Skinfaxi - 01.08.2014, Page 31
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 31
T ölur og umræður undanfarinna ára sýnaað reykingar ungmenna hafa dregist saman og eru það góðar fréttir. Undan-farið hefur mikil áhersla verið lögð á for-
varnir gegn munntóbaksnotkun, sem aukist
hefur gríðarlega síðastliðin ár. Þó má vara sig
á að sofna ekki á verðinum varðandi forvarna-
vinnu gegn reykingum. Undirrituð minnist
þess sjálf, þegar hún var í grunnskóla, hversu
gríðarlega miklar forvarnir voru þar, fólk kom
í heimsókn sem hafði reykt mikið og lengi,
röddin var farin að breytast og hóstinn eftir
því, myndbönd sýnd sem voru átakanleg og
áhrifamikil, svo ekki sé nú minnst á svörtu
reykingalungum í formalínkrukkunni. Allt
þetta var vissulega mikill hræðsluáróður, en
hann hafði áhrif og svo mikil að þrátt fyrir að
rúm 20 ár séu frá því undirrituð lauk grunn-
skólagöngu situr þetta enn vel í minni.
Börnin okkar og ungmenni verða fyrir
áhrifum úr mörgum áttum um það að byrja
ekki að reykja eða nota tóbak. En það finnst
þó engin einföld uppskrift að því hvernig
þessar forvarnir og skilaboð eiga að komast
til skila.
Hvað getum við gert, sem störfum í íþrótta-
og tómstundageiranum, til þess að skilaboð-
in um hversu skaðlega og ekki „TÖFF“ reyk-
ingar eru, komist áleiðis? Það er margt sem
við getum gert með því að;
1. Vera góð fyrirmynd með því að reykja
ekki sjálf og nota tóbak.
2. Ef þið reykið, reykið þá aldrei nálægt
börnunum eða unglingunum, og allra
síst í starfinu með þeim.
3. Kynnum okkur það forvarnaefni sem í
boði er og nýtum það í starfinu.
4. Eigum góð samtöl og fræðslu í hópn-
um sem við störfum með varðandi
tóbak, skaðsemi þess og heilsu
almennt.
Ekki má sofna á verðinum
varðandi forvarnavinnu
5. Höfum upplýsingarnar og forvarnirnar
þannig að þær skiljist, en valdi þó ekki
vanlíðan eða skömm hjá þeim sem á
þær hlýðir.
Þar sem við erum öll fyrirmyndir fyrir
ungmennin okkar er mikilvægt að við tök-
um það hlutverk alvarlega. Hér á landi eru
ákveðnar reglur um það hvar má ekki reykja.
Mikilvægt er að við að fylgja þeim eftir með
því að t.d. að;
1. fylgja því eftir að ekki sé reykt við
íþróttahús og skólabyggingar, ef við
sjáum foreldra eða aðra fullorðna
reykja á þeim svæðum sem það ekki er
leyft.
2. skipta sér af þegar við sjáum börn eða
unglinga reykja.
3. láta vita ef við verðum vitni að því að
tóbak sé selt þeim sem ekki hafa náð
þeim aldri að mega kaupa slíkt.
Ekkert af því sem nefnt er hér að ofan eru
ný vísindi, en aldrei er góð saga of oft kveðin
og vert er að minna reglulega á reykingafor-
varnir. Nýtum okkur það efni sem til er, hjálp-
um ungmennunum okkar til að byrja aldrei
að reykja og verðum góðar fyrirmyndir sjálf.
Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir
Brynja Vigdís
Þorsteinsdóttir
ásamt eigin-
manni sínum Ólafi
Thordersen og
dótturinni Helgu
Vigdísi Thordersen.
KOMDU Í
FÓTBOLTA
Það leika að meðaltali
250
landsliðsmenn fótbolta
Alls leika um
20.000
fótbolta með liðum