Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.08.2014, Side 39

Skinfaxi - 01.08.2014, Side 39
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 39 Eftirtaldir aðilar styðja starfsemi Ungmennafélags Íslands: Stöðvarfjörður Steinasafn Petru ehf., Fjarðarbraut 21 Tálknafjörður Þórsberg ehf., Strandgötu 25 Vestmannaeyjar Ísfélag Vestmannaeyja hf., Strandvegi 28 Vopnafjörður Hólmi NS-56 ehf., Hafnarbyggð 23 Vopnafjarðarhreppur, Hamrahlíð 15 Þorlákshöfn Grunnskólinn í Þorlákshöfn, Egilsbraut 35 Fiskmark ehf., Hafnarskeiði 21 U ngmennafélag Íslands hélt 39. sam-bandsráðsfund sinn þann 11. októ-ber síðastliðinn í Stjörnuheimilinu í Garðabæ. Samkvæmt lögum UMFÍ eiga formenn sambandsaðila og stjórn UMFÍ rétt til setu á fundinum. Góð mæting var á fundinn og umræður líflegar. Í setningarræðu sagði Helga Guðrún Guð- jónsdóttir, formaður UMFÍ, að á liðnu starfsári hefði verið unnið að mörgum verkefnum innan hreyfingarinnar, þau þróuð og endur- bætt í takt við tíðarandann og þarfir sam- félagsins. Verkefnin hafi fengið góðar undir- tektir og þátttakan í þeim verið góð. Helga Guðrún fór yfir helstu verkefni síðasta starfs- árs og sagðist fyrir sína hönd og stjórnar UMFÍ vilja þakka ungmennafélögum og öllu því góða fólki sem hefur lagt hreyfingunni lið með einum og öðrum hætti. „Ég get ekki skilið við þessa yfirferð öðru- vísi en svo að þakka stjórn sem og fram- kvæmdastjórn fyrir einstaklega ánægjulegt og árangursríkt samstarf. Sú samstaða og gleði sem hefur ríkt er slík að hún hvetur aðeins til dáða,“ sagði Helga Guðrún. Helga Jóhannesdóttir, gjaldkeri UMFÍ, fór yfir reikninga ársins 2013 en niðurstaða þeirra sýndi mjög góða afkomu hreyfingar- innar. Einnig fór hún yfir sölu veitingahússins í Þrastalundi en sala þess var heimiluð á sam- bandsþingi UMFÍ 2013. Á fundinum var samþykkt tillaga um að halda Vetrarlandsmót UMFÍ fyrir krakka á aldrinum 10–14 ára. Stefnt er að því að fyrsta mótið verði haldið á Ísafirði 5.–7. febrúar árið 2016. Á fundinum voru kynnt störf vinnu- hóps vegna umsóknar íþróttabandalaga að UMFÍ frá sambandsþingi 2013. Samþykkt var að halda vinnunni áfram og kynna málið vel fyrir sambandsaðilum UMFÍ. Þá voru einnig kynntar tillögur að breytingum á Landsmóti UMFÍ sem unnar voru út frá niðurstöðum úr stefnumótunarfundum. Ákveðið var að afgreiða tillögurnar ekki en leggja þær í staðinn fyrir sambandsaðila til umfjölunar í héraði. Á fundinum tók Jóhann Steinar Ingi- mundarson, formaður Stjörnunnar, við viður- kenningu frá formanni UMFÍ til félagsins fyrir glæsilegt starf og góðan árangur. 39. sambandsráðsfundur UMFÍ Garðabæ

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.