Skinfaxi - 01.08.2014, Page 32
32 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
U ngmennafélag Njarðvíkur fagnar á þessu ári 70 ára afmæli en félag-ið var stofnað 10. apríl 1944. Í til-efni þessara merku tímamóta
stendur fyrir dyrum afmælishátíð og í undir-
búningi er útgáfa á blaði þar sem saga félag-
sins verður rakin í máli og myndum.
Sex deildir innan UMFN
Í félaginu eru nú reknar sex deildir, körfu-
knattleikur, lyftingar, sund, þríþraut og júdó.
Þá er haldið úti sport- og ævintýraskóla UMFN.
Meginmarkmið skólans er að bjóða upp á
nýja og ferska afþreyingu eins og kynningu á
helstu íþróttagreinum, óvissuferðir, leikir
og ævintýri. Námskeiðin eru með ólíkum
hætti, þannig að börn geta sótt fleiri en eitt
námskeið, en þó er haldið í föst atriði sem
hafa heppnast vel og eru ómissandi.
Í gegnum söguna hefur Ungmennafélag
Njarðvíkur alið upp frábæra íþróttamenn en
körfuknattleikslið félagsins hefur verið í
fremstu röð um árabil. Sumir af bestu sund-
mönnum þjóðarinnar hafa komið úr röðum
Ungmennafélags Njarðvíkur.
Í körfuknattleik karla hafa Njarðvíkingar
Félagið hefur alla tíð gegnt vei
13 sinnum hampað Íslandsmeistara-
titlinum og bikarmeistaratitli í 8 skipti.
Þá má nefna að Eðvarð Þór Eðvarðsson
keppti lengi undir merkjum Njarðvíkur í
sundi og var um tíma í hópi bestu bak-
sundsmanna í Evrópu. Eðvarð Þór var
kjörinn íþróttamaður ársins 1986. Af
afrekum Eðvarðs Þórs má nefna að hann
komst í úrslit á HM í sundi á Spáni 1986
og átti tíma Norðurlandametið í 200 metra
sundi sem hann setti á Evrópumótinu í
Strassborg 1987.
Félagið hefur sett mikinn
svip á íslenska íþróttaflóru
Ólafur Eyjólfsson er núverandi formaður
UMFN en hann var kosinn til starfans á síð-
asta ársþingi félagsins sem haldið var sl. vor.
„Það er óhætt að segja að starfið innan
Ungmennafélags Njarðvíkur gangi vel. Í félag-
inu eru starfandi deildir og stendur starfið
innan þeirra með blóma. Júdódeildin er um
þriggja ára gömul og er mikill kraftur í starf-
seminni. Þríþrautin er einnig ung en aðrir
deildir hafa starfað um árabil. Það hefur alltaf
verið mikill áhugi á íþróttum í Njarðvíkum og
saga félagsins er sterk og hefur sett
mikinn svip á íslenska íþróttaflóru.
Gamli grasvöllurinn okkar, sem heyrir
nú sögunni til, var einn fyrsti grasvöllur-
inn á Íslandi og þar léku m.a. Keflvíking-
ar þegar þeir urðu Íslandsmeistarar
1964. Körfuboltinn hefur sett mark sitt
á sögu félagsins og körfuboltamenn þess
hafa náð í gegnum tíðina frábærum árangri.
Í herbúðum okkar hafa margir bestu körfu-
boltamenn landsins alist upp sem við erum
afar stoltir af. Það hefur kannski ekki gengið
allt of vel síðustu ár en gangskör var gerð
Ungmennafélag Njarðvíkur 70 ára: