Skinfaxi - 01.08.2014, Side 28
28 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari karlaliðs Stjörnunnar:
U ngmennafélagið Stjarnan tryggðisér Íslandsmeistaratitilinn í knatt-spyrnu karla í fyrsta skiptið í sögu félagsins eftir 2:1 sigur gegn FH í
úrslitaleik Pepsí-deildarinnar á Kaplakrika-
velli 4. október sl. Ólafur Karl Finsen skoraði
bæði mörk Stjörnunnar í dramatískum leik,
en sigurmarkið kom úr vítaspyrnu í uppbótar-
tíma. FH-ingar fengu nokkur góð færi í stöð-
unni 1:1, þegar þeir voru manni fleiri, en tókst
ekki að nýta þau. Stjörnumenn gáfust aldrei
upp og uppskáru magnaðan sigur. Hvorki
fleiri né færri en 6.450 áhorfendur fylltu Kapla-
krikavöll, sem er met á deildarleik, og urðu
vitni að gríðarlega spennandi leik.
Sterkur leikmannahópur
„Við höfðum það ekki beint sem markmið
að vinna þennan eftirsótta titil heldur var
stefnt að því að lenda í einu af þremur af efstu
sætum deildarinnar. Markmiðið er alltaf að
vinna en við gerðum okkur grein fyrir að við
sterk lið var etja og ekkert gefið í þessum
efnum á móti liðum eins og FH og KR. Þetta
eru lið sem gera atlögu að titlinum á hverju
ári. Það fór fram úr okkar björtustu vonum
að verða Íslandsmeistarar en nokkur atriði
lögðust í lið með okkur til að gera þetta að
veruleika. Við vorum með mjög sterkan leik-
mannahóp og þegar leið á mótið fórum við
að gera okkur grein fyrir því að við værum
ansi sterkir, vel skipulagðir og til alls vísir,“
sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari
Íslandsmeistara Stjörnunnar í karlaflokki.
Rúnar Páll sagði að eftir leikinn í 2. umferð
Evrópukeppninnar hefði mannskapurinn gert
sér í alvöru grein fyrir möguleikanum á að
vinna titilinn. Ef haldið yrði áfram á sömu
braut, leikið á sama styrk og hugarfari, væri
þetta ekki útilokað.
Að vinna titilinn var
toppurinn á tilverunni
„Við höfum mikinn meðbyr
og stuðningurinn við liðið
er engu líkur.“
Góð blanda
„Með góðu skipulagi og að leikmenn
þekki hlutverk sitt á vellinum er hægt að ná
árangri og það gerðum við eins og flestum
ætti að verða kunnugt. Við erum með góða
blöndu af leikmönnum, yngri og reyndari
leikmönnum og það skipti miklu máli. Vara-
mannabekkurinn er nánast ´95-árangurinn,
sem er reyndar að ganga upp úr 2. flokknum,
og er reynslunni ríkari sem er mjög gott upp
á framtíðina gera,“ sagði Rúnar Páll.
Hann sagði ennfremur að næsta tímabil
legðist vel í sig og liðið ætti titil að verja sem
það stefndi að sjálfsögðu að. Það þyrfti auð-
vitað allt að ganga upp svo að það gengi
eftir. Sumarið hefði verið lyginni líkust og vel
hefði gengið á öllum vígstöðvum. Rúnar Páll
sagði að það hefði verið í raun stórkostlegt
afrek að fara í gegnum deildina án þess að
tapa leik.
Spennandi verkefni
„Það er alltaf markmið í Stjörnunni að vera
á meðal þeirra bestu. Það eru áhugaverð
verkefni sem bíða okkar og það verður mjög
spennandi og krefjandi að taka þátt í forkeppni
meistaradeildar Evrópu. Umhverfið er frá-
bært og það er ofsalega gaman að fá að
starfa í Stjörnunni hvert sem litið er. Silfur-
skeiðin er engu lík og hefur stutt geysilega
vel við bakið á okkur sem og Garðbæingar
allir. Við höfum mikinn meðbyr og stuðning-
urinn við liðið er engu líkur. Tilfinningin
þegar við lyftum Íslandsmeistaratitlinum var
ólýsanleg og segja má að það hafi verið
toppurinn á tilverunni,“ sagði Rúnar Páll
Sigmundsson, þjálfari Íslandsmeistara
Stjörnunnar, í spjallinu við Skinfaxa.