getum haldið stóra viðburði eins og
þegar Unglingalandsmótið var haldið hér
fyrir þremur árum þar sem uppistaðan í
starfsfólkinu kom frá Hetti. Við erum samt
með stórt félag í ekki svo stóru samfélagi
sem krefst mikillar vinnu. Það eru 37 einstakl-
ingar í stjórnum félagsins og svo eru fleiri
í foreldraráðum og þess háttar þannig að
kannski er ekki mikið til skiptanna. Það er
samt tregða til að taka á sig ábyrgð og mér
hefur sárnað að sjá ekki ungt fólk eins og
mig taka að sér stjórn við að byggja upp
framtíðina.
Það sem er gleðilegast í þessu þó, innan
um allt vesenið, er að kynnast fólki og geta
breytt hlutunum sem þig langar að breyta
fyrir samfélagið. Það er alltaf góð tilfinning
að fara á mótin og sjá krakkana okkar gera
góða hluti, hvort sem þau vinna leiki eða
eru kurteis og prúðasta liðið. Þá fær maður
gæsahúð sem gefur til kynna að það skipti
máli að eyða öllum tímanum í starfið.“
Sigurjón segir það ekki nýtt að erfitt sé að
fá fólk í stjórnir. „Það hefur alltaf verið basl að
fá sjálfboðaliða í rútínubundin verk. Það hafa
heldur ekki allir lag á að fá fólk með sér, til
þess þarf ákveðni og að svífa á persónur sem
menn telja volgar og stela tíma þeirra. Það er
hins vegar enginn vandi að fá sjálfboðaliða
ef menn sjá eitthvað mikið og stórt eftir sig.
Áður en þökuleggja átti Vilhjálmsvöll hitti
ég ágætan samborgara minn og vinnuvéla-
eiganda sem hélt því fram að gamli tíminn
með sjálfboðaliðavinnunni væri liðinn og
ekki séns að fá mannskap til að þökuleggja.
Það yrði að kaupa vinnu sem kostaði tölu-
vert. Ég held að hann hafi ekki verið að reyna
að búa sér til vinnu, en ég var á öðru máli.
Það var ekki liðinn hálfur mánuður þar til ég
og fleiri vorum búnir að smala saman mann-
skap og fá verkstjórn. Síðan var rúllað út nokk-
ur kvöld í röð í góðu veðri og menn fengu
ekki annað fyrir vinnuna en veitingar.
Þegar ég byrjaði var ekkert talað um að
foreldrar kæmu að starfinu en við fórum að
teygja okkur til þeirra og þeir reyndust tilbún-
ir. Ég verð að segja að mér finnst foreldrar
ofnotaðir í dag. Ég sakna þess að hafa ekki
áhugasama æskulýðsleiðtoga sem eru í
þessu af hugsjón og ánægju. Ég vann í félags-
málaskóla hjá UÍA og mér finnst sú fræðsla
ekki hafa lifað nógu vel. Ungmennafélag
Íslands og félögin um allt land þurfa að
vinna markvissar í þessum málum.“
Þurfum gríðarlega
uppbyggingu í viðbót
Þegar við settumst niður með Davíð og Sigur-
jóni var Davíð nýkominn af fundi með for-
mönnum deilda þar sem tímum félagsins í
íþróttahúsunum á Egilsstöðum og í Fellabæ
var raðað niður á deildirnar. „Þegar ég hlusta
á Sigurjón finnst mér ákveðinn lúxus að hafa
allt sem við höfum. Ég er þakklátur fyrir vell-
ina, húsin og sundlaugina. Ég held að menn
hafi ekki grunað fyrir 40 árum að þetta yrði
svona stórt batterí. Ég er hins vegar snöggur
Úr myndasafni Hattar
Finnur Bjarnason var formaður Hattar á
árunum 1978–1982. Hann var ætíð dug-
legur félagsmaður og skrásetti sögu
félagsins með myndum. Hann deildi
með okkur nokkrum myndum sem
teknar eru á árunum 1977–1991.
að skipta yfir í baráttu fyrir viðbyggingu fim-
leikahúss við íþróttamiðstöðina. Við þurfum
gríðarlega uppbyggingu í viðbót til að halda
í við kraftinn í fólkinu okkar. Fimleikahúsið
myndi létta á öllum greinum og starfinu í
heild. Í dag erum við með tíma fyrir börn frá
klukkan tíu á morgnana til fimm síðdegis um
helgar. Á virkum dögum eru börnin til klukk-
an níu á kvöldin í skipulögðu íþróttastarfi.
Nýtt hús myndi áreiðanlega verða til þess að
þau skiluðu sér fyrr heim og fjölskyldan ætti
meiri tíma saman. Við höfum líka séð krakka
í fimleikunum flytja suður til að stunda grein
sína og þar erum við komin að þröskuldi sem
við komumst ekki yfir nema með bættu hús-
næði. Við höfum þurft að hafna nýjum grein-
um. Eins og staðan er núna eigum við ekki
hálftíma lausan í húsunum sem hægt er að
nýta.“
Sigurjón segist ánægður með stöðu félags-
ins í dag. „Mér líst mjög vel á það. Ég er mjög
ánægður með að heyra að félagið virkar í
mannlífinu. Mér finnst gaman að sjá fleiri
deildir, ég er alltaf ánægður þegar ég sé
svona ný blóm. Ég vil hafa möguleika þar
sem allra flestir komast að.“ GG
Tekið á móti Pelé á Egilsstaðaflugvelli.
Haldið upp á 17. júní 1978 á
vegum Hattar á Vilhjálmsvelli.
Dómaratríó Hattar tilbúið í leik 1979. Stefán Jóhanns-
son, Aðalsteinn Steinþórsson og Haukur Kjerúlf.
Fimmti flokkur Hattar árið 1979. Pelé og Ásgeir Sigurvinsson á Vilhjálmsvelli 12. ágúst 1991.