Skinfaxi - 01.08.2014, Page 33
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 33
gamiklu hlutverki í bænum
að því fyrir um þremur árum að snúa blað-
inu við. Fjármálin voru tekin í gegn og við
byggðum liðið mikið upp á yngri leikmönn-
um. Þetta er, held ég, að skila sér og við sjá-
um fram á bjartari tíma,“ sagði Ólafur Eyjólfs-
son.
Um 1500 iðkendur
Iðkendur innan Ungmennafélags Njarðvík-
ur eru nú í kringum 1500 og eru þeir flestir í
körfubolta, knattspyrnu og sundi. Íþrótta-
mannvirki í bænum er vel nýtt alla daga, frá
morgni til kvölds.
Lykilatriði að halda úti
öflugu íþróttastarfi
„Ég held að allir geti verið sammála um að
það sé lykilatriði að halda úti öflugu íþrótta-
starfi. Sérstaklega að börn og unglingar hafi
gott aðgengi að íþróttaiðkun, það eflir þau
og styrkir og hefur mikið forvarnagildi. Fram-
tíð félagsins er björt og við fögnum 70 ára
afmæli félagsins í ár. Af því tilefni ætlum við
að gefa út stórt og mikið blað þar sem sagan
verður rakin frá upphafi og til dagsins í dag.
Ungmennafélagsstarfið hefur alla tíð gegnt
veigamiklu hlutverki hér í Njarðvíkum og
mun gera það áfram um ókomin ár,“ sagði
Ólafur Eyjólfsson, formaður UMFN, í spjallinu
við Skinfaxa.