Skinfaxi - 01.08.2014, Side 30
30 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Það byrjaði ekki vel hjá okkur ferðin en við áttum að fljúga til Færeyja á mánu-degi, frídegi verslunarmanna. Fluginu okkar var því miður frestað vegna
þess að hópur af fuglum hafði víst lent í
hreyfli vélarinnar og þurfti að gera við hana
vegna þess. En við flugum snemma á þriðju-
dagsmorgni og lentum í Færeyjum í kringum
ellefuleytið. Við vorum sótt á flugvöllinn og
keyrðum rakleiðis í skátaheimilið í Selatrað.
Þegar þangað var komið fengum við léttan
hádegisverð og síðan vorum við send beint
upp í fjall þar sem við hittum alla hina þátt-
takendurna og áttum að síga niður gil sem
var þar.
Þetta var út af fyrir sig mikill sigur fyrir sum
okkar. Fínt að byrja vikuna á því til þess að
hrista hópinn saman. Eftir að hafa sigið niður
var val um axarkast, bogfimi eða róður á
færeyskum bát. Við Íslendingarnir könnuðum
þetta allt saman. Um kvöldið héldum við svo
góða kynningu á landinu okkar með söng,
nammi og spurningakeppni. Næsta dag var
svo námskeiðið keyrt í gang með hópavinnu
um menningu, við fengum að vita hvað öðr-
um finnst um Ísland og þetta var skemmtileg
vinna. Eftir hádegismat fórum við svo til
Gjógv en þar lögðum við upp í heljarinnar
göngu sem tók allan eftirmiðdaginn og
gaman er frá því að segja að við Íslending-
arnir vorum með þeim fyrstu upp á topp.
Um kvöldið var svo hefðbundinn færeyskur
matur, skerpukjöt, harðfiskur og tilheyrandi.
Svo var að sjálfsögðu stiginn færeyskur
hringdans og sungið.
Næsta dag lögðum við í hann snemma
morguns til Þórshafnar þar sem við byrjuð-
um í INOVA sem er nýsköpunarmiðstöð.
Þar tók á móti okkur mjög hress maður sem
skipti okkur upp í hópa og lét okkur fást við
alls kyns verkefni og æfingar. Hádegismatur-
inn var síðan snæddur í Norræna húsinu.
Eftir það fórum við í göngutúr um garð sem
er í hjarta Þórshafnar og fengum að hlýða á
söng hjá ungum kór. Eftir það fengum við
aðeins að leika lausum hala og nýttu sumir
tækifærið og versluðu aðeins. Við hittumst
síðan aftur og fórum þá í göngutúr um gamla
bæinn með leiðsögumanni. Við keyrðum svo
heim í Selatrað og snæddum þar kvöldmat
og hlýddum á fleiri landkynningar. Föstu-
dagurinn fór svo allur í námskeið og fræðslu.
Við fengum að vinna mjög skemmtilegt
hópaverkefni sem tók mest allan daginn.
Ung blaðakona fræddi okkur svo um hvernig
eigi að koma fram og halda ræður. Um kvöld-
ið héldum við til Klaksvíkur en þar fórum við
á Sumar festivalur sem er tónlistarhátíð. Við
hlustuðum meðal annars á Eivöru Pálsdóttur
og Anne Linnett.
Síðasti dagurinn fór svo bara í uppgjör á
námskeiðinu og kveðjustund. Allt í allt var
þetta stórskemmtilegt námskeið og við
lærðum helling, ekki bara um ræðuhöld og
menningu heldur einnig um okkur sjálf. Við
þökkum UMFÍ kærlega fyrir!
Þórhildur Erla Pálsdóttir
Leiðtogaskóli NSU í Færeyjum í sumar:
Stórskemmtilegt – mikill og góður lærdómur
isnic
Internet á Íslandi hf.
F ramkvæmdir við byggingu nýs fim-leikahúss við Egilshöllina í Grafarvogi eru hafnar af fullum krafti. Fimleika-
húsið verður gríðarleg lyftistöng fyrir fim-
leikastarfið innan Ungmennafélagsins
Fjölnis. Áætlað er að húsið verði tekið í
notkun veturinn 2015 en það verður 2.250
fermetrar að stærð og tengist núverandi
húsnæði.
Mikill uppgangur hefur verið í íþrótta-
starfi Fjölnis síðustu árin. Fjölnir hefur verið
með íþróttaaðstöðu við Dalhús og í Egils-
höll. Þar hefur félagið verið með knatt-
spyrnuæfingar á inni- og útivöllum, frjáls-
íþróttaæfingar inni, bardagaíþróttir, fim-
leikaæfingar í tveimur bráðabirgðasölum
auk skrifstofu. Þar að auki er félagið með eitt
stórt íþróttahús í Grafarvogi til æfinga og
keppni í handknattleik og körfuknattleik og
annað minna íþróttahús í Rimaskóla til æfinga.
„Það er alveg ljóst að þetta hús verður
gríðarleg bylting í allri starfsemi deildar-
innar. Við notumst við tvo sali í dag og í
raun var annar salurinn hugsaður sem
geymsla í upphafi. Það hefur alltaf verið
biðlisti hjá okkur en iðkendur hjá okkur
eru í kringum fjögur hundruð. Við komum
vonandi til með að annast eftirspurn þeg-
arhúsið hefur verið tekið í notkun og á
einhverjum árafjölda er ég viss um að
iðkendafjöldinn fer upp í eitt þúsund.
Það er að vonum mikil eftirvænting eftir
þessu húsi og mikið hlakkað til þess þegar
stóra stundin rennur upp,” sagði Jarþrúður
Hanna Jóhannsdóttir, formaður fimleika-
deildar Fjölnis, í samtali við Skinfaxa.
Iðkendafjöldinn á eftir að stóraukast þegar húsið verður tekið í notkun
Framkvæmdir við
byggingu fimleika-
húss í Grafarvogi.