Skinfaxi - 01.08.2014, Qupperneq 27
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 27
S tjörnustúlkur náðu frábærum árangrií ár með því að vinna bæði Íslands-mótið og bikarkeppnina. Stjarnan lék einstaklega vel í allt sumar og upp-
skeran var eftir því. Markviss uppbygging
undanfarin ár er svo sannarlega farin að skila
sér og verður spennandi að fylgjast með
þessu liði á næstu árum. Liðið er ungt og
framtíðin er björt.
Frábært tímabil
„Auðvitað er ég mjög sáttur með upp-
skeru tímabilsins á liðinu en ég hefði viljað
að okkur hefði gengið betur í meistaradeild-
inni. Tímabilið hér heima var frábært og ég
þakka það sérstaklega leikmönnum og því
starfi sem félagið er búið að vinna undanfar-
in ár. Það var búið að leggja góðan grunn og
árangurinn lætur svo sannarlega ekki á sér
standa,“ sagði Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálf-
ari Íslands- og bikarmeistara Stjörnunnar í
kvennaflokki, í spjalli við Skinfaxa.
Tími kominn á tvöfalt
Aðspurður hvort þetta hefði verið mark-
mið liðsins áður en tímabilið hófst svaraði
Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar:
Ólafur Þór svo hefði verið. Stjarnan hafði
aldrei áður varið Íslandsmeistaratitil og aldrei
unnið tvöfalt svo það var kominn tími á það
eins og Ólafur Þór orðaði það.
Áfram á sömu braut
„Þegar að við vorum búnir að vinna með
hópnum fyrir tímabilið sáum við að það var
raunhæfur möguleiki að setja sér þessi mark-
mið. Í heild var þetta gott fótboltasumar,
margir hörkuleikir og deildin sterk. Nú er
stefnan að byggja ofan á það sem áunnist
hefur og bráðlega hefst undirbúningur fyrir
næsta tímabil. Það má ekki slá slöku við og
við erum staðráðin í því að halda áfram á
sömu braut,“ sagði Ólafur Þór.
Viljum stíga lengra
Stjarnan tekur aftur þátt í meistaradeild-
inni á næsta ári og sagði Ólafur Þór mark-
miðið að gera betur þá en í haust var liðið
slegið út úr 32-liða úrslitum af rússnesku liði.
„Við teljum okkur geta komist lengra í
þessari keppni en við gerðum núna. Félags-
liðin í Evrópu er mörg hver mjög sterk en við
viljum stíga aðeins lengra. Við erum farin að
hlakka til næsta tímabils. Nú verður smápása
tekin en síðan hefst vinnan aftur. Það eru
áfram bjartir tímar fram undan í Garðabæn-
um,“ sagði Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari
kvennaliðs Stjörnunnar í knattspyrnu.
Staðráðinn í því að halda
áfram á sömu braut
„Í heild var þetta gott
fótboltasumar, margir
hörkuleikir og deildin
sterk.“